Fótbolti

Lands­liðs­maður lést í fjögurra bíla á­rekstri

Sindri Sverrisson skrifar
Nikola Pokrivac lék á sínum tíma 15 leiki fyrir króatíska landsliðið. Hann lést í bílslysi í gær.
Nikola Pokrivac lék á sínum tíma 15 leiki fyrir króatíska landsliðið. Hann lést í bílslysi í gær. Samsett/Getty

Sorg ríkir í króatískum fótbolta eftir að fyrrverandi landsliðsmaður þjóðarinnar, hinn 39 ára gamli Nikola Pokrivac, lést í bílslysi í gær.

Samkvæmt króatískum miðlum átti slysið sér stað í bænum Karlovac. Um fjögurra bíla árekstur var að ræða og og auk Pokrivacs lést bílstjóri annars bíls einnig. Sá var með unga dóttur sína í bílnum en hún slapp án alvarlegra meiðsla.

Pokrivac var á leiðinni heim af æfingu ásamt þremur liðsfélögum sínum sem allir slösuðust, þar af tveir lífshættulega. Samkvæmt 24 Sata er annar þeirra núna úr lífshættu.

Þar segir einnig að 24 milljónum evra hafi verið varið í gerð gatnamótanna þar sem slysið varð. Þau hafi verið opnuð í júlí 2023 en nú hafi á einni viku orðið þar tvö alvarleg umferðarslys.

Þrátt fyrir að hafa spilað á stærstu sviðum fótboltans, eins og Meistaradeild Evrópu og EM landsliða, unnið króatísku deildina og bikarinn, þá var ástríðan fyrir fótbolta enn til staðar hjá Porkivac sem var orðinn leikmaður 4. deildarliðs NK Vojnic í Króatíu.

Hann lék alls 15 leiki fyrir króatíska landsliðið og með félagsliðum á borð við Dinamo Zagreb, Monaco og RB Salzburg.

Króatískir miðlar fjalla einnig um það að barátta Pokrivac við krabbamein, sem hann greindist fyrst með í ágúst 2015 og svo tvisvar aftur, hafi vakið mikla athygli. Hann hafi lofað sjálfum sér því að berjast í gegnum veikindin fyrir dóttur sína. Eftir að hafa verið í hléi frá fótbolta vegna krabbameinsins hóf Pokrivac að spila fótbolta að nýju haustið 2021.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×