Vísindi

Fréttamynd

Reikniþraut leyst eftir 120 ár

Lið stærðfræðinga í Bandaríkjunum hefur leyst 120 ára gamla stærðfræðiráðgátu. Fjöldi vísindamanna skilur samt sem áður ekki um hvað hún snýst. Lausnin er svo flókin að handskrifuðu niðurstöðurnar myndu þekja alla Manhattan eyju í New York. Það jafngildir plássi á hörðum diski fyrir 45 daga samfellda spilun tónlistar á MP3 formi.

Erlent
Fréttamynd

Jarðskorpan horfin fyrir sunnan Ísland

Skorpa jarðar er horfin á mörgþúsund ferkílómetra svæði á Mið-Atlantshafshryggnum, suður af Íslandi. Vísindamenn kunna enga skýringu á þessu fyrirbæri. Jarðskorpan á hafsbotni er yfirleitt um átta kílómetra þykk. Á umræddu svæði er nú opið niður í kviku og vísindamenn lýsa þessu sem risastóru opnu sári á jörðinni. Breskir vísindamenn eru nú í leiðangri til þess að kanna þetta sár.

Innlent
Fréttamynd

Erfðabreyttar moskítóflugur þróaðar gegn malaríu

Vísindamenn hafa þróað og ræktað erfðabreyttar moskítóflugur sem bera í sér mótefni gegn malaríu. Vonast er til að hægt verði að koma þessum flugum út í umhverfið og að þær taki yfir þær flugur sem bera með sér malaríu, en moskítóflugur eru helstu smitberar malaríu.

Erlent
Fréttamynd

Eldri gerðir berklabóluefnis betri

Eldri gerðir berklabóluefnis virðast virka betur er þær nýrri. Þetta segja franskir læknar. Breytingar sem gerðar hafa verið á erfðaþáttum bóluefnisins til að reyna að draga úr hliðarverkunum þess hafa einnig leitt til þess að það virkar verr. Rannsakendur við Lois Pasteur-stofnunina vilja nú gera tilraunir með eldri gerðir bóluefnis og taka það aftur í notkun.

Erlent
Fréttamynd

Íhuga að malbika tunglið

Vísindamenn kanna nú mögulega hættu sem geimförum stafar af því að anda að sér tunglryki. Rannsókn bendir til þess að smæstu agnir tunglryks gætu verið eitraðar en sannreyna á kenninguna með tilraunum á músum. NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna hefur sett saman rannsóknarteymi sem á að kanna málið og komast að niðurstöðu fyrir fyrirætlaða tunglferð árið 2020.

Erlent
Fréttamynd

Sígarettureykur hefur mismunandi áhrif á kynþætti

Reykingar gætu valdið öðruvísi skaða á blökkumönnum en hvítum, niðurstöður bandarískrar rannsóknar benda til þess. Rannsóknin sem birt er í læknatímaritinu Chest tók til 220 barna með astma sem anda þurftu að sér sígarettureyk. Meira en helmingur barnanna voru blökkumenn. Rannsakendur mældu magn kótínín, sem er efni sem líkamin breytir nikótíni í.

Erlent
Fréttamynd

Frosið vatn á Mars

Evrópskir vísindamenn hafa fundið heilmikið jökulsvæði á suðurpóli Mars. Ef það bráðnaði er talið að vatn myndi þekja stóran hluta plánetunnar. Það er geimfar á braut um Mars sem hefur tekið myndir af ísbreiðunum. Það eru vísindamenn á vegum Evrópusku geimferðastofnunarinnar sem kynntu niðurstöðurnar og birtu í dag. Rannsóknin var gerð með tækni frá Bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, og ítölskum aðilum.

