Erlent

49 lík írakskra hermanna finnast

Lík fjörutíu og níu írakskra hermanna hafa fundist skammt norðaustur af Bagdad að sögn yfirvalda í Írak. Þrjátíu og sjö fundust í gær og tólf við viðbótar í morgun. Svo virðist sem skæruliðar hafi setið fyrir hermönnunum þar sem þeir voru á leið heim í leyfi. Hermennirnir voru neyddir til að leggjast á jörðina og voru í kjölfarið skotnir til bana. Talsmaður innanríkisráðuneytis Íraks segir ljóst að hermennirnir hafi verið teknir af lífi. Brunnar rústir smárúta, sem fluttu hermennina heim á leið, fundust skammt frá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×