Innlent

Ók á hross og valt

Lögreglan á Sauðárkróki var kölluð til þegar tengivagn flutningabíls valt eftir að bíllinn hafði ekið á hross á Norðurlandsvegi við bæinn Miðsitju í Skagafirði á fjórða tímanum í fyrrinótt. Bílstjórann sakaði ekki en tengivagninn skemmdist töluvert en í honum voru meðal annars matvæli sem áttu að fara norður í land. Lögreglan vissi ekki hvort miklar skemmdir hefðu orðið á flutningabílnum sjálfum. Hrossið lifði áreksturinn af og komst undan bílnum af sjálfsdáðum og hljóp á brott.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×