Viðskipti innlent

Árshækkun fimm prósent

Vísitala byggingarkostnaðar mældist 300,8 stig fyrir júní, og hækkar um 0,33 prósent frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir júlí. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,0%. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði umreiknuð í árshækkun nemur 12,3 prósentum. Hækkunin nú er mun minni en í maí, en þá tók vísitalan verulegt stökk. Hækkunin í maí jafngilti 30 prósenta hækkun yfir árið ef sama hækkun væri alla mánuði ársins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×