Lög og regla

Fréttamynd

Fer fyrir Mannréttindadómstóllinn

Mannréttindadómstóllinn í Staussburg hefur samþykkt að taka upp mál Sigurðar Guðmundssonar sem dæmdur var í eins og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti fyrir að verða barni að bana þegar hann starfaði sem dagpabbi.

Innlent
Fréttamynd

Árekstur strætisvagns og jeppa

Strætisvagn og jeppabifreið lentu í árekstri í Vesturbænum fyrir stundu. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík var áreksturinn, sem átti sér stað á mótum Dunhaga og Tómasarhaga, minniháttar og urðu engin slys á fólki.

Innlent
Fréttamynd

Ofbeldismanna leitað

Lögreglan í Reykjavík leitar enn þriggja til fjögurra manna sem börðu tvo menn til óbóta í miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt. Árásirnar virðast báðar hafa verið tilefnislausar og þekkja fórnarlömbin ekkert til árásarmannanna.

Innlent
Fréttamynd

Ákvörðun Hæstaréttar áhyggjuefni

Sveitarstjóri Grímsness- og Grafningshrepps segir viðurkenningu Hæstaréttar, á lögheimili fjögurra manna fjölskyldu í húsi á frístundarbyggðarsvæði Bláskógarbyggðar, valda sér miklum áhyggjum. 

Innlent
Fréttamynd

Borgarstjóri fagnar Kjarvalsmáli

Borgarstjóri segir gott að óvissu um meinta gjöf Kjarvals til borgarinnar verði eytt. Mál barnabarns Kjarvals gegn borginni verður þingfest í héraðsdómi á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Kaupa 25 nýja bíla

Gert er ráð fyrir að embætti Ríkislögreglustjóra kaupi 25 nýja lögreglubíla á þessu ári og eyði til þess um hundrað milljónum króna.

Innlent
Fréttamynd

Stefnir borginni vegna málverka

Barnabarn Jóhannesar Kjarvals hefur stefnt Reykjavíkurborg fyrir að hafa tekið yfir fimm þúsund verk meistarans ófrjálsri hendi. Málið verður þingfest eftir helgi.

Innlent
Fréttamynd

Réttindalaus á ofsahraða

Ökumaður reyndi að komast undan lögreglumönnum um fjögurleytið í nótt, en hann ók á ofsahraða eftir Kringlumýrarbrautinn en eftir eftirför í einhvern tíma lauk ökuferð hans í Miðtúninu. Kom þá í ljós að ökumaðurinn var án réttinda, hafði verið sviptur þeim fyrr og brást við með hraðakstri og undanbrögðum þegar hann mætti lögreglubíl.

Innlent
Fréttamynd

Óskað eftir skýringum

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur farið þess á leit við íslenska ríkið að það skili greinargerð um mál karlmanns sem var dæmdur fyrir að verða barni að bana með því að hrista það. Maðurinn var dæmdur til fangelsisvistar eftir að barn sem hann og kona hans höfðu í umsjá sinni lést.

Innlent
Fréttamynd

Einn af sexmenningunum handtekinn

Sex farþegar í morgunvél Iceland Express til Kaupmannahafnar í gær voru færðir lögreglu við komuna til Kastrup-flugvallar vegna mikilla óláta um borð. Einn karlmaður var svo handtekinn. Fólkið, tvær konur og fjórir karlar, var að ferðast saman en þegar um borð í vélina var komið hótuðu þau hvort öðru og áhöfninni líkamsmeiðingum.

Innlent
Fréttamynd

Yfir fimmtíu óku of hratt

Mikil umferð var um Blönduós um helgina og hafði lögreglan á svæðinu varla undan við að stoppa ökumenn fyrir hraðakstur. "Fólk verður að fara að gera sér grein fyrir því á hvaða svæði það er að keyra," segir Vilhjálmur Stefánsson, lögreglumaður á Blönduósi. "Það er að keyra á besta hraðahindrunarsvæði landsins."

Innlent
Fréttamynd

Erill hjá lögreglunni í nótt

Svo virðist sem rigningarsuddinn hafi farið illa í þá sem voru að skemmta sér í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt. Töluverður erill var hjá lögreglu vegna ölvunarláta fólks og mörgum var laus höndin. Um eittleytið var einn maður fluttur á slysadeild eftir átök við skemmtistaðinn Broadway og um svipað leyti var ráðist á dyravörð á Kringlukránni og gleraugu hans brotin.

Innlent
Fréttamynd

Æfa viðbrögð við hópslysi

Fjölmenn almannavarnaæfing hefur staðið yfir í Hvalfjarðargöngunum frá því snemma í morgun og er göngunum lokað af þeim sökum. Marinó Tryggvason öryggisfulltrúi Spalar segir afar mikilvægt að fá tækifæri til að æfa viðbrögð yrði hópslys í göngunum.

Innlent
Fréttamynd

Handtekinn eftir ólæti í flugvél

Sex íslenskir farþegar voru færðir í hendur lögreglu og var einn þeirra handtekinn við komuna til Kaupmannahafnar í morgun eftir að flugstjóri Iceland Express hafði gert lögreglu viðvart. Farþegarnir höfðu hótað hver öðrum og meðlimum í áhöfn vélarinnar líkamsmeiðingum.

