Tveir ungir úkraínskir fótboltamenn létust í stríðinu Tveir úkraínskir fótboltamenn hafa látist í stríðinu þar í landi. Leikmannasamtökin FIFPRO greina frá þessu. Fótbolti 3. mars 2022 07:31
Leikmaður Everton segir fyrirliða Rússa vera þögla tík Vitaliy Mykolenko, úkraínskur leikmaður Everton, sendi rússneska landsliðinu tóninn í ansi berorðri færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann skammaði leikmenn þess fyrir að þegja þunnu hljóði eftir innrás Rússa í Úkraínu. Enski boltinn 3. mars 2022 07:08
Úkraínski herinn segir Maríupól enn ósigraða Úkraínski herinn segir Rússum ekki hafa tekist að ná völdum í Maríupól, hafnarborg í suðausturhluta landsins. Rússneskar hersveitir hafa setið um borgina síðustu daga og hefur hún sætt stöðugum árásum. Erlent 3. mars 2022 06:58
Vaktin: Telur ýmislegt benda til þess að Rússar séu á eftir áætlun Vísir heldur áfram að fylgjast með þróun mála í Úkraínu, þar sem rússneski herinn hefur markvisst beint sjónum sínum að mikilvægum innviðum síðasta sólahringinn. Margir Úkraínumenn eru nú án vatns, rafmagns og hita og fjöldi heimila hefur verið eyðilagður. Erlent 3. mars 2022 05:49
Segja ráðamenn í Kína hafa sagt Rússum að bíða með innrásina þar til eftir Ólympíuleikana Ráðamenn í Kína vissu af fyrirætlunum Rússa um að ráðast inn í Úkraínu ef marka má gögn sem yfirvöld í Bandaríkjunum og Evrópu hafa undir höndum. Komu þeir þeim skilaboðum á framfæri við Rússa að láta ekki til skarar skríða fyrr en að Ólympíuleikunum, sem haldnir voru í Pekíng, væri lokið. Erlent 3. mars 2022 05:00
Rússar hafa náð Kherson á sitt vald Rússar hafa náð borginni Kherson á sitt vald. Þetta hefur New York Times eftir heimildarmönnum í Úkraínu. Borgarstjóri borgarinnar og bandarísk yfirvöld höfðu áður sagt að óvíst væri um stöðu mála þar sem bardagar stæðu enn yfir. Erlent 3. mars 2022 04:34
Syngja fyrir Úkraínu Íslenskir söngvarar, og aðrir sem vilja taka þátt, hyggjast hópast saman fyrir framan sendiráð Rússlands á Íslandi og sendiherrabústaðinn í Reykjavík og syngja til stuðnings Úkraínu klukkan níu í fyrramálið. Innlent 2. mars 2022 21:39
Húsið hristist eftir öflugar sprengingar í miðborg Kænugarðs Óskar Hallgrímsson, íslenskur ljósmyndari sem búsettur er í Kænugarði, segir að borgin minni á draugaborg. Fregnir af gríðarlangri hergagnalest Rússa sem sögð er stefna í átt að borginni vekur ugg. Erlent 2. mars 2022 20:47
Þakklát fyrir tillögu um Kænugarðsstræti Kona af úkraínskum ættum sem býr í Garðastræti í Reykjavík er snortin yfir þeirri hugmynd oddvita Sjálfstæðisflokksins að breyta nafni götunnar í Kænugarðsstræti. Það fæli í sér mikilvæga stuðningsyfirlýsingu við þjóð hennar. Innlent 2. mars 2022 20:01
Biden segir Pútín hafa hitt ofjarl sinni í úkraínsku þjóðinni Rússar hafa hert mjög loftárásir sínar á borgir víðs vegar um Úkraínu í dag og fullyrða að þeir hafi náð einni þeirra alfarið á sitt vald. Forseti Bandaríkjanna segir Rússa eiga eftir að finna fyrir afleiðingum innrásarinnar á stöðu sína um langa framtíð. Talið er að um tvö þúsund óbreyttir borgarar hafi fallið frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 2. mars 2022 19:21
