Lög og regla

Fréttamynd

Tölvubúnaði stolið úr skála OR

Brotist var inn í skála Orkuveitu Reykjavíkur við Kolviðarhól í nótt og þaðan stolið verðmætum tölvubúnaði. Þjófavarnakerfi fór í gang en þjófurinn var á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang. Hann er ófundinn.

Innlent
Fréttamynd

Óku fram á bíl í björtu báli

Lögreglumenn óku í nótt fram á bíl sem stóð í björtu báli á Rafstöðvarveginum í Elliðaárdal en ekkert sást til ökumannsins. Við nánari athugun kom í ljós að þetta var bíll sem hafði verið stolið í Árbæjarhverfi í gærkvöldi. Bíllinn sem er nýlegur er talinn ónýtur og er þjófurinn ófundinn.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglufréttir

Líkamsárás í Eyjum Eitt högg sem skyldi eftir skurð á hægri augabrún urðu endalok ósættis tveggja manna á leið á skemmtistað í Vestmannaeyjum í fyrrinótt.

Innlent
Fréttamynd

Eþíópíumenn áfram í haldi

Gæsluvarðhald yfir þremur Eþíópíumönnum var framlengt um viku í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Einn þeirra er sænskur ríkisborgari en hinir voru með sænsk vegabréf sem eru í eigu annarra þegar þeirm komu til landsins rétt fyrir áramót.

Innlent
Fréttamynd

Lægsta hassverð í fjögur ár

Verð á hassi hérlendis hefur ekki verið lægra síðan SÁÁ hóf að kanna verð meðal sjúlkinga á Vogi í janúar 2000. Þetta kemur fram í nýjust könnun samtakanna. Grammið af hassi kostar nú 1.340 krónur á götunni en kostaði tæpar þrjú þúsund krónur í upphafi árs.

Innlent
Fréttamynd

Börnin krefjast 22 milljóna

Hákon Eydal játaði fyrir dómi í morgun að hafa banað Sri Rhamawati, barnsmóður sinni og fyrrverandi sambýliskonu. Börn hennar krefja hann um tæplega tuttugu og tvær milljónir króna í bætur.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglufréttir

<font face="Helv"></font> Kona flutt á sjúkrahús Klippa þurfti farþega úr bíl á Akureyri á hádegi í gær. Hann var fluttur á slysadeild. Samkvæmt vakthafandi lækni var hann lagður inn en er ekki alvarlega slasaður. Ökumaður fólksbíls sem hann sat í beygði í veg fyrir annan þegar hann ók af Þórunnarstræti að innkeyrslu sjúkrahússins. Ökumenn sluppu ómeiddir.

Innlent
Fréttamynd

Fyrrum formaður kærður

Stjórn Leigjendasamtakanna hefur ákveðið að kæra Guðmund St. Ragnarsson, fyrrverandi formann samtakanna, til ríkislögreglustjóra. Guðmundur vísar ásökunum á bug.

Innlent
Fréttamynd

Kæra formann Leigjendasamtakanna

Stjórn Leigjendasamtakanna hefur ákveðið að kæra fyrrverandi formann samtakanna, Guðmund St. Ragnarsson, til Ríkislögreglustjóra. Þær kærur sem lagðar eru fram eru m.a. fölsun á ársreikningi og þjófnaður á eigum félagsins.

Innlent
Fréttamynd

Starfsmenn stálu gögnum SÍF

Stjórnendur SÍF saka fyrrverandi starfsmenn félagsins um að hafa stolið gögnum í eigu félagsins og ætla að óska eftir lögreglurannsókn. Þá verður farið fram á lögbann á starfsemi nýs félags sem átta fyrrverandi starfsmenn hafa stofnað.

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn vegna bruna í biðstöðu

Rannsókn lögreglunnar á Sauðárkróki á orsökum brunans sem varð ungum manni að bana í byrjun desember er í biðstöðu. Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, segir að enn sé beðið eftir niðurstöðum úr sýnatöku tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík. Lítið sé hægt að aðhafast í málinu þar til þau gögn komi.

Innlent
Fréttamynd

Játar að hafa banað Sri

Hákon Eydal játaði fyrir dómi í morgun að hafa banað Sri Rhamawati, barnsmóður sinni og fyrrverandi sambýliskonu. Börn hennar krefja hann um tæplega tuttugu og tvær milljónir króna í bætur.

Innlent
Fréttamynd

Þrengdi að hálsi Sri með belti

Hákon Eydal er ákærður af ríkissaksóknara fyrir að hafa myrt Sri Rahamawati barnsmóður sína og fyrrum sambýliskonu en ákæran á hendur Hákoni verður þingfest í dag.Hann er sagður hafa slegið hana með kúbeini í hnakkann þannig að hún missti meðvitund og síðan hafi hann endanlega ráðið henni bana með því að þrengja að hálsi hennar með belti.

Innlent
Fréttamynd

Kvenfangar verr staddir en karlar

Konur í fangelsum á Íslandi eru verr staddar en karlar samkvæmt niðurstöðum rannsókna. Margrét Sæmundsdóttir hjá Fangelsismálastofnun segir að kynjamisrétti sé á vistunarmöguleikum sem verði að bæta úr til dæmis með samnýtingu fangelsa fyrir bæði kynin. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Málsmeðferð ekki í samræmi við lög

Málsmeðferð og afgreiðsla dóms og kirkjumálaráðuneytisins á erindi refsifanga á Litla - Hrauni til ráðuneytisins frá síðastliðnu vori var ekki í samræmi við lög, samkvæmt niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Rándýr reiðtygi enn ófundin

Ekkert hefur enn spurst til mikils magns af reiðtygjum, sem stolið var úr hesthúsi í Reykjahlíð í Mosfellsbæ skömmu fyrir áramót.

