Erlent
231 232 233 234 235 236 237 238 239 … 334 ›
Bannon aftur ákærður fyrir svik vegna múrsins Stephen Bannon, langtímabandamaður Donalds Trumps og fyrrverandi ráðgjafi hans í Hvíta húsinu, hefur verið ákærður fyrir svik og fjárþvætti. Saksóknarar í New York saka hann um að svindla á fólki í tengslum við fjáröflunina „We Build the Wall“ sem safna átti peningum til byggingar múrs á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Erlent 8.9.2022 16:39
Vaktin: Elísabet Bretlandsdrottning er fallin frá Elísabet II Bretlandsdrottning er látin. Karl, sonur hennar, er nú orðinn konungur Bretlands. Erlent 8.9.2022 13:55
Danir lækka hitann í almenningsrýmum Danir hafa ákveðið að lækka hitastigið í almenningsrýmum til þess að sporna gegn háu orkuverði í landinu. Neyðarlög voru samþykkt á danska þinginu fyrr í dag þar sem rafmagnsskattur var lækkaður. Erlent 8.9.2022 13:26
Reyndu að stofna kínverskt sjálfstjórnarsvæði á Marshall-eyjum Tveir Kínverjar voru nýlega ákærðir af yfirvöldum í Bandaríkjunum fyrir að múta þingmönnum og opinberum starfsmönnum á Marshall-eyjum til þess að reyna að stofna sjálfstjórnarsvæði fyrir Kína á afskekktri eyju. Eyjurnar var undir stjórn Bandaríkjanna til ársins 1979. Erlent 8.9.2022 12:42
Drottningin undir sérstöku eftirliti lækna Elísabet önnur Bretlandsdrottning er nú undir sérstöku eftirliti lækna í Balmoral-kastalanum í Skotlandi. Ákvörðun þessa efnis var tekin í kjölfar þess að heilsu hennar hrakaði í morgun. Allir í nánustu fjölskyldu drottningar eru þegar komin til Balmoral eða eru nú á leiðinni þangað. Erlent 8.9.2022 11:51
Rússar hafa rænt allt að 1,6 milljónum Úkraínumanna og flutt til Rússlands Forseti Úkraínu þakkaði hersveitum sínum fyrir nýlega frækilega framgöngu og sigra í Kharkiv héraði. Fulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum gagnrýnir Rússa harðlega fyrir nauðungarflutninga á allt að 1,6 milljónum úkraínskra borgara til Rússlands. Erlent 8.9.2022 11:43
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Komnir langt í gegnum varnir Rússa í Kharkív Hersveitir Úkraínu hafa sótt töluvert fram gegn Rússum Kharkív-héraði í norðurhluta Úkraínu á undanförnum dögum. Það gerðu þær með skyndisókn sem virðist hafa komið Rússum á óvart og Úkraínumenn hafi nýtt sér það að Rússar fluttu hersveitir til suðurs til að bregðast við sókn Úkraínumanna í Kherson-héraði. Erlent 8.9.2022 11:04
Veggir einnar elstu borgar Pakistan féllu Veggir hinnar fornu borgar Moenjodaro hafa orðið fyrir miklum skemmdum vegna úrhellisrigningar og flóða sem nú eru í gangi í Pakistan. Borgin er á Heimsminjaskrá UNESCO og var byggð fyrir fimm þúsund árum síðan. Erlent 8.9.2022 10:28
Lífstíðarfangelsi fyrir kennaramorðin í Malmö Dómstóll í Malmö í Svíþjóð hefur dæmt átján ára karlmann, Fabian Cederholm, í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt tvo kennara við framhaldsskólann Malmö Latin í vor. Erlent 8.9.2022 09:44
82 látnir eftir skjálfta í Kína Minnst áttatíu og tveir eru látnir eftir að jarðskjálfti að stærðinni 6,8 reið yfir héraðið Sichuan í suðvesturhluta Kína á mánudag. Erlent 8.9.2022 08:01