Innlent
Fréttamynd

Braut rúðu í lögreglubíl

Maður braut afturrúðu í lögreglubíl í miðbæ Reykjavíkur á fimmta tímanum í nótt eftir að hafa kastað flösku í bílinn. Tveir lögreglumenn voru í bílnum en sakaði hvorugan þeirra. Maðurinn hljóp á brott og náðist hann ekki. Biður lögreglan þá sem urðu vitni að atburðinum að hafa samband við lögregluna í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Settu á svið stórslys í göngum

Rúta og fólksbíll lentu í árekstri í Hvalfjarðargöngunum í dag og það kviknaði í þriðja bílnum þegar hann keyrði á vegg við slysstaðinn. Þetta gerðist sem betur fer ekki heldur var svona slys sviðsett í göngunum í dag í æfingaskyni.

Innlent
Fréttamynd

Hótuðu farþegum líkamsmeiðingum

Sex íslenskir farþegar létu illum látum í borð um Iceland Express-flugvél sem var á leið til Kaupmannahafanar. Þeir hótuðu hver öðrum og öðrum farþegum líkamsmeiðingum. Flugstjórinn gerði yfirvöldum á Kastrup-flugvelli viðvart og var einn farþeganna handtekinn við komuna þangað.

Innlent
Fréttamynd

Skaut konu sína og börn

Karlmaður skaut konu sína og þrjú ung börn til bana á heimili þeirra í hollenska bænum Hilversum. Að því búnu skaut hann sjálfan sig. Börnin eru öll innan við tíu ára gömul.

Innlent
Fréttamynd

Braut lög en var sýknuð af kröfum

Vegagerðin braut lög með því að hafna öllum tilboðum í Héðinsfjarðargöng árið 2003, samkvæmt Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Vegagerðin var hins vegar sýknuð af bótakröfu Íslenskra aðalverktaka sem áttu lægsta boð í verkið þar sem fyrirtækinu hafði ekki tekist að sýna fram á tjón. Lögmaður Íslenskra aðalverktaka segir dóminn marka tímamót. Dóminum verður að öllum líkindum áfrýjað.

Innlent
Fréttamynd

Ákærður fyrir manndráp

Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp fyrir að hafa banað eiginkonu sinni á heimili þeirra í Kópavogi í nóvember í fyrra. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Innlent
Fréttamynd

Útgerð Sólbaks braut samninga

Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu í dag að Útgerðarfélagið Sólbakur hefði brotið gegn ákvæðum kjarasamninga Landssambands íslenskra útvegsmanna og Vélstjórafélags Íslands þegar vélstjórar skipsins fengu ekki 30 klukkustunda hafnarfrí eftir löndun á Eskifirði í september á síðasta ári.

Innlent
Fréttamynd

Fékk dæmdar dánarbætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Tryggingamiðstöðina til að greiða 25 ára gamalli konu tæplega 11 milljónir króna í vátryggingarbætur vegna andláts sambýlismanns hennar. Maðurinn lést í janúar árið 2000 þar sem hann var í ferðalagi á Spáni en hann og konan höfðu verið í sambúð í Keflavík frá árinu 1998.

Innlent
Fréttamynd

Gjörbreytt starf með hitamyndavél

Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja tóku í notkun í dag sérstaka hitamyndavél sem er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Einnig var tekið í notkun nýtt æfingahúsnæði sem er byggt úr gámaeiningum.

Innlent
Fréttamynd

Ætlaði ekki að bana Sæunni

Magnús Einarsson sem ákærður er fyrir að hafa orðið eiginkonu sinni og barnsmóður, Sæunni Pálsdóttur, að bana með því að kyrkja hana mætti fyrir Héraðsdóm Reykjaness í gærmorgun þegar málið var þingfest. Magnús játaði að hafa orðið eiginkonu sinni að bana en sagði það ekki hafa verið ásetning sinn.

Innlent
Fréttamynd

Handteknir eftir fíkniefnaleit

Lögreglan í Kópavogi handtók í nótt tvo menn eftir að fíkniefni fundust við leit í bíl þeirra og við húsleit heima hjá öðrum þeirra. Alls fundust 20 grömm af amfetamíni, 20 e-töflur og 20 grömm af hassi og eru mennirnir grunaðir um að hafa ætlað að selja efnin. Þeim var sleppt undir morgun að yfirheyrslum loknum en rannsókn málsins heldur áfram.

Innlent
Fréttamynd

Farið fram á gæsluvarðhald

Lögreglan á Akureyri krafðist í gærkvöldi gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þremur mönnum, sem handteknir voru í fyrrakvöld með 350 grömm af hassi í fórum sínum við komuna til Akureyrar frá Reykjavík. Smásöluandvirði hassins gæti numið allt að 900 þúsundum. Tveir mannanna hafa áður gerst brotlegir við lög, meðal annars fyrir fíkniefnabrot, líkamsárásir og hótanir.

Innlent
Fréttamynd

Tornæmur maður í fangelsi

Tvítugur fangi á Litla-Hrauni situr hálfu ári lengur inni þar sem Hæstiréttur þyngdi dóm héraðsdóms. Fanginn er dæmdur í eitt og hálft ár þrátt fyrir að sálfræðingur telji greind mannsins "á sviði tornæmis" og að hann hafi veruleg frávik í þroska.

Innlent
Fréttamynd

Banna kveikjara í flugi

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa lagt bann við því að einstaklingar hafi sígarettukveikjara á sér eða í handfarangri í flugi til og frá Bandaríkjunum. Bannið sem gildir um allar tegundir kveikjara tók gildi í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugmálatjórn á Keflavíkurflugvelli.

Innlent
Fréttamynd

Vegagerðin sýknuð af kröfum ÍAV

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun Vegagerðina af bótakröfum Íslenskra aðalverktaka og verktakafyrirtækisins NCC sem fyrirtækin gerðu í kjölfar þess að gerð Héðinsfjarðarganga var blásin af á sínum tíma.

Innlent