Viðskipti innlent

Björgólfur Thor í stjórn BTC

Björgólfur Thor Björgólfsson var kjörinn í stjórn Bulgarian Telecommunication Corporation á aðalfundi félagsins síðastliðinn þriðjudag. Björgólfur Thor var ásamt alþjóðlega fjárfestingarfélaginu Advent International stærsti fjárfestirinn í kaupum á 65% hlut í BTC. Á aðalfundinum voru kynntir ársreikningar félagsins fyrir árið 2003. Velta BTC var á síðasta ári um 46,4 milljarðar króna eða um 526 milljónir evra og var hún sú sama og árið á undan. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 21,3 milljarðar króna en endanlegur hagnaður nam 11,5 milljörðum króna. Hagnaður var svipaður og á árinu 2002. Eigið fé félagsins er nærri 40 milljarðar króna en var í ársbyrjun 2003 samtals 48,3 milljarðar króna. Í tengslum við aðalfundinn hélt BTC móttöku fyrir á annað hundrað gesti, þar á meðal fjármálaráðherra landsins, sem fagnaði eindregið aðkomu nýrra erlendra fjárfesta í búlgarskt atvinnulíf.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×