Erlent
Fréttamynd

Hjartahnoð mikilvægara en „munn við munn“

Sjúkraliðar mæla nú með því að fólk sleppi því að beita „munn við munn" aðferðinni við fyrstu hjálp, hún geri lítið gagn sé henni ekki beitt fullkomlega rétt. Þeir segja að hjartahnoð sé alltaf jafn góð leið og oftast betri. Rannsóknir sýna að minna en þriðjungi þeirra sem þurfa aðstoð sé hjálpað af vegfarendum. Rannsakendur segja líklegt að það sé vegna þess að mörgum býður við því að beita „munn við munn" aðferðinni á ókunnuga. Þá segja þeir að þegar vegfarendur hjálpi taki „munn við munn" aðferðin oft mikilvægan tíma frá lífsnauðsynlegu hjartahnoði.

Erlent
Fréttamynd

Ný hlébarðategund

Erfðavísindamenn hafa úrskurðað að hlébarðar sem finnast á eyjunum Súmötru og Borneó séu sérstök tegund. Þar til nú hafa hlébarðarnir verið taldir til annarar tegundar sem heldur til á meginlandi Suðaustur-Asíu. Nú segja vísindamenn að leiðir þessara tveggja tegunda hafi skilist fyrir meira en milljón árum síðan og hafi síðan þróast aðskilið. Hlébarðarnir eru stærstu rándýrin á Borneó og geta orðið álíka stórir og smávaxin pardusdýr. Það sem fyrst gaf vísbendingu um að sennilega væri um aðskildar tegundir að ræða var að munstrið á feldi þeirra er töluvert ólíkt því sem klæðir frændur þeirra á meginlandinu.

Erlent
Fréttamynd

Táningar sem fara í megrun líklegri til að þyngjast til lengri tíma

Táningar sem fara í megrun til að missa nokkur kíló eru líklegri en aðrir að sleppa morgunverði og til að borða á milli mála. Það gæti verið hluti skýringar þess að þessir táningar eru líklegri til þess að þyngjast til lengri tíma en þeir jafnaldrar þeirra sem ekki fara í megrun.

Erlent
Fréttamynd

Auknar líkur á dreng taki getnaður langan tíma

Hollenskir vísindamenn sem hafa ferið yfir gögn meira en 5 þúsund kvenna sem áttu börn á árunum 2001-2003 hafa dregið þá ályktun að því lengri tíma sem það tekur konu að verða ólétt þeim mun meiri líkur eru á að barnið verði drengur. Af þeim tæplega 500 konum sem voru lengur en ár að reyna að geta barn áttu 58% þeirra drengi á meðan hinar sem urðu ófrískar á styttri tíma áttu í 51% tilfella drengi, sem er innan skekkjumarka. Vísindamennirnir hafa því dregið þá ályktun fyrir pör sem geta börn með náttúrulegum hætti aukist líkurnar á því að þau eignist dreng um 4% á hverju því ári sem líður áður en þeim tekst að geta barn. Tekið var tillit til breyta á borð við reykingar, áfengisneyslu og óreglulegan tíðahring þegar niðurstöðurnar voru fengnar. Vísindamennirnir segja þetta geta skýrt hvers vegna fleiri drengir fæðast en stúlkur í heiminum á ári hverju en meðalhlutfallið er 105 drengir á hverjar 100 stúlkur þrátt fyrir að hlutfall X og Y litninga í sæði karla sé jafnt.

Erlent
Fréttamynd

Geislavirkni ástæða vatnsgosa á tungli

Vatnsgosin sem verða á yfirborði ístunglsins Enceladus sem sveimar á sporbaug um Satúrnus skýrast af bráðnun sem varð vegna geislavirkni skömmu eftir að tunglið myndaðist. Það kom vísindamönnum mikið á óvart þegar þeir uppgötvuðu vatnsgosin árið 2005 og þeir veltu mikið fyrir sér hvað gæti ollið. Nú hafa menn fundið út að vegna þess hversu mikil geislavirkni var á tunglinu skömmu eftir að það myndaðist þá er möttull þess hægsjóðandi vatn sem brýst út í umræddum gosum.

