Viðskipti erlent

Nasdaq kaupir OMX-samstæðuna

Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq, sem situr ein að tilboði í OMX-kauphallarsamstæðuna.
Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq, sem situr ein að tilboði í OMX-kauphallarsamstæðuna. Mynd/AFP

Nasdaq hefur gert samkomulag við kauphöllina í Dubaí sem felur í sér að Nasdaq kaupir samnorrænu OMX-kauphallarsamstæðuna. Kauphöllin í Dubaí mun eiga fimmtung í sameinuðum kauphöllum auk þess að fá 28 prósenta hlut Nasdaq í bresku kauphöllinni í Lundúnum (LSE).

Lokað var fyrir viðskipti með bréf í OMX í gær.

OMX-samstæðan rekur kauphallir víða á Norðurlöndunum, þar á meðal hér, og í Eystrasaltsríkjunum. Kauphöllin í Ósló í Noregi heyrir hins vegar ekki undir OMX-samstæðuna.

Tilboð Nasdaq í OMX hljóðar upp á 3,7 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði rúma 230 milljarða íslenskra króna. Tilboð kauphallarinnar í Dubaí var hins vegar þrjú hundruð milljónum dölum hærra í heildina.

Hluthafar og eftirlitsstofnanir í bæði Evrópu og Bandaríkjunum eiga eftir að samþykkja samkomulagið, að sögn breska ríkisútvarpsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×