Erlent

Búlgarar særðust í sprengingu

Tveir búlgarskir hermenn særðust alvarlega þegar bílsprengja sprakk í Kerbala í suðurhluta Íraks í dag. Þetta er haft eftir talsmanni varnarmálaráðuneytis Búlgaríu. Sprengjan sprakk þegar bílalest sem Búlgararnir voru í fór um borgina. Sex búlgarskir hermenn hafa látist í Írak síðan innrásin var gerð á síðasta ári. 70% búlgörsku þjóðarinnar eru andsnúin stríðinu að sögn Reuters-fréttastofunnar. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×