Abramovich staðfestir að hann vilji selja Chelsea Chelsea og Roman Abramovich voru rétt í þessu að gefa út tilkynningu þess efnis að rússneski auðkýfingurinn hygðist selja félagið. Enski boltinn 2. mars 2022 18:55
Allsherjarþingið fordæmir innrásina og krefst þess að herlið verði dregið til baka Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun þar sem innrás Rússa í Úkraínu er fordæmd og þess krafist að rússneskir hermenn verði dregnir til baka. Erlent 2. mars 2022 17:55
Undirbúningur hafinn fyrir móttöku flóttafólks Flóttamannanefnd fundaði nú síðdegis og lauk löngum fundi nú á fimmta tímanum. Formaður nefndarinnar segir alveg ljóst að íslensk stjórnvöld muni taka á móti flóttafólki frá Úkraínu eins og önnur Evrópuríki hafa verið að gera. Innlent 2. mars 2022 16:57
Versti dagur stríðsins hingað til Harðir bardagar hafa staðið yfir í allan dag í Kharkív, Mariupol og Kherson. Eldflaugum hefur rignt yfir borgirnar og stórskotalið herjað á þær. Rússar hafa bætt verulega í árásir á skotmörk í borgum sem ekki þjóna hernaðarlegum tilgangi. Erlent 2. mars 2022 16:31
Ál- og gasverð í hæstu hæðum Miklar hækkanir hafa orðið á eldsneytismörkuðum vegna innrásar Rússa í Úkraínu og refsiaðgerða gegn Rússlandi. Tunnan af hráolíu kostar nú meira en 110 Bandaríkjadali og hefur verð jarðgass hefur aldrei verið hærra í Evrópu. Viðskipti erlent 2. mars 2022 15:56
Blaðamannafélagið safnar fyrir úkraínska blaðamenn Blaðamannafélag Íslands hefur hafið fjársöfnun til stuðnings blaðamönnum í Úkraínu. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að mikilvægi fjölmiðla á stríðstímum sé óumdeilt og blaðamenn í Úkraínu þurfi aðstoð til að geta stuðlað að öryggi sínu á meðan þeir miðli til umheimsins fréttum af ástandinu í kjölfar innrásar Rússa. Erlent 2. mars 2022 15:36
Maltverjar loka á vegabréfakaup Rússa Malta hefur ákveðið að loka fyrir umsóknir Rússa og Hvítrússa fyrir svokölluð „gyllt vegabréf“ vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins gegn ríkjunum tveimur. Erlent 2. mars 2022 15:14
Úkraínsk tenniskona sló út Rússa og gefur úkraínska hernum allt verðlaunaféð sitt Úkraínska tenniskonan Elina Svitolina vann Rússann Anastasiu Potapovu á móti í Mexíkó sem er hluti af heimsmótaröðinni í tennis. Hún segir þetta hafa verið stóran sigur fyrir sig en um tíma ætlaði hún ekki að mæta til leiks. Sport 2. mars 2022 15:00
Erlendum ríkisborgurum meinað að flýja Úkraínu Erlendir ríkisborgarar, sérstaklega af afrískum uppruna, hafa lent í miklum vandræðum við að flýja Úkraínu. Margir þeirra segja að þeim hafi verið vísað úr lestum og þeim meinaður aðgangur að almenningssamgöngum á leið úr landinu. Erlent 2. mars 2022 14:09
Tæpar tuttugu milljónir safnast í neyðarsöfnun Rauða krossins Neyðarsöfnun Rauða krossins vegna átakanna í Úkraínu hefur fengið mjög góð viðbrögð frá almenningi. Nú þegar hafa safnast yfir 19,5 milljónir. Heimsmarkmiðin 2. mars 2022 14:00
Úkraínumenn á Íslandi Þar sem Úkraína er ekki innan Evrópska efnahagssvæðisins er líklega meirihluti Úkraínumanna hérlendis á tímabundnu dvalarleyfi. Fólkið er þá bundið því fyrirtæki sem fær útgefið dvalarleyfið, getur ekki sagt upp og ráðið sig annars staðar. Er í raun eins og innflutt hráefni í eigu fyrirtækisins og býr vanalega í húsnæði sem launagreiðandinn skaffar. Skoðun 2. mars 2022 13:31
