Viðskipti
219 220 221 222 223 ›
Hlutafé KB banka hækkað Hlutafé í KB banka verður hækkað um allt að 1,1 milljarð króna að nafnvirði með áskrift allt að 110 milljónum nýrra hluta. Þetta var tillaga stjórnar bankans sem samþykkt var á hluthafafundi Kaupþings Búnaðarbanka í gær. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:23
Sæplast gerir stóran samning Sæplast hefur gert einn stærsta sölusamning sinn til þessa við þýskt fiskvinnslufyrirtæki. Euro-Baltic Fischverarbeitungs á þýsku eyjunni Rügen í Eystrasalti, hefur gert samning um kaup á 3.000 kerum, sem verða framleidd í verksmiðju Sæplasts á Dalvík. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:22
Stýrivaxtahækkun skammgóður vermir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, segist óttast áframhaldandi verðbólgu og kallar eftir aðgerðum stjórnvalda til að draga úr spennu í hagkerfinu. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:22
Kári heimilar sölu í deCode Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur gefið verðbréfamiðlurum heimild til að selja allt að 12 prósentum af eignarhlut sínum í fyrirtækinu. Verðmæti viðskiptanna gætu numið 250 milljónum króna eða meira.<font size="2"></font> Viðskipti innlent 13.10.2005 14:22
Vaxtahækkunin meiri en spáð var Vaxtahækkun Seðlabankans í gær var talsvert meiri en greiningardeildir bankanna bjuggust við. Aðrir vextir hafa snarhækkað í morgun í kjölfarið og krónan styrkst. Ingólfur Bender hjá Íslandsbanka reiknar með enn frekari vaxtahækkunum Seðlabankans. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:22
Björgólfur Thor í stjórn BTC Björgólfur Thor Björgólfsson var kjörinn í stjórn Bulgarian Telecommunication Corporation á aðalfundi félagsins síðastliðinn þriðjudag. Björgólfur Thor var ásamt alþjóðlega fjárfestingarfélaginu Advent International stærsti fjárfestirinn í kaupum á 65% hlut í BTC. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:22
Þorlákur Karlsson til HR Þorlákur Karlsson hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Hann tekur við af Agnari Hanssyni, sem hefur verið forseti deildarinnar síðastliðin fimm ár. Þorlákur tekur við starfinu fyrsta ágúst, næstkomandi. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:21
Rafveita Selfossveitna seld Hitaveita Suðurnesja hefur keypt rafveituhluta Selfossveitna fyrir 615 milljónir króna. Rúmar 400 milljónir verða greiddar með peningum en rúmar 200 milljónir verða greiddar með hlutabréfum í Hitaveitu Suðurnesja h/f. Verðlag á veitusvæði Selfossveitna lækkar um 10% þegar salan hefur gengið í gegn eða frá og með 1. september. Viðskipti innlent 17.10.2005 23:41
Með næstbestu ávöxtun í Evrópu Icelandic Equity sjóðurinn hefur gengið næstbest af hlutabréfasjóðum Evrópu, með 18,6 prósenta ávöxtun á öðrum ársfjórðungi þessa árs, að því er fram kemur í viðskiptafréttum Bloomberg.com. Litið var til gengis allra sjóða í Evrópu á tímabilinu 31. mars til 22. júní. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:21
Kaupfélag ásælist sparisjóð Mikil ólga er í Skagafirði vegna þess að Kristján Hjelm sparisjóðsstjóri hefur verið neyddur til að segja upp störfum. Þetta er talið vera þáttur í valdabaráttu sem átt hefur sér stað um Sparisjóð Hólahrepps þar sem Kaupfélag Skagfirðinga hefur leynt og ljóst stefnt að yfirráðum. </font /></b /> Viðskipti innlent 13.10.2005 14:21
Væntingavísitalan lækkar enn Væntingavísitala landsmanna hefur ekki verið lægri síðan í desember 2003 samkvæmt mælingu Gallup í júnímánuði og birt var í dag. Gildi vísitölunnar mældist 104,7 og lækkar því um 5,2% á milli mánaða. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:21
Tveggja milljarða tap á ríkissjóði Heildartekjur ríkissjóðs námu tæpum 67 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, samkvæmt Hagstofu Íslands, sem birtir nú í fyrsta sinn samandregið talnaefni yfir fjármál ríkis og sveitarfélaga á rekstrargrunni innan ársins, en ekki eingöngu árstölur eins og verið hefur. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:21
Húsbréfum skipt í íbúðabréf Eigendur húsbréfa og húsnæðisbréfa geta skipt bréfum sínum í íbúðarbréf til 1. júlí. Það hentar þeim sem nýtt hafa bréfin í sparnaðarskyni. Hallur Magnússon, sviðstjóri þróunar- og almannatengsla hjá Íbúðarlánasjóði, segir að verið sé að bjóða skipti á ákveðnum skiptikjörum. Þau verði aðeins í boði í þetta eina sinn. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:21
Íslenska hagkerfið í 5. sæti Ísland er í fimmta sæti ríkja heimsins í samkeppnishæfni í viðskiptum samkvæmt athugun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Bandaríkin eru í efsta sæti, Singapore í öðru, Kanada í þriðja og Ástralía í fjórða sæti. Íslenska hagkerfið þykir þar með hið samkeppnishæfasta í Evrópu. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:21
Neysluútgjöld heimilanna hækka Neysluútgjöld heimilanna hækkuðu um rúm 52% frá árinu 1995 til 2002. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 25%. Meðalneysluútgjöld heimilanna í landinu eru um 3,5 milljónir króna ár hvert, eða um 300 þúsund krónur á mánuði. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:20
