Innlent

Þrjú kynferðisbrotamál um helgina

Þrjú kynferðisbrotamál komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík um helgina og átti ungt fólk alls staðar hlut að máli. Meint brot voru öll framin í heimahúsum og með þeim hætti að karlmenn notuðu sér ölvunarástand kvenna til þess að ná fram vilja sínum við þær, gegn vilja þeirra. Ekkert fórnarlambanna ber þó líkamlega áverka eftir ofbeldið en hafa notið andlegrar aðhlynningar. Tvö málanna hafa formlega verið kærð til lögreglu en hún hefur þau öll til nánari rannsóknar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×