Írak
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 27 ›
37 hafa farist í Samarra Að minnsta kosti þrjátíu sjö hafa farist í nótt og í morgun og tugir særst í fjórum bílsprengjum í Samarra-borg í Írak. Bandarískir og írakskir hermenn réðust inn í Samarra í síðasta mánuði til að ná borginni úr höndum uppreisnarmanna sem berjast hatrammlega á móti. Erlent 13.10.2005 14:55
30 látnir og tugir særðir Að minnsta kosti þrjátíu hafa farist í nótt og í morgun og tugir særst í fjórum bílsprengjum í Samarra-borg í Írak. Andspyrnumenn réðust auk þess inn á þrjár lögreglustöðvar þar sem kom til átaka og margir særðust. Erlent 13.10.2005 14:55
Deilt um kosningarnar í Írak Írakar munu eyða 90 milljónum dollara, sem samsvarar tæpum sjö milljörðum íslenskra króna, til að gera írökskum ríkiborgurum sem búa utan heimalandsins kleift að taka þátt í kosningunum sem fram fara í landinu á næsta ári. Sameinuðu þjóðirnar eru á móti þessari ráðagerð og segja hana of dýra, erfiða í framkvæmd og opna leiðir fyrir hugsanleg svik. Erlent 13.10.2005 14:55
Þrír breskir hermenn létust í Írak Þrír breskir hermenn létu lífið þegar ráðist var á þá. Hermennirnir voru meðlimir hersveitar sem var nýlega flutt frá bresku herstjórnarsvæðunum við Basra inn á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers þar sem hefur verið mun meira um árásir en á breska svæðinu. Erlent 13.10.2005 14:55
9 flugvallarstarfsmenn drepnir Að minnsta kosti níu létust þegar sprengja sprakk í rútu með starfsmönnum alþjóðaflugvallarins í Bagdad í morgun. Ekki er vitað um fjölda særðra. Einn starfsmaður olíumálaráðuneytis Íraks var jafnframt drepinn þegar byssumenn skutu hann til bana í höfuðborginni. Erlent 13.10.2005 14:54
Aðstoðarborgarstjóri Bagdad myrtur Aðstoðarborgarstjóri Bagdad var í dag skotinn til bana af byssumönnum í borginni stríðshrjáðu. Fjórir lífverðir borgarstjórans særðust í árásinni. Skæruliðasamtökin „Her Ansar al-Sunna“ hafa lýst yfir ábyrgð á verknaðinum. Erlent 13.10.2005 14:53
Falin sprengiefni í Írak Peter Bouckaert, Starfsmaður mannréttindasamtakanna Human Rights Watch sagði frá því í gær í samtali við fréttastofu AP að hann hafi tilkynnt bandarískum hermönnum um falinn geymslustað í borginni Baqouba, 55 kílómetrum norðaustur af Baghdad, í maí á síðasta ári. Erlent 13.10.2005 14:53
Voru að hlýða skipunum Íslensku friðargæsluliðarnir þrír sem slösuðust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl sögðust hafa verið að hlýða skipunum er þeir stóðu vörð um teppabúð sem yfirmaður þeirra var að versla í. Þremenningarnir komu heim í gær. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:53
Segjast hafa aflífað 11 Íraka Íröksku skæruliðasamtökin Her Ansar al-Sunna segjast hafa drepið ellefu menn úr þjóðvarðaliði Íraka sem þeir rændu í síðustu viku. Samtökin halda þessu fram á vefsíðu sinni í dag þar sem einnig eru birtar myndir af hinum meintu fórnarlömbum. Erlent 13.10.2005 14:52
Fleiri Bretar til Bagdad Bretar byrjuðu í morgun að flytja hluta herliðs síns frá Basra í Suður-Írak í átt til Bagdad, að ósk Bandaríkjamanna en í óþökk fjölmargra breskra þingmanna, þeirra á meðal þingmanna úr Verkamannaflokki Tonys Blairs forsætisráðherra. Mun friðvænlegra hefur verið í Basra en í Bagdad og mannfall þar hverfandi miðað við í höfuðborginni. Erlent 13.10.2005 14:52
Miklu magni sprengiefna stolið Nokkur hundruð tonn af sprengiefnum eru horfin úr vopnabúri Írakshers. Sprengiefnunum var stolið úr vopnabúri sem Alþjóða kjarnorkumálastofnunin hafði bent Bandaríkjaher sérstaklega á að hafa eftirlit með. Þjófar hafa ítrekað stolið sprengiefnum þar og hafa líkur verið leiddar að því að hluti efnisins hafi verið notaður í árásum vígamanna í Írak. Erlent 13.10.2005 14:51
49 lík írakskra hermanna finnast Lík fjörutíu og níu írakskra hermanna hafa fundist skammt norðaustur af Bagdad að sögn yfirvalda í Írak. Þrjátíu og sjö fundust í gær og tólf við viðbótar í morgun. Svo virðist sem skæruliðar hafi setið fyrir hermönnunum þar sem þeir voru á leið heim í leyfi. Erlent 13.10.2005 14:50
Búlgarar særðust í sprengingu Tveir búlgarskir hermenn særðust alvarlega þegar bílsprengja sprakk í Kerbala í suðurhluta Íraks í dag. Þetta er haft eftir talsmanni varnarmálaráðuneytis Búlgaríu. Erlent 13.10.2005 14:51
51 hermaður drepinn Lík 51 írasks hermanns fundust á afskekktum vegi í austurhluta Íraks í gær, skammt frá írönsku landamærunum Erlent 13.10.2005 14:51
Heilsugæsla sprengd upp Öflug sprengjuárás var gerð á heilsugæslustöð í Bagdad, höfuðborg Íraks. Að sögn talsmanns Bandaríkjahers særðist enginn í árásinni Erlent 13.10.2005 14:51