Innlent
Fréttamynd

Endurálagning Baugs 464 milljónir

Baugi Group hefur verið gert að greiða 464 milljónir króna í skatta vegna endurálagningar ríkisskattstjóra fyrir tekjuárin 1998 til 2002. Baugur fékk ákvörðun skattayfirvalda afhent á gamlársdag. Félagið sættir sig ekki við forsendur ákvörðunarinnar og mun skjóta ma´linu til yfirskattanefndar og/eða dómstóla.

Innlent
Fréttamynd

Ók utan í haugsugu

Ökumaður jeppa slapp lítið meiddur eftir að hann missti stjórn á bíl sínum á Reykjanesbraut undir kvöld í gær og ók utan í haugsugu sem dráttarvél var með í togi. Hann kastaðist þaðan á ljósastaur og hafnaði utan vegar. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans og blóðsýni var tekið úr honum þar sem hann er grunaður um ölvun.

Innlent
Fréttamynd

Ólíklegt að Kópavogsmálið leysist

Ekkert útlit er fyrir að lögreglunni í Kópavogi takist að hafa uppi á manninum sem tældi níu ára telpu upp í bíl sinn í miðbæ Kópavogs síðari hluta nóvembermánaðar. Um 30 menn voru yfirheyrðir vegna málsins en nokkrar vikur eru síðan sá síðasti var yfirheyrður.

Innlent
Fréttamynd

Hákon Eydal ákærður fyrir morð

Hákon Eydal hefur verið ákærður fyrir að myrða Sri Ramahwati í júlí í sumar. Ríkissaksóknari krefst þess að hann verði dæmdur til þyngstu refsingar. Frá þessu var greint í fréttum Sjónvarpsins í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Rúmlega 1600 fíkniefnamál í fyrra

Rúmlega 1600 fíkniefnamál komu til kasta lögreglu á síðasta ári. Rúmur helmingur fíkniefnamála kemur upp um helgi og flest koma upp yfir sumarmánuðina.

Innlent
Fréttamynd

Brotist inn í Verslunarskólann

Enn var brotist inn í Verslunarskólann í Reykjavík í nótt, hurðir að tveimur skólastofum spenntar upp og þaðan stolið skjávörpum. Þjófurinn eða þjófarnir komust undan áður en lögregla kom á vettvang en verksummerki minna um margt á innbrot í skólann fyrir skömmu, en þá var líka var stolið skjávörpum. Þeir þykja ákjósanlegur gjaldmiðill í fíkniefnaheiminum líkt og fartölvur.

Innlent
Fréttamynd

Þyngstu refsingar krafist

Hákon Eydal sem varð Sri Rahmawati, barnsmóður sinni og fyrrum sambýliskonu, að bana hefur verið ákærður af ríkissaksóknara. Í ákæru er krafist þyngstu refsingar sem lög leyfa. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Ók á hross og valt

Lögreglan á Sauðárkróki var kölluð til þegar tengivagn flutningabíls valt eftir að bíllinn hafði ekið á hross á Norðurlandsvegi við bæinn Miðsitju í Skagafirði á fjórða tímanum í fyrrinótt.

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn í Keflavík á lokastigi

Rannsókn manndrápsmálsins í Keflavík, þegar maður á þrítugsaldri veitti dönskum hermanni hnefahögg með þeim afleiðingum að hann lést skömmu síðar, er á lokastigi.

Innlent
Fréttamynd

Rýmt á Tálknafirði - Snjóflóð féll

Almannavarnarnefnd á Tálknafirði ákvað í kvöld að rýma tíu innstu íbúðarhúsin í bænum, neðan svonefnds Geitárhorns, eftir að Veðurstofa Íslands gaf út tilkynningu um hættustig vegna snjóflóðahættu.  Snjóflóð féll á svæðinu fyrr í kvöld en olli ekki tjóni á mönnum eða mannvirkjum.

Innlent
Fréttamynd

Útskrifaðir af sjúkrahúsi

Tveir unglingar, sem voru fluttir á slysadeild eftir bruna í raðhúsi í Mosfellsbæ síðdegis í gær vegna gruns um reykeitrun, voru útskrifaðir í gærkvöldi. Miklar skemmdir urðu á húsinu og eru eldsupptök ókunn, nema hvað eldurinn virðist hafa kviknað í dýnu.

Innlent
Fréttamynd

Flugeldaterta í jarðgöngum

Um hálf ellefu að kvöldi nýársdags kom lögreglumaður frá Ísafirði að þar sem einhverjum hafði dottið það til hugar að kveikja í flugeldatertu í jarðgöngunum, Breiðadalslegg. 

Innlent
Fréttamynd

Sérútbúnir bílar aðstoða rútur

Fimmtán björgunarsveitarmenn á sérútbúnum björgunarsveitarbílum frá þremur sveitum í Húnavatnssýslu aðstoðuðu rútur Norðurleiða og fólksbíla í gegnum Víðidal í Húnavatnssýslu í gær.

Innlent