32 látnir eftir eldsvoða á karókíbar í Víetnam Alls eru 32 nú látnir eftir eldsvoða sem kom upp á karókíbar ekki langt frá víetnömsku borginni Ho Chi Minh á síðastliðið þriðjudagskvöld. Gríðarmikill eldur kom upp og varð mikill fjöldi gesta innlyksa og þá neyddust aðrir til að stökkva út um glugga á þriðju hæð byggingarinnar. Erlent 8.9.2022 07:45
Hvítrússneski herinn æfir við landamæri Póllands Hvítrússneski herinn hefur hafið heræfingar við borgina Brest nærri pólsku landamærunum, við höfuðborgina Mínsk og í héraðinu Vitebsk í norðausturhluta landsins. Erlent 8.9.2022 07:11
Hinn árásarmaðurinn lést í haldi lögreglu Kanadamaðurinn Myles Sanderson, sem grunaður er um að hafa stungið tíu til bana og sært átján í röð árása í héraðinu Saskatchewan fyrr í vikunni, lést í gærkvöldi stuttu eftir að hann var handtekinn af lögreglu. Erlent 8.9.2022 06:39
Málverk Obama hjóna afhjúpuð Forsetamálverk Obama hjóna voru afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Hvíta húsinu í dag. Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna líkti forsetastarfinu við boðhlaup. Erlent 8.9.2022 00:00
Seinni árásarmaðurinn í haldi lögreglu Annar þeirra sem var leitað eftir stunguárásirnar í Saskachewan í Kanada nú a dögunum hefur verið handsamaður. Tveir árásarmenn eru sagðir hafa verið að verki og fannst annar þeirra sem lágu undir grun látinn daginn eftir að árásirnar áttu sér stað. Erlent 7.9.2022 22:28
Aflimanir framkvæmdar tugþúsundum ára fyrr en talið var Vísindamenn hafa nú fundið beinagrind í helli í Indónesíu sem bendir til þess að aflimanir hafi verið framkvæmdar fyrr en áður var talið. Beinagrindin er sögð 31.000 ára gömul og á hana vantar neðri hluta vinstri fótleggjar. Erlent 7.9.2022 18:04
Farþegi skemmtiferðaskips lést eftir hákarlaárás Bandarísk kona sem var snorkla við strendur Bahamaeyja lést í gær eftir að hafa orðið fyrir hákarlaárás. Fjölskylda konunnar varð vitni að árásinni. Erlent 7.9.2022 16:34
Nafna Liz Truss hrekkir Íhaldsmenn og þjóðarleiðtoga Eigandi notendanafnsins @LizTruss á Twitter er ekki nýr forsætisráðherra Bretlands, heldur bresk kona að nafni Liz Trussel. Fjöldi fólks hefur merkt Trussel í færslur á Twitter og hefur hún gripið gæsina og orðið heimsfræg í leiðinni. Erlent 7.9.2022 14:26
Ógna birgðalínum Rússa í austri Hersveitir Úkraínu virðast hafa náð þó nokkrum árangri í gagnsókn þeirra í Kharkív-héraði í norðurhluta landsins. Gagnsóknin hófst í gær og virðast Úkraínumenn hafa komið Rússum á óvart, umkringt rússneska hermenn í borginni Balaklia og sótt áfram austur inn á yfirráðasvæði Rússa. Erlent 7.9.2022 11:52
Segir heiminum stafa ógn af viðskiptaþvingunum Vesturlanda Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að viðskiptaþvinganir Vesturlanda gegn Rússum vegna stríðsins í Úkraínu séu skammsýnar og að heiminum öllum stafi ógn af þeim – heimi sem í síauknum mæli beini sjónum sínum að Asíu. Erlent 7.9.2022 08:36
Kanadíska árásarmannsins enn leitað Kanadíska lögreglan leitar enn Myles Sanderson, sem grunaður er að hafa banað ellefu og sært átján í röð hnífstunguárása í Kanada á sunnudag og mánudag. Lögregla segir hann ekki staddann á landi James Smith Cree þjóðarinnar en grunur var uppi um að til hans hafi sést á svæðinu í gær. Erlent 7.9.2022 08:31
