Erlent
55 56 57 58 59 60 61 62 63 … 334 ›
Kaupa ekki skýringar herforingja Talið er að tugir eða jafnvel um hundrað manns hafi verið felldir í mótmælum í Mjanmar síðustu daga. Japönsk yfirvöld ætla að senda fulltrúa til landsins til að rannsaka morð á japönskum fréttaljósmyndara í mótmælunum. Erlent 28.9.2007 17:59
Vó aðeins 300 grömm Foreldrar þýsku telpunnar Kimberly eru himinlifandi með það að geta loksins tekið barn sitt með sér heim af sjúkrahúsinu. Kimberly fæddist fyrir hálfu ári - þá 15 vikum fyrir tímann. Hún vó þá aðeins 300 grömm, rétt rúma 1 mörk. Erlent 28.9.2007 13:12
Musharraf má bjóða sig fram Hæstiréttur Pakistans úrskurðaði í morgun að Pervez Musharraf, forseta landsins, væri heimilt að bjóða sig aftur fram til embættisins þó hann væri enn yfirmaður pakistanska hersins. Andstæðingar forsetans kærðu framboð hans á þeim forsendum að honum væri óheimilt að gegna báðum embættum. Erlent 28.9.2007 12:55
Óttast um öryggi sitt vegna nauðgunarsenu Tólf ára afganskur aðalleikari í kvikmyndinni Flugdrekahlauparinn vill að nauðgunaratriði verði klippt úr myndinni. Hann óttast um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar vegna þess. Þau verið jafnvel útskúfuð. Erlent 25.9.2007 17:58
Herforingjastjórninni refsað Bandaríkjaforseti boðar refsiaðgerðir gegn herforingjastjórninni í Myanmar vegna mannréttindabrota. Fjölmenn mótmæli voru í stærstu borg landsins - áttunda daginn í röð - þar sem lýðræðis var krafist. Erlent 25.9.2007 17:51
Ekki einkamál stórveldanna Meirihluti jarðarbúa telur hlýnun jarðar af mannavöldum og nauðsynlegt að ríki heims grípi til aðgerða strax. Utanríkisráðherra Íslands segir að lausn verði að finna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna - stórveldi megi ekki vera einráð í þeim efnum. Breska ríkisútvarpið, BBC, lét gera umfangsmikla könnun um viðhorf jarðarbúa til umhverfismála. Alls tóku 22 þúsund manns í 21 landi þátt í henni. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar telja um 65% aðspurðra að grípa verði strax til stórtækra aðgerða til að bregðast við loftlagsbreytingum. Þá telja um 80% að breytingarnar séu fyrst og fremst af mannanna völdum. Flestir kenna iðnaði og samgöngum um aukna mengun í heiminum. Að mati þeirra sem stóðu að könnuninni benda niðurstöður hennar til mikillar afstöðubreytingar meðal fólks í heiminum gagnvart náttúruvernd. Yfir 70% aðspurðra telja nauðsynlegt að ríki heims geri með sér samkomulag um samdrátt í útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Ennfremur vilja flestir að samkomulagið nái einnig til ríkja þriðja heimsins sem fái í staðinn fjárhagsaðstoð frá auðugri ríkjum. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, boðaði í gær til fundar um loftslagsmál. Hann sóttu fulltrúar hundrað og fimmtíu ríkja - þar á meðal Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sem ávarpaði fundinn. Hún lagði áherslu á að lausn yrði að finna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Stór og voldug ríki heims mættu ekki ein forgansraða í þeim efnum. Málið snerti alla heimsbyggðina. Erlent 25.9.2007 12:57
Óeirðalögreglumenn gegn munkum Svo virðist sem herforingjastjórnin í Myanmar, áður Búrma, ætli að mæta mótmælum Búddamunka af hörku. Reuters fréttastofan hefur eftir sjónarvottum að vopnaðir óeirðalögreglumenn hefðu verið fluttir til Yangon - stærstu borgar landsins - í morgun. Þar hafa munkarnir mótmælt dag hvern frá því í síðustu viku. Erlent 25.9.2007 12:42
Bíllaust í Brussel Brusselbúar voru duglegir að skilja bíla sína eftir heima í gær. Evrópskri samgönguviku lauk þar í borg með bíllausum degi - ólíkt því sem var í Reykjavík. Erlent 24.9.2007 18:20
Fordæmislaus fundur SÞ um hnattræna hlýnun Fordæmislaus leiðtogafundur um hnattræna hlýnun var haldinn á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. 150 ríki áttu fulltrúa á fundinum - þar á meðal Ísland. Bandaríkjaforseti mætti ekki. Erlent 24.9.2007 18:10