Erlent
Fréttamynd

Megrunaraðgerðir leiða til minnisleysis

Megrunarskurðaðgerðir geta leitt til minnisleysis. Þetta er niðurstaða bandarískrar rannsóknar. Heilkennið sem rannsóknin hefur leitt í ljós hefur áhrif á bæði taugakerfið og heilann og getur leitt til ruglings og vanhæfni til að samhæfa hreyfingar.

Erlent
Fréttamynd

Geta læknað unglingaveikina

Vísindamenn segjast hafa fundið hormónið sem veldur skapsveflum táninga, unglingaveikinni svokölluðu. Það er lið vísindamanna við New York-háskóla sem þessu halda fram. Hormónið veldur eirðarleysi og kvíða en svo minnka áhrif þess með aldrinum.

Erlent
Fréttamynd

Ást verður hluti af leiknum

Hinn þaulreyndi leikjahönnuður Peter Molyneux hefur tilkynnt að hann vilji að ást sé hluti af næsta leik sem hann hannar, Fable 2. „Þetta er djarfa áætlunin mín - ég ætla þér að upplifa eitthvað í Fable sem þú sem tölvuleikjaspilari hefur aldrei upplifað áður.“ lýsti Molyneux yfir.

Erlent
Fréttamynd

Hvar snjóar mest hér á land?

Á Íslandi snjóar mest í suðurhlíðum Mýrdalsjökuls, á Öræfajökli og sunnan til á Vatnajökli. Snjókomutíðni er mjög háð hæð yfir sjó og hitafari. Snjór er mun meiri og þrálátari á hálendi en láglendi.

Innlent
Fréttamynd

Alþjóðlegur jarðfræðigagnagrunnur í smíðum

Jarðfræðingar um víða veröld vinna nú að því að búa til heildstæðan gagnagrunn um berg um allan heim. Þetta er í fyrsta skipti sem upplýsingarnar eru settar í samhengi með þessum hætti. Verkefnið sem ber nafnið OneGeology mun svo birta gagnagrunninn á vefnum þannig að heimsbyggðin geti öll nýtt sér upplýsingarnar.

Erlent
Fréttamynd

Alparjúpur eru allt of stressaðar

Villtu dýralífi í Ölpunum stafar hætta af vetraríþróttum sem þar eru stundaðar í stórum stíl. Vísindamenn hafa komist að þeirri niðustöðu að svartar rjúpur sem eiga heimkynni sín í Ölpunum hafi mælst með óvenju hátt hlutfall streituhormóns í blóði sínu. Þá hefur breytt loftslag einnig áhrif á rjúpurnar.

Erlent
Fréttamynd

Hvað orsakar offitu barna?

Að minnsta kosti eitt af hverjum fimm börnum í Bandaríkjunum er of feitt og tala þeirra sem berjast við offitu fer stöðugt vaxandi. Á síðustu tveimur áratugum hefur of feitum börnum fjölgað um helming og tala þeirra sem eru mjög feit hefur tvöfaldast. Hlutfall of þungra barna hér á Íslandi er aðeins lægra en hefur þó farið vaxandi undanfarin ár. Nýleg könnun leiddi í ljós að íslensk börn eru meðal þeirra þyngstu í Evrópu.

Innlent
Fréttamynd

Laug til um doktorsgráðu

Alfræðivefritið Wikipedia er í vandræðum eftir að upp komst að einn helstu höfunda þess hefur löngum logið til um nafn sitt og þóst vera með doktorsgráðu, sem hann er ekki með. Höfundurinn, sem er þekktur undir notendanafninu Essjay hefur löngum sagst vera prófessor í trúarbragðafræðum við einkaháskóla þegar í raun er hann Ryan Jordan, 24 ára háskólanemi frá Kentucky.

