Haukur og Donni koma inn í hópinn Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Ungverjum á eftir. Handbolti 16. janúar 2024 17:35
Sérsveitinni hent út úr vagninum fyrir of góða stemningu Stemningin hjá stuðningsmönnum íslenska landsliðsins í handbolta, sem ætla að láta vel í sér heyra á leiknum við Ungverjaland á EM í kvöld, var hreinlega of mikil fyrir þýskan sporvagnsstjóra. Handbolti 16. janúar 2024 16:09
Ólympíuhöllin rýmd með hraði Uppi varð fótur og fit í Ólympíuhöllinni í München nú rétt fyrir fjögur er brunavarnarbjöllur fóru að klingja. Handbolti 16. janúar 2024 16:06
„Þá verður þetta aðeins persónulegra“ Fyrirliðinn Aron Pálmarsson segir að leikur við Ungverjaland sé „aðeins persónulegri“ en aðrir leikir á EM í handbolta. Fram undan sé hörkuleikur í kvöld sem jafnframt sker úr um hvaða lið endar á toppi C-riðils og fer með fullt hús stiga í milliriðla. Handbolti 16. janúar 2024 15:00
Spennan magnast með hverri mínútu meðal Íslendinganna í München Ísland spilar afar mikilvægan leik á Evrópumótinu í handbolta á móti Ungverjalandi í kvöld og getur með sigri tryggt sér óskastöðu í milliriðlinum. Handbolti 16. janúar 2024 14:56
Færeyingar eiga tvo markahæstu leikmenn EM Færeyska handboltalandsliðið er á heimleið frá Evrópumótinu í handbolta í Þýskalandi eftir tap fyrir Póllandi í gær. Handbolti 16. janúar 2024 14:31
Mögulega dregið um hvort Ísland fari áfram Ef að Serbía vinnur Svartfjallaland í kvöld, 30-29, og Ísland tapar fyrir Ungverjalandi 27-26, þá enda Ísland og Serbía nákvæmlega jöfn í 2.-3. sæti C-riðilsins á EM karla í handbolta. Handbolti 16. janúar 2024 13:38
„Stríð í sextíu mínútur á móti þessum turnum“ Ýmir Örn Gíslason, einn af strákunum okkar á EM í handbolta, fær að glíma við einn allra erfiðasta línumann heims í kvöld þegar hann tekst á við hinn tröllvaxna Bence Bánhidi. Handbolti 16. janúar 2024 13:30
Besta kvennalið Evrópu síðustu ár í miklum fjárhagsvandræðum Norska handboltaliðið Vipers hefur lengi verið í fremstu röð í evrópska kvennahandboltanum en núna er peningastaða félagsins mjög slæm. Handbolti 16. janúar 2024 13:01
Nú er nóg komið af ungversku svekkelsi Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Ungverjalandi í kvöld í lokaleik sínum í riðlakeppni Evrópumótsins í handbolta í Þýskalandi. Handbolti 16. janúar 2024 12:30
Þegar ég vinn í dag þá bætir það ekki upp fyrir það sem gerðist Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, segir að glíman við Ungverjaland á EM í kvöld sé úrslitaleikur. Hann líti hins vegar ekki á hana sem einhvers konar persónulegt uppgjör, eftir sárar minningar frá fyrri viðureignum og þá sérstaklega einni. Handbolti 16. janúar 2024 12:02
Gidsel skuldar Landin bjór fyrir allar stoðsendingarnar Það var skiljanlega létt yfir leikmönnum danska karlalandsliðsins í handbolta eftir sigurinn stóra á Portúgal á EM í Þýskalandi í gær. Handbolti 16. janúar 2024 11:31
EM í dag: Nýtt lag fyrir vörnina og verður Haukur leynivopnið? EM í dag fer ítarlega yfir stöðu mála á EM það er allt undir hjá strákunum okkar í kvöld. Sigur og liðið er í frábærum málum en tap gæti þýtt heimför. Handbolti 16. janúar 2024 11:01
Sonurinn með væntingar þjóðarinnar á herðunum Guðjón „Gaupi“ Guðmundsson, mesti handboltasérfræðingur þjóðarinnar, mætti til Einars Bárðarsonar í hlaðvarpsþáttinn Einmitt og jós af brunnum visku sinnar. Handbolti 16. janúar 2024 10:23
Besta sætið: Það er ekki hægt að dekka þennan mann Ísland spilar við Ungverjaland á EM í kvöld og eins og svo oft áður snýst umræðan mikið um hvernig við eigum að stoppa línumann Ungverja, Bence Bánhidi. Handbolti 16. janúar 2024 09:30
Íslensku strákarnir hlaupa mest á Evrópumótinu Íslenska þjóðin veit vel að strákarnir okkar í handboltalandsliðnu eru duglegir og gefa allt sitt í leikina. Dugnaður þeirra kemur líka vel fram í opinberri tölfræði mótsins. Handbolti 16. janúar 2024 09:01
Nýorðnir pabbar á EM: „Auðvitað vildi maður knúsa hann af og til“ Elliði Snær Viðarsson varð pabbi í fyrsta sinn í byrjun síðasta mánaðar, og Aron Pálmarsson í annað sinn nokkrum dögum áður. Landsliðsmennirnir ræddu um hvernig væri að vera pabbi ungabarns á stórmóti, fyrir æfingu á EM í handbolta í München. Handbolti 16. janúar 2024 08:01
