Erlent

Segjast hafa aflífað 11 Íraka

Íröksku skæruliðasamtökin Her Ansar al-Sunna segjast hafa drepið ellefu menn úr þjóðvarðaliði Íraka sem þeir rændu í síðustu viku. Samtökin halda þessu fram á vefsíðu sinni í dag þar sem einnig eru birtar myndir af hinum meintu fórnarlömbum. Að sögn Reuters-fréttastofunnar er ekki hægt að fullyrða út frá þeim myndum hvort um þjóðvarðaliðanna sé að ræða en þeim var rænt rétt suður af Bagdad síðastliðinn fimmtudag. Skæruliðarnir segjast hafa afhöfðað einn mannanna en skotið hina tíu. Her Ansar al-Sunna hefur rænt og aflífað nokkurn fjölda manna frá því Íraksstríðið hófst fyrir einu og hálfu ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×