Tími kjarnorkusprengjunnar liðinn Íransforseti segir tíma kjarnorkusprengjunnar liðinn. Íranar stefni ekki að smíði slíkra vopna - þau þjóni engum tilgangi. Ef svo væri hefðu Sovétríkin aldreið liðast í sundur og Bandaríkjamönnum gengið betur í Írak. Erlent 24.9.2007 12:21
Evran dýr í dollurum Gengi evru sló enn eitt metið gagnvart bandaríkjadal í dag en gjáin á milli þeirra hefur aldrei verið meiri. Helstu skýringarnar felast í styrkingu evrunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum og veikingu bandaríkjadals í kjölfar stýrivaxtalækkunar í Bandaríkjunum í síðustu viku. Viðskipti erlent 24.9.2007 09:33
Airbus: Sterkt gengi evru til vandræða Stjórnendur evrópsku flugvélasmiðjunnar Airbus óttast að sterkt gengi evrunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum nú um stundir geti valdið því að fyrirtækið neyðist til að grípa til frekari uppsagna til að hagræða í rekstrinum. Viðskipti erlent 21.9.2007 13:24
Northern Rock hafnaði milljarðaláni Stjórnendum breska fasteignalánafyrirtækisins Northern Rock bauðst að fá lán upp á hálfan milljarð punda, jafnvirði 63,5 milljarða íslenskra króna, frá bandaríska fjárfestingabankanum JPMorgan seint í júlí. Þeir tóku því ekki. Breskir fjölmiðlar segja að hefðu stjórnendurnir gert það hefði bankinn ekki staðið frammi fyrir sama vanda og hann gerir í dag. Viðskipti erlent 21.9.2007 09:33
Dalurinn á ný í sögulegu lágmarki gagnvart evru Gengi evru fór enn í methæðir gagnvart bandaríkjadal í dag en munurinn á gengi myntanna hefur aldrei verið lægra. Gengi dals hefur lækkað nokkuð síðustu daga, ekki síst eftir að seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýrivexti um 50 punkta á þriðjudag. Dalurinn kostaði jafn mikið og kanadískur dalur í gær en slíkt hefur ekki gerst í rúm þrjátíu ár. Viðskipti erlent 21.9.2007 09:10
Deutsche Bank í krísu vegna óróleikans Þýski bankinn Deutsche Bank hefur tilkynnt að hann muni þurfa að færa verðmæti fjármögnunarsamninga niður um allt að 625 milljónir evra, jafnvirði tæpra 56 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi vegna mistaka sem bankinn gerði á uppgangstímum á fjármálamörkuðum sem lauk með lánsfjárkreppu í síðustu mánuðum. Viðskipti erlent 20.9.2007 16:07
Spáir stýrivaxtalækkun snemma á næsta ári Styrking evru gagnvart bandaríkjadal veldur því að evrópski seðlabankinn verði að breyta um stefnu og lækka stýrivexti. Þetta segir sérfræðingurinn Austin Hughes, hjá írska bankanum IIB. Gengi evru hefur haldið verið jafn sterk gagnvart bandaríkjadal og nú um stundir. Viðskipti erlent 20.9.2007 15:18
Samdrátturinn gæti haldið áfram Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagðist eftir yfirheyrslu fyrir fjárlaganefnd bandaríska þingsins í dag, að hann teldi hræringar á fjármálamörkuðum vegna vanskila á fasteignalánamarkaði ekki að baki. Það hafi hins vegar verið rétt ákvörðun bankastjórnarinnar að lækka stýrivexti og setja fé inn í efnahagslífið til að auðvelda aðgengi að fjármagni. Viðskipti erlent 20.9.2007 14:45
Afkoma Goldman Sachs umfram spár Hagnaður bandaríska bankans Goldman Sachs nam 2,85 milljörðum dala, jafnvirði rúmra 180 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi. Þetta er 79 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra og sá þriðji besti í 138 ára sögu bankans. Ólíkt flestum bönkum spáði Goldman Sachs samdrætti á fasteignalánamarkaði í Bandaríkjunum og stóð því ekki berskjaldur gagnvart þrengingunum. Viðskipti erlent 20.9.2007 14:09
Svartbirnir komust ekki í hengirúm Tveir ungir svartbirnir áttu í erfiðleikum með að koma sér vel fyrir í hengirúmi í New Jersey í Bandaríkjunum í gær. Aðfarirnar voru festar á filmu. Erlent 20.9.2007 12:34
SÞ rannsaki morðið á Ghanem Forsætisráðherra Líbanons hefur óskað eftir því að Sameinuðu þjóðirnar rannsaki morði á líbanska þingmanninum Antoin Ghanem í gær. Hann týndi lífi í öflugri sprengjuárás ásamt sex öðrum. Erlent 20.9.2007 12:26
