Erlendar

Fréttamynd

Portúgalskt mark eftir aðeins fjórar mínútur

Það stefnir í langt og erfitt kvöld fyrir Angólamenn því Portúgalar eru komnir í 1-0 eftir aðeins fjórar mínútur í leik þjóðanna í D-riðli HM í knattspyrnu. Markið skoraði Pauleta eftir frábæran undirbúning Luis Figo en Pauleta var líka kominn einn í gegn eftir aðeins 15 sekúndur. Portúgalir eru líklegir til þess að skora mörg mörk í þessum leik haldi þeir áfram af sama krafti það sem eftir er leiksins.

Sport
Fréttamynd

Nauðsynlegt að vinna fyrsta leikinn

Portúgalar taka á móti Angóla í lokaleik dagsins á HM í Þýskalandi. Þetta er seinni leikur dagsins í D-riðli en Mexíkó vann Íran 3-1 fyrr í dag í sama riðli. Leikurinn hefst klukkan 19.00 og er í beinni útsendingu á Sýn. Þjálfari Portúgala Luis Felipe Scolari segir nauðsynlegt að liðið vinni fyrsta leikinn.

Sport
Fréttamynd

Mexíkóbúar unnu Írani með tveimur mörkum

Mexíkó vann Íran 3-1 í fyrsta leik D-riðils á HM í Þýskalandi en Mexíkóbúar tryggðu sér sigurinn með tveimur mörkum á síðustu 15 mínútum leiksins. Omar Bravo skoraði tvö marka Mexíkó í leiknum og var valinn maður leiksins en varamaðurinn Antonio Zinha átti þó mikinn þátt í sigrinum því hann kom inn á í hálfleik, lagði upp seinna mark Bravo og skoraði síðan þriðja markið sem innsiglaði sigurinn.

Sport
Fréttamynd

Nadal lagði Federer í úrslitum

Spænski tennisleikarinn Rafael Nadal sigraði Roger Federer í úrslitum Opna franska meistaramótsins í dag 1-6, 6-1, 6-4 og 7-6 og eyðilagði þar með draum Federer um að hreppa alla fjóra stóru titlana. Nadal hefur því unnið alla 14 leikina sem hann hefur spilað á Roland Garros á ferlinum.

Sport
Fréttamynd

Mexíkó - Íran hefst klukkan 16

Næsti leikur á dagskrá á HM er viðureign Mexíkóa og Írana í d-riðli mótsins. Byrjunarliðin eru klár og þar ber hæst að markvörðurinn Oswaldo Sanchez stendur í marki Mexíkóa, en hann flaug aftur til heimalands síns á fimmtudaginn vegna andláts föður síns.

Sport
Fréttamynd

Auðvelt hjá Alonso

Heimsmeistarinn Fernando Alonso heldur sínu striki á toppi stigakeppni ökumanna í formúlu 1, en í dag vann hann yfirburðasigur í breska kappakstrinum á Silverstone-brautinni. Alonso var í leiddi keppnina alla hringina utan einn og hefur náð 23 stiga forskoti á næsta mann Michael Schumacher, sem hafnaði í öðru sæti í dag.

Sport
Fréttamynd

Hollendingar lögðu Serba

Hollendingar byrja heimsmeistaramótið í knattspyrnu ágætlega og í dag vann liðið opnunarleik sinn í hinum magnaða c-riðli gegn Serbum og Svartfellingum 1-0. Það var hinn magnaði Arjen Robben sem skoraði sigurmark liðsins á 17. mínútu. Robben var að öðrum ólöstuðum besti maður vallarins og fékk að leika lausum hala á vængnum hjá Hollendingum.

Sport
Fréttamynd

Böðullinn hættir á toppnum

Ekki verður annað sagt en að "Böðullinn" Bernard Hopkins hafi ákveðið að hætta hnefaleikaiðkun á toppnum, því í nótt tók hann Antonio Tarver í sannkallaða kennslustund í hringnum og tryggði sér IBO-titilinn í léttþungavigt.

Sport
Fréttamynd

Holland yfir í hálfleik

Hollendingar hafa yfir 1-0 gegn Serbum í leik þjóðanna í c-riðli HM. Arjen Robben, leikmaður Chelsea, skoraði markið eftir 17 mínútna leik og hefur verið frábær í fyrri hálfleiknum.

