Viðskipti erlent

Northern Rock hafnaði milljarðaláni

Biðröð fyrir utan eitt útibúa Northern Rock í Bretlandi í vikunni.
Biðröð fyrir utan eitt útibúa Northern Rock í Bretlandi í vikunni. Mynd/AFP

Stjórnendum breska fasteignalánafyrirtækisins Northern Rock bauðst að fá lán upp á hálfan milljarð punda, jafnvirði 63,5 milljarða íslenskra króna, frá bandaríska fjárfestingabankanum JPMorgan seint í júlí. Þeir tóku því ekki.

Bankinn greindi frá því fyrir viku að hann hefði tryggt sér neyðarlán frá Englandsbanka, sem jafnframt er bakhjarl fyrirtækisins, vegna hræringa á fjármálamörkuðum sem gæti valdið lausafjárskorti hjá fasteignalánafyrirtækinu, sem er eitt þeirra stærstu í Bretlandi. Gengi bréfa í Northern Rock hefur verið í frjálsu falli síðan á föstudag fyrir viku og hefur um 80 prósent af markaðsvirði þess gufað upp. Fjöldi viðskiptavina fyrirtækisins hefur tekið út rúmlega tvo milljarða punda, tæpa 300 milljarða króna, af innlánsreikningum sínum. Stjórnendur bankans og aðrir ráðamenn í Bretlandi hafa hins vegar ítrekað sagt, að bankinn glími ekki við lausafjárskort og sé neyðarlán Englandsbanka einungis formsatriði.

Breska dagblaðið Daily Telegraph bendir á það í dag að hefðu stjórnendur bankans samþykkt að taka láni JPMorgan væru litlar líkur á að bankinn væri í þeirri slæmu stöðu sem hann er í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×