„Gróðurhúsaáhrif“ á bensínverð Stjórnvöld ætla ekki að lækka nein gjöld eða skatttekjur af bensíni og olíu, til að milda neikvæð áhrif af miklum hækkunum á heimsmarkaði á íslenskt efnahagslíf, og réttlæta það með baráttu sinni gegn gróðurhúsaáhrifum. Þetta kemur fram í greinargerð á heimasíðu fjármálaráðuneytisins þar sem fjallað er um þjóðarbúskapinn. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:20
Útgjöld heimilanna aukast um 50% Útgjöld heimilanna í landinu hafa aukist um meira en 50% frá árinu 1995 en vísitala neysluverðs hefur aðeins hækkað um 28%. Símakostnaður Íslendinga hefur þrefaldast á þessu tímabili. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:20
Íslensk hlutabréf í hæstu hæðum Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur tvöfaldast á tólf mánaða tímabili. Vísitalan nálgast nú óðfluga 3.000 stig og hefur hækkað mikið á þessu ári eftir metár í fyrra. Hækkunin frá áramótum er um 50 prósent. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:19
Aukin umsvif KB banka í Svíþjóð? Stjórnendur KB banka í Svíþjóð hafa hug á að auka umsvif sín í Svíþjóð og mun hluthafafundur bankans taka ákvörðun um það á fundi sínum í Reykjavík 5. júlí. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:20
Jafnvægi fasteigna og kaupmáttar Ekki er jafnrík ástæða til þess að hafa áhyggjur af hækkun húsnæðisverðs hér á landi og í mörgum nágrannaríkjanna. Þetta er niðurstaða Tryggva Þórs Herbertssonar og Axels Hall, hagfræðinga á Hagfræðistofnun. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:19
Sameining lífeyrissjóða Viðræðunefnd Lífeyrissjóðsins Framsýnar og Lífeyrissjóðs sjómanna hefur lokið 1. áfanga athugunar á hagkvæmni þess að sameina sjóðina í þeim tilgangi að styrkja tryggingafræðilega stöðu þeirra, efla eignastýringu, auka hagkvæmni í rekstri og þjónustu við sjóðfélaga. Að mati nefndarinnar hefur margt komið fram sem mælir með sameiningu og því lagði hún til að viðræðum verði fram haldið. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:19
Árshækkun fimm prósent Vísitala byggingarkostnaðar mældist 300,8 stig fyrir júní, og hækkar um 0,33 prósent frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir júlí. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,0%. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði umreiknuð í árshækkun nemur 12,3 prósentum. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:19
Árshækkun fimm prósent Vísitala byggingarkostnaðar mældist 300,8 stig fyrir júní, og hækkar um 0,33 prósent frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir júlí. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,0%. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði umreiknuð í árshækkun nemur 12,3 prósentum. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:19
Þýskur banki aðili að Kauphöllinni Stjórn Kauphallar Íslands hefur samþykkt aðild Deutsche Bank AG London að Kauphöllinni. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir þetta mikilsverðan áfanga fyrir íslenska markaðinn. Viðskipti innlent 13.10.2005 06:38
Lækkun tekjuskatts án verðbólgu Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, segir að ríkisstjórnin geti lækkað tekjuskatt eins og stjórnarsáttmálinn kveður á um, án þess að hleypa af stað verðbólgu, með því að beita niðurskurðarhnífnum. Hann telur þó óþarft að einblína á velferðarkerfið í því sambandi. Viðskipti innlent 13.10.2005 06:38
KB banki á sænska úrvalslistann KB-banki hefur verið skráður á úrvalslista kauphallarinnar í Stokkhólmi, fyrstur íslenskra fyrirtæka. Er bankinn þar með kominn í hóp fjörtíu öflugustu fyrirtækjanna í sænsku kauphöllinni. Þetta er talið auka mjög möguleika bankans í tengslum við fyrirhugað tugmilljarða hlutafjárútboð. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:19
KB stærri en LÍ og Íslandsbanki KB banki er orðinn stærri en Landsbankinn og Íslandsbanki til samans eftir kaup á dönskum fjárfestingarbanka í gær og er orðinn nánast jafn stór og stærsti banki Finnlands. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:18
Financial Times fjallar um kaup KB Dagblaðið Financial Times fjallar í dag um kaup KB banka á danska bankanum FIH í gær. Í grein blaðsins segir að kaupin hafi komið á óvart í Skandinavíu og að búist hafi verið við að sænskur banki, til að mynda Nordea eða SEB, myndi kaupa FIH. Hermt er að enginn hafi heyrt talað um KB í þessu samhengi fyrr en í gær, þegar gengið var frá kaupunum. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:18
Forstjóraskipti hjá SÍF Jakob Óskar Sigurðsson, hinn kunni handboltakappi og Valsari, hefur verið ráðinn forstjóri SÍF og tekur til starfa í þessum mánuði. Örn Viðar Skúlason, sem gegnt hefur starfi forstjóra SÍF undanfarna mánuði, tekur við sínu fyrra starfi sem aðstoðarforstjóri félagsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:18
Fær gott lánshæfismat Íbúðalánasjóður hefur í fyrsta skipti fengið innlendar lánshæfiseinkunnir Aaa og AA+ frá alþjóðlegu matsfyrirtækjunum Moody’s og Standard & Poor’s. Einkunnir þær sem Íbúðalanasjóður fær eru hliðstæðar einkunnum sem innlend skuldabréfaútgáfa ríkisins fær og endurspeglar þannig náin tengsl Íbúðalánasjóðs og ríkisins og stöðu hans sem ríkisfyrirtækis. Viðskipti innlent 13.10.2005 14:18