Erlent

Írökskum ráðherra sýnt banatilræði

Fjármálaráðherra Íraks var sýnt banatilræði þegar öflug bílsprengja sprakk við hús hans í miðborg Bagdad í dag. Ráðherrann, Adel Abdul Mahdi, sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna fyrir stundu að hann hafi ekki verið heima þegar sprengjan sprakk og því væri hann heill á húfi. Einn lífvarða Mahdis og einn lögreglumaður létust hins vegar í sprengingunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×