Breski seðlabankinn gagnrýndur fyrir sein viðbrögð Mervyn King, seðlabankastjóri Englandsbanka, sagði fyrir breskri þingnefnd í dag, að lög í Bretlandi og innan Evrópusambandsins, hafi komið í veg fyrir að bankinn hefði getað beitt sér fyrir því að koma bönkum og fjármálafyrirtækjum á borð við Norther Rock til bjargar strax þegar óróleika varð vart á fjármálamörkuðum í sumar. Gengi bréfa í Nothern Rock, sem er með stærstu fasteignalánafyrirtækjum í Bretlandi, hefur fallið um heil 82 prósent síðan í lok febrúar. Viðskipti erlent 20.9.2007 11:47
Bandaríkjadalur aldrei lægri gagnvart evru Gengi bandaríkjadals fór í sögulegt lágmark gagnvart evru í dag í kjölfar 50 punkta lækkunar á stýrivöxtum í Bandaríkjunum á þriðjudag. Þá hefur gengi evru styrkst eftir að evrópski seðlabankinn gaf í skyn að stýrivextir hækki á evrusvæðinu á næstu mánuðum. Viðskipti erlent 20.9.2007 11:06
Nasdaq kaupir OMX-samstæðuna Nasdaq hefur gert samkomulag við kauphöllina í Dubaí sem felur í sér að Nasdaq kaupir samnorrænu OMX-kauphallarsamstæðuna. Kauphöllin í Dubaí mun eiga fimmtung í sameinuðum kauphöllum auk þess að fá 28 prósenta hlut Nasdaq í bresku kauphöllinni í Lundúnum (LSE). Lokað var fyrir viðskipti með bréf í OMX í gær. Viðskipti erlent 20.9.2007 10:35
Næstráðandi Rauðu Kmerana handtekinn Næstráðandi Rauðu Kmeranna í Kambódíu var handtekinn í dag. Eftir er að ákveða hvort hann verði kærður fyrir þjóðarmorð. Sérstakur dómstóll Sameinuðu þjóðanna rannsakar nú fjöldamorð Kmeranna á valdatíma þeirra. Erlent 19.9.2007 17:53
Gasa-ströndin óvinasvæði Ísraelar hafa skilgreint Gasa-ströndina sem óvinasvæði vegna síendurtekinna eldflaugaárása Hamas-liða á Ísrael þaðan. Hamas-liðar segja þetta stríðsyfirlýsingu. Ákvörðun Ísraela gæti leitt til þess að þeir lokuðu fyrir vatni, eldsneyti og rafmagn til svæðisins. Erlent 19.9.2007 17:42
Adnan og Sana eru skilin Adnan og Sana Klaric eru skilin. Þau búa í bænum Zenica í Bosníu. Adnan er 32. ára og Sana 27. Adnan ákvað að skilja við Sönu eftir að hann komst að því að hún hafði verið að daðra við karlmann á netinu. Sana ákvað að skilja við Adnan eftir að hún komst að því að hann hafði verið að daðra við konu á netinu. Erlent 19.9.2007 14:23
Ferðir sendifulltrúa takmarkaðar Bandarískum sendifulltrúum í Írak er nú bannað að ferðast utan Græna svæðisins svokallaða í Bagdad. Þetta var ákveðið eftir að írösk yfirvöld bönnuðu starfsemi verktakafyrirtækisins Blackwater í landinu. Fyrirtækið hefur annast gæslu sendifulltrúa. Erlent 19.9.2007 12:16
Spútnik fimmtíu ára Fyrir fimmtíu árum greip um sig mikil skelfing í Bandaríkjunum vegna áttatíu og þriggja kílóa málmbolta. Risastórar fyrirsagnir í blöðunum voru eins og heimsendir væri í nánd. Í herstöðvum Bandaríkjanna víða um heim fengu allir skammbyssur sem þeir áttu að bera á sér dag og nótt. Ástæðan fyrir þessari skelfingu var sú að málmboltinn var á braut um jörðu. Og Rússar höfðu sent hann þangað. Erlent 19.9.2007 11:26
Óbreyttir stýrivextir í Japan Bankastjórn japanska seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentum. Fjármálasérfræðingar gerðu flestir hverjir ráð fyrir þessari niðurstöðu vegna aðstæðna á fjármálamörkuðum. Þetta er sjöundi mánuðurinn í röð sem seðlabankinn heldur vöxtunum óbreyttum eftir að hafa hækkað þá einungis tvisvar frá árinu 2000. Viðskipti erlent 19.9.2007 08:57
Vísitölur taka stökkið á Evrópumörkuðum Helstu hlutabréfavísitölur hafa hækkað á fjármálamörkuðum í dag eftir að Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýrivexti í gær meira en vongóðust fjármálasérfræðingar þorðu að vona. Nikkei-hlutabréfavísitalan í Japan hækkaði um heil 3,67 prósent við lokun markaðar í Tókýó í morgun. Hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa í dag hækkað um og yfir tvö prósent í dag. Viðskipti erlent 19.9.2007 08:25
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent