Innlent

Hótuðu farþegum líkamsmeiðingum

Sex íslenskir farþegar létu illum látum í borð um Iceland Express-flugvél sem var á leið til Kaupmannahafanar. Þeir hótuðu hver öðrum og öðrum farþegum líkamsmeiðingum. Flugstjórinn gerði yfirvöldum á Kastrup-flugvelli viðvart og var einn farþeganna handtekinn við komuna þangað. "Við teljum að okkar fólk hafi brugðist rétt við þessum erfiðu aðstæðum, enda þjálfað til að bregðast rétt við þegar atburðir sem þessir verða," segir Almar Örn Hilmarsson, forstjóri Iceland Express. Almar segir að dólgslætin hafi byrjað eftir flugtak og því ekki hægt að álása flugvallaryfirvöldum fyrir að hafa ekki meinað mönnunum sex að fara um borð. "Hins vegar vaknar sú spurning þegar svona kemur fyrir hvort hægt væri að koma upp einhvers konar svörtum lista því það er óþolandi fyrir aðra farþega og starfsmenn að verða fyrir svona," segir Almar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×