Sport
Fréttamynd

Hollendingar komnir yfir

Arjen Robben er búinn að koma Hollendingum yfir gegn Serbum og Svartfellingum í fyrsta leik dagsins á HM. Markið kom á 17. mínútu leiksins. Hér fyrir neðan má sjá byrjunarlið þjóðanna í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Argentína lagði Fílabeinsstrendinga

Argentínumenn lögðu Fílabeinsstrendinga 2-1 í opnunarleik c-riðilsins á HM í kvöld. Argentína var yfir 2-0 í hálfleik eftir að Hernan Crespo og Javier Saviola skoruðu sitt hvort markið, en Didier Drogba minnkaði muninn 10 mínútum fyrir leikslok og setti mikla spennu í leikinn. Lengra komst Afríkuliðið þó ekki að þessu sinni, en ljóst er að lið Fílabeinsstrandarinnar er sýnd veiði en ekki gefin í mótinu.

Sport
Fréttamynd

Ólæti heima á Englandi

Litlum sögum hefur farið af því á HM enn sem komið er að stuðningsmenn enska landsliðsins hafi verið til vandræða í Þýskalandi. Í dag kom hinsvegar til óláta heima í Lundúnum og í Liverpool þar sem nokkur fjöldi fólks hafði safnast saman á torgum og fylgst með leik enska liðsins á risaskjá.

Sport
Fréttamynd

Svíar ekki sigursælir í opnunarleikjum sínum

Sænska landsliðið í knattspyrnu hefur ætið verið hið frambærilegasta en ef sagan er skoðuð, má sjá að gengi liðsins í opnunarleikjum á HM hefur ekki verið sérlega gott. Liðinu mistókst í dag að leggja lægra skrifað lið Trinidad og Tobago og hafa Svíarnir því ekki unnið opnunarleik sinn á HM síðan árið 1958 þegar keppnin var haldin í Svíþjóð.

Sport
Fréttamynd

Argentína 2-0 yfir í hálfleik

Argentínumenn byrja þessa heimsmeistarakeppni sannarlega betur en þá síðustu, en liðið hefur 2-0 forystu gegn spræku liði Fílabeinsstrandarinnar þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í C-riðlinum. Hernan Crespo kom Argentínu á bragðið og Javier Saviola bætti við öðru marki skömmu fyrir leikhlé. Það var Juan Riquelme sem var arkítektinn að báðum mörkum liðsins.

Sport
Fréttamynd

Gamarra skoraði 30. sjálfsmarkið

Carlos Gamarra, leikmaður Paragvæ, varð þess vafasama heiðurs njótandi í dag að skora 30. sjálfsmarkið í sögu HM og um leið fyrsta sjálfsmarkið á mótinu nú. Þetta er í annað sinn í sögu keppninnar sem þjóð skorar sjálfsmark gegn Englendingum, en Jozef Barmos frá Tékklandi hafði áður gert það árið 1982.

Sport
Fréttamynd

Argentína - Fílabeinsströndin

Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Argentínu og Fílabeinsstrandarinnar fyrir viðureign þjóðanna í Hamburg sem hefst nú klukkan 19:00 og er fyrsti leikurinn í C-riðli. Gabriel Heinze er í byrjunarliði Argentínu og spilar því sinn fyrsta alvöru leik síðan í september á síðasta ári, þegar hann meiddist á hné í leik með Manchester United.

Sport
Fréttamynd

Trinidad fagnaði jafntefli sínu við Svía

Smálið Trinidad og Tobago náði þeim frábæra árangri að gera jafntefli við Svía 0-0 í leik liðanna í B-riðli HM í dag og fögnuðu leikmenn liðsins ákaft í leikslok á meðan Svíarnir naga sig eflaust í handabökin. Markvörðurinn Shaka Hislop hjá Trinidad var klárlega maður leiksins og tryggði sínum mönnum stig með frábærri markvörslu hvað eftir annað, en liðsmenn Trinidad léku manni færri allan síðari hálfleikinn eftir að Avery John var vikið af leikvelli.

Sport
Fréttamynd

Irureta tekur við Real Betis

Hinn gamalreyndi þjálfari Javier Irureta hefur verið ráðinn þjálfari spænska úrvalsdeildarliðsins Real Betis. Irureta stýrði síðast liði Deportivo á árunum 1998-2005 við góðan orðstír og gerði liðið m.a. að Spánarmeistara árið 2000.

Sport
Fréttamynd

Beckham upp að hlið Robson

David Beckham lék í dag sinn 90. landsleik fyrir hönd Englands og komst þar með upp að hlið annars fyrrum leikmanns Manchester United og fyrirliða enska landsliðsins, Bryan Robson. Þá urðu þeir Beckham og Michael Owen áttundi og níundi leikmennirnir í sögu enska landsliðsins til að taka þátt í sinni þriðju heimsmeistarakeppni.

