Þorvaldur Örlygsson vill fá dómarakennslu inn í skólakerfið Þorvaldur Örlygsson er í framboði til formanns Knattspyrnusambands Íslands á komandi ársþingi og hann vill leita nýrra og ferskra leiða til að bæta dómgæslu í íslenskri knattspyrnu. Íslenski boltinn 24. janúar 2024 09:02
Reiðir kínverskir aðdáendur ruddust inn á hótel Ronaldos og félaga Cristiano Ronaldo hefur beðist afsökunar á því að Al-Nassr hafi þurft að hætta við að spila leiki í Kína vegna meiðsla hans. Fótbolti 24. janúar 2024 08:30
Hákon á leið til Brentford Elfsborg hefur samþykkt kauptilboð enska úrvalsdeildarliðsins Brentford í íslenska landsliðsmarkvörðinn Hákon Rafn Valdimarsson. Enski boltinn 24. janúar 2024 07:53
Sven-Göran Eriksson hylltur í gærkvöldi: „Nú fer ég bara að gráta“ Sænski knattspyrnuþjálfarinn Sven-Göran Eriksson fékk höfðinglegar móttökur á uppskeruhátíð sænska íþrótta, Idrottsgalan. Fótbolti 23. janúar 2024 23:00
Alsír óvænt úr leik eftir tap gegn Máritaníu Alsír er óvænt úr leik á Afríkumótinu í knattspyrnu eftir tap gegn Máritaníu í kvöld, 1-0. Á sama tíma tryggði Angóla sér efsta sæti D-riðilsins með 2-0 sigri gegn Búrkína Fasó. Fótbolti 23. janúar 2024 22:03
Chelsea í úrslit eftir stórsigur Chelsea tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum enska deildarbikarsins er liðið vann sannkallaðan stórsigur gegn B-deildarliði Middlesbrough í kvöld, 6-1. Fótbolti 23. janúar 2024 21:51
West Ham nær samkomulagi við Englandsmeistarana um Phillips Ensku úrvalsdeildarfélögin West Ham og Manchester City hafa komist að samkomulagi um að West Ham fái miðjumanninn Kalvin Phillips á láni út tímabilið. Fótbolti 23. janúar 2024 20:30
Ótrúleg endurkoma kom Kamerún í 16-liða úrslit Senegal tryggði sér sigur í C-riðli Afríkumótsins í fótbolta með 2-0 sigri gegn Gíneu í kvöld. Á sama tíma vann Kamerún dramatískan 3-2 sigur gegn Gambíu og tryggði sér áframhaldandi veru í keppninni. Fótbolti 23. janúar 2024 19:09
Meiðsli Salah alvarlegri en áður var talið Mohamed Salah, framherji Liverpool og egypska landsliðsins í knattspyrnu, missir að öllum líkindum af því sem eftir er af Afríkumótinu eftir að hafa orðið fyrir vöðvameiðslum í leik gegn Gana á dögunum. Fótbolti 23. janúar 2024 17:46
Algjör markaþurrð í nýju samstarfi Messi og Suárez Vinirnir Lionel Messi og Luis Suárez eru sameinaðir á nýjan leik inn á fótboltavellinum en það er ekki hægt að segja að þeir fari vel af stað með Inter Miami liðinu. Fótbolti 23. janúar 2024 16:00
Benzema bað um tímabundið leyfi Karim Benzema hefur beðið um að fá tímabundið leyfi frá sádi-arabíska félaginu Al-Ittihad. Fótbolti 23. janúar 2024 15:31
Óskar Hrafn að setja saman fjölþjóðalið í Haugesund Óskar Hrafn Þorvaldsson, fyrrum þjálfari Breiðabliks, er að setja saman nýtt lið hjá Haugesund í Noregi en hann tók við norska úrvalsdeildarliðinu fyrir áramótin. Tveir nýjustu leikmenn liðsins koma langt að. Fótbolti 23. janúar 2024 14:00
Markahæsti leikmaður ítalska landsliðsins látinn Luigi Riva, markahæsti leikmaður í sögu ítalska fótboltalandsliðsins, er látinn, 79 ára að aldri. Fótbolti 23. janúar 2024 13:01
Segist vera dóttir Peles og vill að hann verði grafinn upp Brasilísk kona sem segist vera dóttir fótboltagoðsagnarinnar Peles vill að lík hans verði grafið upp fyrir faðernispróf. Fótbolti 23. janúar 2024 07:30
Tilfinningaþrunginn Freyr í fyrsta leik sínum í Belgíu Freyr Alexandersson byrjaði þjálfunarferil sinn í Belgíu með látum þegar lið hans KV Kortrijk vann óvæntan 1-0 útisigur á Standard Liege. Nú hefur félag hans birt gríðarlega tilfinningaþrungið myndband frá sigrinum þar sem heyra má hvað Freyr sagði við mannskapinn fyrir leikinn. Fótbolti 22. janúar 2024 23:01
Egyptaland áfram eftir mikla dramatík Egyptaland er komið áfram í útsláttarkeppni Afríkukeppninnar í knattspyrnu eftir gríðarlega dramatík í lokaumferðinni. Egyptar, sem voru án Mohamed Salah, gerðu jafntefli í öllum þremur leikjum sínum. Þá eru gestgjafar Fílabeinsstrandarinnar einnig úr leik. Fótbolti 22. janúar 2024 22:26
