Sport

Argentína 2-0 yfir í hálfleik

Argentínumenn eru í góðri stöðu í hálfleik í Hamburg
Argentínumenn eru í góðri stöðu í hálfleik í Hamburg

Argentínumenn byrja þessa heimsmeistarakeppni sannarlega betur en þá síðustu, en liðið hefur 2-0 forystu gegn spræku liði Fílabeinsstrandarinnar þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í C-riðlinum. Hernan Crespo kom Argentínu á bragðið og Javier Saviola bætti við öðru marki skömmu fyrir leikhlé. Það var Juan Riquelme sem var arkítektinn að báðum mörkum liðsins.

Liðsmenn Fílabeinsstrandarinnar hafa engu að síður verið mjög frískir í leiknum og eru sóknir þeirra stórhættulegar með Didier Drogba í fremstu víglínu. Lánið hefur þó ekki leikið við liðið enn sem komið er í þessum bráðskemmtilega leik. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×