Viðskipti innlent

Rafveita Selfossveitna seld

Hitaveita Suðurnesja hefur keypt rafveituhluta Selfossveitna fyrir 615 milljónir króna. Rúmar 400 milljónir verða greiddar með peningum en rúmar 200 milljónir verða greiddar með hlutabréfum í Hitaveitu Suðurnesja h/f. Verðlag á veitusvæði Selfossveitna lækkar um 10% þegar salan hefur gengið í gegn eða frá og með 1. september. Kaupsamningur með fullnaðarútfærslu allra þeirra atriða er kaupin varða og þjónustusamningar sem kaupunum fylgja verða lagðir fyrir viðkomandi bæjaryfirvöld í Árborg og hluthafafund Hitaveitu Suðurnesja til staðfestingar áður en kaupin taka formlega gildi. Stefnt er að því að samningar milli aðila geti tekið gildi eigi síðar en 1. september 2004. Andvirði rafveituhluta Selfossveitna verður að 2/3 hlutum greitt með peningum og 1/3 hluta með hlutabréfum í Hitaveitu Suðurnesja h/f. Samkomulag hefur orðið um að hlutabréf verði metin á genginu 2,0. Jafnframt hefur orðið samkomulag um að frá og með gildistöku sölunnar lækki verðlag á veitusvæði Selfossveitna til jafns við verðlag í Vestmannaeyjum eða um 10 %. Ekki er gert ráð fyrir breytingum í starfsmannahaldi aðila. Í tilkynningu frá Einar Njálssyni, bæjarstjóra Árborgar segir að fulltrúar eigenda Selfossveitna líti á hlutabréfaeign í Hitaveitu Suðurnesja sem langtímafjárfestingu í öflugu orkufyrirtæki með mikla vaxtarmöguleika. Jafnframt séu bæjarfulltrúar sammála um að handbært fé vegna sölunnar verði nýtt til niðurgreiðslu skulda en einnig til brýnna verkefna í sveitarfélaginu s.s. til fjármögnunar á hinum nýja Sunnulækjarskóla.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×