„Væri vont að láta þá kasta okkur út aftur og mæta með skottið á milli lappanna“ „Vonandi náum við að hafa hátt tempó og hlaupa dálítið með þá. Ég hlakka til að takast á við þetta,“ segir Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handbolta, fyrir slaginn mikla við Ungverjaland annað kvöld. Hann flytur til Ungverjalands í sumar. Handbolti 15. janúar 2024 22:01
Danmörk, Svíþjóð og Slóvenía með fullt hús stiga í milliriðil Danmörk valtaði yfir Portúgal á EM karla í handbolta og fer því í milliriðil með fullt hús stiga. Svíþjóð vann nauman eins marks sigur á Hollandi og fer einnig með fullt hús stiga í milliriðil. Sömu sögu er að segja af Slóveníu sem vann Noreg. Handbolti 15. janúar 2024 21:26
Georgía og Tékkland með sínu fyrstu sigra á EM Georgía og Tékkland unnu í dag sína fyrstu leiki á Evrópumótinu í handbolta. Georgía lagði Bosníu & Hersegóvínu á meðan Tékkland lagði Grikkland. Sigrarnir skipta þó litlu þar sem engin af liðunum gátu komist áfram í 8-liða úrslit. Handbolti 15. janúar 2024 19:11
Ævintýri frænda vorra Færeyinga á Evrópumótinu á enda Færeyjar lutu í lægra haldi, 32-28, þegar liðið mætti Póllandi í lokaumferð D-riðils á Evrópumótinu í handbolta karla í Mercedez Benz-höllinni í Berlín í kvöld. Handbolti 15. janúar 2024 16:30
Björgvin Páll átti bestu markvörslu dagsins á EM Björgvin Páll Gústavsson stimplaði sig inn í Evrópumótið í leik tvö og átti mikinn þátt í fyrsta sigri íslenska landsliðsins á EM í handbolta 2024. Handbolti 15. janúar 2024 13:46
„Ég er ekki búinn að sjá planið hjá Snorra“ Íslenska handboltalandsliðið er að taka sín fyrstu skref undir stjórn landsliðsþjálfarans Snorra Steins Guðjónssonar. Liðið hefur náð í þrjú stig af fjórum mögulegum í fyrstu tveimur leikjunum á EM í Þýskalandi en liðið hefur ekki verið sannfærandi í þessum leikjum og í raun heppið að vera með þessi stig. Handbolti 15. janúar 2024 13:31
Sungið fyrir Grindavík í München Íslendingarnir í München, sem eru mættir til að styðja strákana okkar, voru einnig með hugann við Grindavík og Grindvíkinga í gær. Handbolti 15. janúar 2024 12:47
Sola stendur þétt við bakið á skúrki Svartfellinga Landsliðsþjálfari Svartfjallalands í handbolta, Vlado Sola, neitaði að kenna Luka Radovic um tapið fyrir Íslandi, 30-31, í C-riðli Evrópumótsins í gær. Svartfellingar eru úr leik eftir tvö naum töp í fyrstu tveimur leikjum sínum á EM. Handbolti 15. janúar 2024 12:30
Jólagjafir, tölvur og nóg af nærbuxum í töskunni Strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu eru margir orðnir býsna vanir því að verja janúar á hóteli – á stórmóti. Helsta vopn þeirra til að drepa tímann með á vonandi löngu móti í Þýskalandi eru Ipadar og aðrar tölvur. Handbolti 15. janúar 2024 12:01
EM í dag: Rosalegt æðiskast og óþolandi tæpur sigur Fjörið heldur áfram á EM í handbolta og í nýjasta þætti EM í dag voru Henry Birgir Gunnarsson og Sindri Sverrisson enn að jafna sig eftir spennutryllinn í Ólympíuhöllinni í München, þegar Ísland vann Svartfjallaland. Handbolti 15. janúar 2024 11:01
„Þetta er sami grauturinn í annarri skál“ Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Leipzig í Þýskalandi, segist ekki sjá miklar breytingar á leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta frá síðustu mótum. Handbolti 15. janúar 2024 10:00
Ísland komið áfram áður en leikur hefst? Það eru ýmsir möguleikar í stöðunni fyrir lokadaginn í C-riðli EM karla í handbolta á morgun. Örlögin eru í höndum Íslands sem með sigri á Ungverjum stæði uppi með fullkomna draumaniðurstöðu en ef allt fer á versta veg er liðið fallið úr keppni. Handbolti 15. janúar 2024 08:31
„Hefðum svo auðveldlega getað verið með núll stig eftir þessa tvo leiki“ Ísland vann Svartfjallaland 31-30 á EM í handbolta í Munchen í gær. Tæpara mátti það ekki standa og var leikurinn gerður upp í hlaðvarpinu Besta sætið í gærkvöldi. Handbolti 15. janúar 2024 08:01