Innlent

Meiddist á fæti í vélsleðaslysi

Mynd/ÞÖK
Ung kona slasaðist alvarlega á fæti þegar hún féll af vélsleða nálægt Skriðutindum á hálendinu norður af Laugarvatni laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Hún var í hópi með fimm öðrum vélsleðamönnum og var þegar óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Björgunarsveitarmenn voru líka sendir af stað ef þyrlan gæti ekki athafnað sig á svæðinu en allt gekk að óskum og flutti þyrlan konuna á Landspítalann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×