Sport
Fréttamynd

Markalaust hjá Trínidad og Svíum

Staðan í leik Trínidad og Tobago og Svía er markalaus í hálfleik, þrátt fyrir harða sókn sænska liðsins. Lið Trinidad komst betur inn í leikinn undir lok hálfleiksins, en varð svo fyrir áfalli eftir aðeins nokkrar sekúndur í þeim síðari þegar einum leikmanna þess var vikið af leikvelli fyrir ljóta tæklingu.

Sport
Fréttamynd

Lehmann meiddur

Jens Lehmann, markvörður þjóðverja er meiddur á ökkla en hann snéri sig í leiknum við Kosta Ríka í gær er Þjóðverjar unnu 4-2. Þjóðverjar eiga næst að spila við Pólland á miðvikudaginn.

Sport
Fréttamynd

Höfðum í fullu tré við Englendinga

Anibal Ruiz, landsliðsþjálfari Paragvæ, var nokkuð sáttur við frammistöðu sinna manna gegn Englendingum í dag, þrátt fyrir að liðið tapaði 1-0. Hann sagði lið sitt hafa haft í fullu tré við enska liðið eftir sjálfsmarkið slysalega í upphafi leiks.

Sport
Fréttamynd

Hitinn gerði okkur erfitt fyrir

David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, segir að hitinn hafi gert liðinu erfitt fyrir í síðari hálfleiknum gegn Paragvæ í dag og sagði það helstu ástæðu þess að liðið hefði ekki verið sprækara en raun bar vitni.

Sport
Fréttamynd

Svíþjóð - Trinidad að hefjast

Nú er að hefjast leikur Svía og Trínídad og Tobago í B-riðli HM. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan.

Sport
Fréttamynd

Eiður við það að ganga í raðir Barcelona?

Breska Sky-sjónvarpsstöðin greinir frá því nú fyrir skömmu að Barcelona sé nú aðeins hársbreidd frá því að landa Eiði Smára Guðjohnsen frá Chelsea. Því er haldið fram að Eiður sé búinn að samþykkja þriggja ára samning með möguleika á fjórða árinu. Kaupverðið er þó enn óljóst en sagt hlaupa á 7-10 milljónum punda.

Sport
Fréttamynd

Justin Henin-Hardenne sigraði

Belgíska tenniskonan Justin Henin-Hardenne sigraði Svetlönu Kuznetsovu 6-4 og 6-4 í úrslitaleik opna franska meistaramótsins í tennis í dag og vann þar með sinn þriðja sigur á mótinu á síðustu fjórum árum. Leikurinn stóð yfir í eina klukkustund og 36 mínútur. Þetta var fimmti stóri titill Hardenne á ferlinum.

Sport
Fréttamynd

Eriksson rólegur

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, viðurkenndi að spilamennska liðsins hefði ekki verið sérlega glæsileg í dag, en sagði aðalatriðið hafa verið að sækja öll stigin.

Sport
Fréttamynd

Englendingar lögðu Paragvæ í bragðdaufum leik

Englendingar hirtu öll stigin í opnunarleik sínum í B-riðli HM í dag þegar þeir lögðu Paragvæ 1-0. Markið kom strax á þriðju mínútu leiksins og var sjálfsmark. Enska liðið var ekki sérlega sannfærandi í leiknum, en náði takmarki sínu og hafði sigur.

Sport
Fréttamynd

Landsliðsþjálfarinn hættur

Þjóðverjinn Otto Pfister er hættur sem landsliðsþjálfari Afríkuliðs Tógó og við starfi hans tekur fyrrum aðstoðarþjálfarinn Kodjovi Mawuena. Pfister, sem var elsti þjálfarinn á HM, 68 ára, lenti í miklum deilum við knattspyrnusambandið í Tógó út af bónusgreiðslum til leikmanna og sagði af sér í kjölfarið. Fyrsti leikur Tógó á HM fer fram 13. júní og er gegn Suður-Kóreu.

Sport
Fréttamynd

Fleiri spænsk lið inni í myndinni

Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag að babb sé komið í bátinn í samningaviðræðum Chelsea og Barcelona varðandi hugsanleg kaup á fyrirliða íslenska landsliðsins og fullyrðir að Valencia og annað ónefnt lið sé komið inn í myndina.

Sport