Erlent
Fréttamynd

Ætla að rannsaka möttul jarðarinnar

Vísindamenn frá háskólanum í Cardiff í Bretlandi lögðu í dag af stað í leiðangur til þess að kanna hafsbotninn á Atlantshafinu en á staðnum sem þeir ætla að skoða vantar jarðskorpuna. Möttull jarðarinnar er þar óvarður en svæðið, sem er mörg þúsund ferkílómetrar að stærð, uppgötvaðist nýlega.

Erlent
Fréttamynd

Skordýraeitur ógnar regnskógum Kosta Ríka

Skordýraeitur ógnar nú mjög vernduðum regnskógum í Kosta Ríka, jafnvel þó að því sé dreift í margra kílómetra fjarlægð frá skógarjaðrinum. Þetta er vegna þess að eitrið leysist upp í rigningarvatni, gufar upp og fellur svo strax aftur sem regn í skógunum. Þetta kemur fram í tímaritinu Enviromental Science & Technology. Meðal afleiðinga þessa er að froskar og skriðdýrategundir í útrýmingarhættu drepast úr eitrinu.

Erlent
Fréttamynd

Einstakar myndir af Satúrnusi

Geimfarið Cassini hefur sent til jarðar einstakar myndir af hringum Satúrnusar. Myndirnar eru teknar í um milljón kílómetra fjarlægð. Á myndunum má meðal annars sjá fylgitunglin Dione og Enceladus, sem hanga eins og örlitlir hvítir dílar út við sjóndeildarhringinn. Enceladus

Erlent
Fréttamynd

Risabarn fæddist í Kína

Kínversk kona ól á föstudag barn sem er það þyngsta sem komið hefur í heiminn í þessu fjölmennasta landi heims síðan 1949. Drengurinn sem enn hefur ekki fengið nafn fæddist 6,25 kíló eða 25 merkur. Móður og barni heilsast vel. Móðirin er strætóbílstjóri og gamall íþróttamaður og er engin smásmíð sjálf, hún vegur 120 kíló.

Erlent
Fréttamynd

Tunglmyrkvi sást víða um heim

Tunglmyrkva varð vart víða um heim í gærkvöldi og nótt. Tunglið varð þá almyrkvað í fyrsta sinn í tæp þrjú ár. Tunglmyrkvinn sást illa í höfuðborginni í gærkvöldi þar sem var skýjað en sást vel á Norðurlandi. Almyrkvinn hófst um stundarfjórðungi í ellefu í gærkvöldi og lauk rétt um miðnætti.

Erlent
Fréttamynd

Almyrkvi á tungli í kvöld

Ástæða er til að hvetja fólk til að horfa til himins í kvöld upp úr átta en þá hefst almyrkvi á tungli. Myrkvin verður algjör upp úr ellefu í kvöld. Myrkvun tunglsins er algjör í allri Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku og eins í austurhluta Norður-Ameríku.

Erlent
Fréttamynd

Fjögur stór vötn undir íshellunni

Vísindamenn hafa uppgötvað fjögur stór stöðuvötn undir íshellu Suðurskautslandsins. Vísindamennirnir segja að vötnin hafi mikið að segja um hversu hratt íshellan brotnar og breytist í borgarísjaka sem rekur á haf út. Þetta kemur fram í vísindatímaritinu Nature. Þeir segja líka að það sé mikilvægt að skilja eðli samspils vatnanna og íssins til að geta spáð nákvæmar fyrir um afleiðingar loftslagsbreytinga.

Erlent
Fréttamynd

Simpansar veiða með vopnum

Sést hefur til simpansa í Senegal sem nota spjót til að veiða sér til matar. Alls hafa vísindamenn skásetta á þriðja tug dæma um þetta. Simpansarnir nota trjágreinar sem þeir tálga með tönnunum. Vísindamennirnir segja þetta merkilega uppgötvun sem geti að einhverju leyti varpað nýju ljósi á þróun mannkyns.

Erlent