Innlent

Kæra formann Leigjendasamtakanna

MYND/Róbert
Stjórn Leigjendasamtakanna hefur ákveðið að kæra fyrrverandi formann samtakanna, Guðmund St. Ragnarsson, til Ríkislögreglustjóra. Þær kærur sem lagðar eru fram eru í stuttu máli fölsun á ársreikningi félagsins, þjófnaður á eigum félagsins, fjárdráttur og að hafa villt á sér heimildir gagnvart félagsmálaráðuneytinu varðandi styrki og úttektir í nokkrum fyrirtækjum á kostnað samtakanna, án heimildar. Ítarlegri skýringar á efni kærunnar verða veittar á fréttamannafundi síðdegis á morgun. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×