Atlético upp í Meistaradeildarsæti Atlético Madríd vann nauman útisigur á Granada í eina leik spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, La Liga, í kvöld. Sigurinn lyftir Atlético upp í Meistaradeildarsæti á meðan Granada er að berjast fyrir tilverurétti sínum í deildinni. Fótbolti 22. janúar 2024 22:00
Inter Ofurbikarmeistari eftir dramatískan sigur Inter sigraði Ítalíumeistara Napolí í úrslitum um Ofurbikarinn en leikurinn fór þó fram í Riyadh í Sádi-Arabíu. Sigur Inter var einkar verðskuldaður en sigurmarkið kom þó ekki fyrr en í uppbótartíma. Fótbolti 22. janúar 2024 21:05
„Þakklætið og brosið frá þeim gefur til baka“ Lið knattspyrnuakademíunnar Ascent Soccer frá Malaví kom, sá og sigraði á alþjóðlega mótinu Rey Cup hér í Reykjavík síðastliðið sumar. Þar með í för voru leikmennirnir Levison Mnyenyembe og Precious Kapunda sem hafa nú fengið tækifæri til þess að upplifa draum sinn og spreyta sig á reynslu hjá liði Aftureldingar næstu mánuðina með hjálp góðra styrktaraðila Íslenski boltinn 22. janúar 2024 20:01
Birnir Snær til Svíþjóðar Sænska knattspyrnufélagið Halmstad hefur tilkynnt að Birnir Snær Ingason, fráfarandi leikmaður Íslands- og bikarmeistara Víkings, sé nýjasti leikmaður félagsins. Ekki kemur fram hversu langan samning Birnir Snær gerir við félagið. Fótbolti 22. janúar 2024 17:54
Víkingur vann 7-0 sigur á KR Kvennalið Víkings hélt sigurgöngu sinni áfram í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu með sjö marka stórsigri á KR í gær. Íslenski boltinn 22. janúar 2024 15:31
Carragher: Betri að klára færin en Torres, Suarez og Salah Jamie Carragher var heldur betur ánægður með Portúgalann Diogo Jota eftir 4-0 sigur Liverpool á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í gær. Enski boltinn 22. janúar 2024 10:21
Segir að margar stjörnur séu ósáttar við lífið í Sádi-Arabíu Aymeric Laporte, leikmaður Al-Nassr í Sádi-Arabíu, segir að margar af þeim fótboltastjörnum sem spila í landinu séu ósáttar við lífið þar. Fótbolti 22. janúar 2024 08:01
Salah mun snúa aftur til Liverpool til að fá meðhöndlun við meiðslunum Jürgen Klopp, þjálfari enska knattspyrnufélagsins Liverpool, ræddi stöðuna á Mohamed Salah eftir 4-0 sigur liðsins á Bournemouth í gær, sunnudag. Enski boltinn 22. janúar 2024 07:01
Juventus á toppinn Juventus vann öruggan 3-0 útisigur á Lecce í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Sigurinn þýðir Juventus er komið á topp deildarinnar en Inter á þó leik til góða í 2. sætinu. Fótbolti 21. janúar 2024 21:45
Dagnýjarlaust West Ham tapaði enn einum leiknum Það gengur hvorki né rekur hjá West Ham United í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Í kvöld tapaði liðið á dramatískan hátt gegn Tottenham Hotspur sem þýðir að Hamrarnir hafa tapað fimm af síðustu sex leikjum. Enski boltinn 21. janúar 2024 20:49
Albert tryggði sigurinn af vítapunktinum Albert Guðmundsson tryggði Genoa 2-1 útisigur á Salernitana í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Fótbolti 21. janúar 2024 19:50
Dramatískir sigrar hjá Real Madríd og Barcelona Real Madríd vann gríðarlega dramatískan sigur á botnliði Almería í La Liga, úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Spáni. Lokatölur 3-2 þar sem gestirnir komust 2-0 yfir. Spánarmeistarar Barcelona unnu einnig dramatískan sigur þökk sé Ferran Torres þegar þeir sóttu Real Betis heim. Fótbolti 21. janúar 2024 19:46
Hákon Arnar skaut Lille áfram í bikarnum Franska úrvalsdeildarliðið Lille lenti í kröppum dansi gegn D-deildarliði Racing CFF í frönsku bikarkeppninni í knattspyrnu. Hákon Arnar Haraldsson sá hins vegar til þess að Lille skreið áfram en hann skoraði eina mark leiksins. Fótbolti 21. janúar 2024 18:45
Toppliðið jók forskot sitt á toppi deildarinnar Eftir markalausan fyrri hálfleik á Vitality-vellinum þá skoraði topplið ensku úrvalsdeildarinnar, Liverpool, fjórum sinnum og vann gríðarlega sannfærandi útisigur á Bournemouth. Enski boltinn 21. janúar 2024 18:25