Innlent

Erill hjá lögreglunni í nótt

Svo virðist sem rigningarsuddinn hafi farið illa í þá sem voru að skemmta sér í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt. Töluverður erill var hjá lögreglu vegna ölvunarláta fólks og mörgum var laus höndin. Um eittleytið var einn maður fluttur á slysadeild eftir átök við skemmtistaðinn Broadway og um svipað leyti var ráðist á dyravörð á Kringlukránni og gleraugu hans brotin. Þrír til fjórir menn réðust á tvo á Hverfisgötunni um klukkustund síðar. Mennirnir tveir voru fluttir á slysadeild en árásarmennirnir eru enn ófundnir. Um hálfsexleytið var lögregla svo kölluð að Austurstræti vegna átaka. Þaðan var karlmaður fluttur rænulítill á slysadeild en árásarmaður hans hafði komist á brott.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×