Innlent

Settu á svið stórslys í göngum

Rúta og fólksbíll lentu í árekstri í Hvalfjarðargöngunum í dag og það kviknaði í þriðja bílnum þegar hann keyrði á vegg við slysstaðinn. Þetta gerðist sem betur fer ekki heldur var svona slys sviðsett í göngunum í dag í æfingaskyni. Þetta var gert samkvæmt viðbragðaáætlun Spalar en þar er gert ráð fyrir að svona umfangsmikil æfing sé haldin á fimm ára fresti og var í þetta í fyrsta sinn sem slík æfing fer fram. Auk starfsmanna Spalar tóku lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar þátt í æfingunni. Vonskuveður var á Kjalarnesi í dag þegar æfingin fór fram. Þannig háttar til í Hvalfjarðargöngunum að vindáttin þar er alltaf í suður og væri því ekki hægt að komast ofan í göngin sunnanmegin ef svona slys bæri að höndum og því þurfti að flytja lið og búnað norður fyrir. Æfingin gekk vel að sögn Marinós Tryggvasonar, öryggisfulltrúa Spalar. Hann segir aðspurður að undirbúningur slyssins hafi verið flókinn og hann hafi átt sér langan aðdraganda. Á milli 30 og 40 manns hafi verið slasaðir og raunverulegur eldur hafi verið notaður á æfingunni en allt hafi gengið vel. Hátt í 200 manns tóku þátt í æfingunni og voru göngin lokuð á meðan á henni stóð. Marinó segir þetta hafa verið besta tímann fyrir æfingu því hún byggist að miklu leyti á sjálfboðaliðum sem eigi bara frí um helgar og á þessum tíma sé helgarumferðin minnst. Hann segir viðskiptavini Spalar hafa sýnt þessu skilning. Þá segir Marinó ekkert óvænt hafa komið upp á æfingunni. Ekki verði haldinn rýnifundur fyrr en eftir helgi en sjálfsagt sé eitthvað sem megi laga. Ekkert hafi þó komið mönnum í opna skjöldu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×