Viðskipti innlent

Hlutafé KB banka hækkað

Hlutafé í KB banka verður hækkað um allt að 1,1 milljarð króna að nafnvirði með áskrift allt að 110 milljónum nýrra hluta. Þetta var tillaga stjórnar bankans sem samþykkt var á hluthafafundi Kaupþings Búnaðarbanka í gær. Hluthafar hafa forgangsrétt til að skrá sig fyrir nýjum hlutum í félaginu en heimildin til hlutafjáraukningar var veitt í tengslum við kaup félagsins á öllum útgefnum hlutum FI-Holding, sem á danska bankann FIH. Að því gefnu að áskrift fáist að öllu hlutafénu verður söluverð þess um 40 milljarðar króna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×