Innlent

Ók utan í haugsugu

Ökumaður jeppa slapp lítið meiddur eftir að hann missti stjórn á bíl sínum á Reykjanesbraut undir kvöld í gær og ók utan í haugsugu sem dráttarvél var með í togi. Hann kastaðist þaðan á ljósastaur og hafnaði utan vegar. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans og blóðsýni var tekið úr honum þar sem hann er grunaður um ölvun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×