Innlent

Ólíklegt að Kópavogsmálið leysist

Ekkert útlit er fyrir að lögreglunni í Kópavogi takist að hafa uppi á manninum sem tældi níu ára telpu upp í bíl sinn í miðbæ Kópavogs síðari hluta nóvembermánaðar. Um 30 menn voru yfirheyrðir vegna málsins, en nokkrar vikur eru síðan sá síðasti var yfirheyrður.  Litla telpan var numin á brott síðdegis þann 24. nóvember. Hún fannst köld og hrakin upp við Skálafell í Mosfellsdal um þremur klukkustundum síðar. Hún bar að maðurinn hefði ekið sér þangað. Hún sagði manninn hafa ekið rauðum fólksbíl og að hann hefði verið um tvítugt, sköllóttur, með svört plastgleraugu og skeggtopp undir neðri vör. Lögreglunni bárust fjölmargar ábendingar eftir að þessi lýsing fór út í fjölmiðlum og segir Friðrik Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Kópavogi, að um 30 menn hafi verið yfirheyrðir næstu daga. Yfirsheyrslur báru engan árangur og nú hefur enginn verið yfirheyrður í tengslum við þetta mál í nokkrar vikur. Friðrik segir það blasa við að því lengri tími sem líði án þess að nokkuð gerist í málinu, því minni líkur séu á að lögreglunni takist að hafa hendur í hári þessa manns.  Málið sé að sjálfsögðu enn þá uppi á borðinu en á meðan fáar sem engar vísbendingar séu til að fara eftir sé fátt hægt að gera. Friðrik segir að ekki hafi verið gripið til þess ráðs að fá teiknara til að teikna mynd af manninum eftir lýsingu telpunnar þar sem lýsing hennar hafi ekki þótt það tæmandi að hægt hefði verið að draga upp fullnægjandi mynd af manninum. Fari því sem horfir mun þessi ódæðismaður sleppa með skrekkinn nema þeir sem vita til verka hans segi til hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×