Sport

Íþróttafólkið þorir ekki að borða kjöt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hin norska Henriette Jæger vann til verðlauna á HM innanhúss í vetur og ætlar sér að hjálpa norska boðhlaupslandsliðinu í Kína.
Hin norska Henriette Jæger vann til verðlauna á HM innanhúss í vetur og ætlar sér að hjálpa norska boðhlaupslandsliðinu í Kína. Getty/Patrick Smith

Norska ríkisútvarpið skrifar um áhyggjur íþróttafólks af því að borða kjöt þegar það tekur þátt í heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fer fram í Kína í næsta mánuði.

Ástæðan er að fólk óttast það að í kjötinu séu efni sem gætu síðan fellt það á lyfjaprófi í framhaldinu.

Þetta eru ekki bara einhverjar vangaveltur heldur alvöru áhyggjur. Norska ríkisútvarpið fjallar um málið.

Norska Ólympíunefndin hefur gengið svo langt að ráðleggja íþróttafólki sínu að forðast kjötneyslu í Kína eins mikið og mögulegt er.

Áhættan er kannski ekki mikil en hún er til staðar og það gæti haft hrikalegar afleiðingar fyrir íþróttafólkið verði þetta til þess að þau falli síðan á lyfjaprófi á mótinu.

Það þekkist að íþróttafólk sé að falla á lyfjaprófi vegna ólöglegra aukaefna í mat en þetta hefur gerst bæði í Kína og Mexíkó.

„Áður en við lögðum af stað til Kína þá ráðlagði Ólympíunefndin okkur að reyna að sleppa því að borða kjöt,“ sagði spretthlauparinn Henriette Jæger við NRK. Þetta er HM í boðhlaupum sem fer fram frá 10. til 11. maí.

„Ég þarf að taka aðeins meira af mat með mér. Ekki allur maturinn þar er nógu góður. Ekki þannig að ég verði veik af honum en maður veit þó aldrei,“ sagði Jæger.

„Við vorum vöruð við að forðast kjötið af því að í þeim eru þessi vaxtarhormón sem eru notuð í búfjárræktinni, sagði Unn Merete Jæger, móðir hennar og þjálfari.

Fredrik Lauritzen, yfirmaður hjá norska lyfjaeftirlitinu, útskýrði áhættuna.

„Í sumum löndum þá má finna efni í matvörum sem eru á lista yfir ólögleg lyf hjá Alþjóðalyfjaeftirlitinu. Þessi efni eru í kjötinu af því að dýrin fengu efnin í fóðri til að vaxa hraðar. Ef einhver borðar slíkt kjöt þá gætu þessi efni farið yfir í líkama þess og mælst síðan í þvagi,“ sagði Lauritzen við NRK.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×