Viðskipti innlent

Þorlákur Karlsson til HR

Þorlákur Karlsson hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Hann tekur við af Agnari Hanssyni, sem hefur verið forseti deildarinnar síðastliðin fimm ár. Þorlákur tekur við starfinu fyrsta ágúst, næstkomandi. Þorlákur segir í fréttatilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík að ekki verði verulegar stefnubreytingar í stafi viðskiptadeildarinnar en þó verði eitt af lykihlutverkum hans að efla rannsóknarstarf deildarinnar. Deildin muni áfram leggja áherslu á hagnýta menntun og viðhalda tengslum við ýmis svið atvinnulífsins, til dæmis IMG Gallup. En Þorlákur hefur um árabil verið framkvæmdastjóri rannsóknar- og upplýsingasviðs IMG.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×