Erlent

Þrír breskir hermenn létust í Írak

Þrír breskir hermenn létu lífið þegar ráðist var á þá. Hermennirnir voru meðlimir hersveitar sem var nýlega flutt frá bresku herstjórnarsvæðunum við Basra inn á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers þar sem hefur verið mun meira um árásir en á breska svæðinu. Flutningur bresku hermannanna á bandaríska herstjórnarsvæðið mæltist illa fyrir í Bretlandi þar sem ljóst þótti að þeir yrðu í mun meiri hættu þar en á tiltölulega friðsælu breska herstjórnarsvæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×