Veruleiki Úkraínumanna á sjöunda degi stríðs Fátt grípur veruleikann betur en ljósmyndir enda segja þær meira en þúsund orð. Það getur reynst okkur á Íslandi erfitt að gera okkur grein fyrir veruleika Úkraínumanna þessa dagana. Erlent 2. mars 2022 13:24
Tvísýnt er um útflutning á íslenskri sjávarútvegstækni til Rússlands Íslensk tæknifyrirtæki, sem sérhæfa sig í sjávarútvegi og hafa landað verðmætum samningum við rússnesk sjávarútvegsfyrirtæki um aðkomu að nýsmíði fiskveiðiskipa, geta hvorki sent tæknibúnað til Rússlands né átt von á greiðslu fyrir búnaðinn. Þetta segir Bjarni Þór Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Naust Marine. Innherji 2. mars 2022 13:00
Á Kúbu ríkir einræðisstjórn og harðræði Virðing fyrir öðru fólki, ást og góðvild er hluti af mannlífinu, í þessum heimi. Við lifum og mun lifa fyrir hið sameiginlega góða, þetta eru leiðir til að haga sér sem manneskjur. Að elska náunga okkar, að ljúga ekki, drepa ekki, lifa með umburðarlyndi og samúðar að leiðarljósi. Þetta hljóta að vera gildi lýðræðis samfélagsins í dag. Skoðun 2. mars 2022 13:00
Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir 220 milljörðum króna vegna Úkraínu Sameinuðu þjóðirnar og ýmsar hjálparstofnanir hafa í sameiningu farið fram á 1,7 milljarða Bandaríkjadala fjárveitingar í þágu Úkraínu, um 220 milljarða íslenskra króna. Framlögin fara til nauðstaddra í Úkraínu og flóttamanna í nágrannalöndum. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna óttast mesta flóttamannastraum aldarinnar í Evrópu frá Úkraínu. Heimsmarkmiðin 2. mars 2022 12:16
Rússar segja aðra umferð friðarviðræðna fara fram í dag Önnur umferð friðarviðræðna milli Úkraínu og Rússlands fer fram síðar í dag. Þetta kemur fram í frétt rússneska ríkisútvarpsins Tass og þar vísað í starfsmann úkraínska forsetaembættisins. Erlent 2. mars 2022 11:59
Eyþór segir það enga ögrun við Rússa að leggja til Kænugarðsstræti Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir það á engan hátt ögrun við Rússa að leggja til að nafni Garðastrætis verði breytt í Kænugarðsstræti, þrátt fyrir að sendiráð þeirra standi við Garðastræti 33. Fyrst og fremst sé um stuðning við Úkraínu að ræða. Innlent 2. mars 2022 11:57
Grunnskólabörn handtekin í Moskvu fyrir að leggja blóm við úkraínska sendiráðið Að minnsta kosti fjögur grunnskólabörn og foreldrar þeirra voru handtekin í Moskvu í gær þegar þau lögðu blóm við úkraínska sendiráðið og héldu á skiltum sem á stóð „Nei við stríði“. Erlent 2. mars 2022 11:37
Bein útsending: Innrásin og afleiðingarnar fyrir öryggi í Evrópu Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag stjórnmálafræðinga standa fyrir opnum fundi um innrás Rússlands í Úkraínu og þær afleiðingar sem innrásin hefur fyrir öryggi í Evrópu. Innlent 2. mars 2022 11:31
Navalní kallar eftir mótmælum: „Pútín er ekki Rússland“ Rússneski andófsmaðurinn Alexei Navalní kallar eftir því að Rússar haldi umfangsmikil mótmæli gegn innrásinni í Úkraínu. Þetta segir Navalní í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér þar sem hann situr í fangelsi í Rússlandi. Erlent 2. mars 2022 11:02