Bandarískur embættismaður drepinn Bandarískur embættismaður var drepinn í sprengjuárás í Írak í morgun. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, greindi frá þessu í tilkynningu fyrir stundu. Erlent 13.10.2005 14:50
Flutti 12 fanga í laumi frá Írak Bandaríska leyniþjónustan, CIA, hefur flutt tólf fanga í laumi út úr Írak á síðustu sex mánuðum til yfirheyrslna. Erlent 13.10.2005 14:51
13 hið minnnsta látnir Níu fórust þegar öflug bílsprengja sprakk í morgun við bandarísk-írakska herstöð í vesturhluta Íraks. Ekki færri en fimmtíu særðust í sprengingunni og segja talsmenn sjúkrahússins á staðnum ástæðu til að ætla að tala fallinna muni hækka. Auk þess féllu fjórir í sjálfsmorðsárás á eftirlitsstöð norður af Bagdad fyrir stundu. Erlent 13.10.2005 14:50
Írakskur maður hálshöggvinn Talsmenn hers Ansars al-Sunna, herskárra samtaka, lýstu því yfir í dag að írakskur samverkamaður Bandaríkjahers hefði verið hálshöggvinn í dag og settu myndir á Netið því til staðfestingar. Manninum var rænt í borginni Mósúl í norðurhluta Íraks. Erlent 13.10.2005 14:50
Grátbiður um hjálp Margaret Hassan, sem situr í haldi mannræningja í Írak, grátbiður bresk stjórnvöld að kalla hersveitir sínar heim frá Írak á myndbandsupptöku sem arabísk sjónvarpsstöð sýndi í dag. Erlent 13.10.2005 14:50
Átta ára dómur fyrir misþyrmingar Bandaríski hermaðurinn Ivan Fredericks var í gær dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir að misþyrma föngum í fangelsinu Abu Ghraib í Írak. Fredericks, háttsettasti hermaðurinn til að verða ákærður fyrir fangamisþyrmingar, játaði sök í fyrradag. Erlent 13.10.2005 14:50
Breskir hermenn á átaksvæði Breska ríkisstjórnin ákvað að senda 850 breska hermenn inn á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers í Írak svo Bandaríkjamenn geti sótt fram gegn íröskum vígamönnum af meiri krafti. Bretarnir taka sér stöðu vestur af Bagdad á svæði þar sem súnnímúslimar hafa gert daglegar árásir á bandaríska hermenn og íraska lögreglumenn. Erlent 13.10.2005 14:50
Írakar skamma Sameinuðu þjóðirnar Sameinuðu þjóðirnar standa ekki undir væntingum þegar kemur að aðstoð við undirbúning kosninganna í Írak sem fram eiga að fara í janúar. Þetta sagði Hoshyar Zebari, utanríkisráðherra í írösku bráðabirgðastjórninni. Erlent 13.10.2005 14:49
Fjölskylda fórst í loftárás Sex manna fjölskylda lét lífið þegar bandarískir hermenn skutu eldflaugum að miðborg Falluja í fyrrinótt. Fólkið hafði að sögn nágranna sinna nýlega snúið aftur heim eftir að hafa flúið borgina um nokkurra daga skeið vegna hættunnar sem þar ríkir. Erlent 13.10.2005 14:49
Bretar inn á svæði Bandaríkjahers Bretar hafa skilning á vanda Bandaríkjahers í Írak og líta vinsamlegum augum á beiðni þeirra um að breskir hermenn taki sér stöðu á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers svo Bandaríkjamenn geti ráðist af meiri krafti gegn vígamönnum. Þetta sagði Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands. Erlent 13.10.2005 14:49
Yfirmanni góðgerðasamtaka rænt Mannræningjar rændu yfirmanni alþjóðlegu góðgerðasamtakanna Care International í Írak í dag. Margaret Hassan hefur búið í Írak í þrjá áratugi en ekki er vitað hvar hún er nú niðurkomin. Erlent 13.10.2005 14:49
Hersetuliðið í 5 ár til viðbótar Engin leið er að kalla hersetuliðið í Írak heim innan fimm ára að mati virtustu sérfræðinga Bretlands í hermálum. Fyrst þá er nokkur von til þess að írakskar öryggissveitir geti tryggt lágmarksöryggi borgara landsins. Erlent 13.10.2005 14:49
Yfir 100 látnir eða slasaðir Yfir hundrað manns eru látnir eða slasaðir eftir sprengjuárásir skæruliða á höfuðstöðvar þjóðavarnarliðsins í Írak í morgun. Sex sprengjum var varpað á híbýli þjóðavarnarliðsins með fyrrgreindum afleiðingum. Erlent 13.10.2005 14:49
Fleiri breskir hermenn til Íraks? Bandaríkjamenn hafa farið þess á leit við bresk stjórnvöld að þau sendi aukinn herafla til Íraks. Geoff Hoon, varnarmálaráðherra Bretlands, greindi frá því á breska þinginu í dag að beiðni þessa efnis hafi borist ráðuneytinu í síðustu viku en ákvörðun um hvort farið verði að óskum Bandaríkjamanna liggi ekki fyrir. Erlent 13.10.2005 14:48
Herinn rukkaði særðan hermann Tyson Johnson III lá enn þá á sjúkrahúsi þar sem hann var að jafna sig af sárum sem hann hlaut í Írak þegar honum barst bréf frá hernum þar sem hann var rukkaður um andvirði tæpra 200 þúsund króna. Upphæðin var sú sama og skráningarbónus sem hann fékk fyrir að skuldbinda sig til þriggja ára herþjónustu. Erlent 13.10.2005 14:48