Innlent

Fyrrum formaður kærður

Stjórn Leigjendasamtakanna hefur ákveðið að kæra Guðmund St. Ragnarsson, fyrrverandi formann samtakanna, til ríkislögreglustjóra. Í fréttatilkynningu frá Þórði Karli Jónssyni, formanni samtakanna, segir að Guðmundur St. sé kærður vegna gruns um fölsun á ársreikningi samtakanna, þjófnað á eigum og fjárdráttar. Einnig er hann sakaður um að hafa villt á sér heimildir gagnvart félagsmálaráðuneytinu varðandi styrki sem og að hafa í heimildarleysi keypt af fyrirtækjum á kostnað samtakanna. Guðmundur segist vísa þessum ásökunum algjörlega á bug, öllum atriðum kærunnar. "Ég áskil mér allan rétt til að höfða meiðyrðamál gagnvart þeim sem bera þessar ásakanir," segir Guðmundur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×