Sjö drukknuðu í bílakjallara í Suður-Kóreu Sjö drukknuðu þegar þeir festust inni í bílakjallara í Suður-Kóreu. Mikið vatn hafði flætt inn í kjallarann vegna rigninga og flóða sem fellibylurinn Hinnamnor orsakaði. Fólkið er sagt hafa ætlað að færa bíla sína úr kjallaranum þegar flóðbylgja skall á og drekkti fólkinu. Erlent 7.9.2022 07:58
Enginn stuðningsmanna andstæðingsins fær sæti í ríkisstjórn Truss Liz Truss nýr forsætisráðherra Bretlands hefur skipað marga af sínum nánustu vinum, samstarfsmönnum og skoðanabræðrum í ríkisstjórn sína eftir að hún tók við embættinu af Boris Johnson í gær. Erlent 7.9.2022 07:34
Fundu leynigögn um kjarnorkuvopn á heimili Trumps Eitt af þeim skjölum sem fannst við húsleit bandarísku alríkislögreglunnar FBI á heimili Donalds Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta í Mar-a-Lago á Flórída, geymdi háleynilegar upplýsingar um kjarnorkuvopn erlends ríkis. Erlent 7.9.2022 06:41
Hollenskir bakarar bangnir um eigið lifibrauð Félag hollenskra brauð- og sætabrauðsbakara er sagt hafa sent frá sér heilsíðu auglýsingu í dagblaði þar í landi á dögunum þar sem meðlimir lýsa yfir áhyggjum vegna hækkandi orkukostnaðar. Bakaríin séu í mikilli hættu. Erlent 6.9.2022 23:05
Truss heitir skattalækkunum og tafarlausum aðgerðum í orkumálum Liz Truss hét því í dag þegar hún tók við embætti forsætisráðherra að lækka skatta og grípa til aðgerða strax í næstu viku til að létta byrðarnar á breskum almenningi vegna hækkandi orkuverðs. Hún er fjórði forsætisráðherra Íhaldsflokksins á sex árum. Erlent 6.9.2022 19:20
Sekta Meta um 57,7 milljarða króna Írska persónuverndarstofnunin hefur sektað Meta, móðurfyrirtæki Facebook, Instagram og WhatsApp um rúmlega 400 milljónir Bandaríkjadala eða um 57,7 milljarða króna. Sektin er gefin út vegna ófullnægjandi öryggisráðstafana Instagram hvað varðar notendur undir átján ára aldri. Erlent 6.9.2022 18:31
Sækja líka fram gegn Rússum í norðri Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu mun í ávarpi sínu í kvöld tilkynna „góðar fréttir“ varðandi nýja gagnsókn Úkraínumanna gegn hersveitum Rússlands í norðurhluta landsins. Hávær orðrómur gengur um á samfélagsmiðlum í Úkraínu og Rússlandi um að Úkraínumenn hafi náð góðum árangri í austurhluta Kharkív-héraðs. Erlent 6.9.2022 15:29
Krafa Trumps samþykkt af dómara sem hann tilnefndi Dómari opinberaði í gær þá niðurstöðu sína að utanaðkomandi aðili myndi fara yfir gögnin sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) lögðu hald á í Mar-a-Lago, sveitarklúbbi og heimili Donalds Trumps í Flórída. Dómarinn hefur líka meinað dómsmálaráðuneytinu tímabundið að nota gögnin sem haldlögð voru við mögulega rannsókn sem beinist að Trump. Erlent 6.9.2022 14:31
„Feiti Leonard“ slapp úr stofufangelsi Leonard Glenn Francis, oftast kallaður, „Feiti Leonard“, slapp úr stofufangelsi í dag eftir að hann skar á ökklaband sitt. Dómsuppkvaðning í máli hans var á dagskrá eftir þrjár vikur. Erlent 6.9.2022 13:39