Eldgos og jarðhræringar
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 132 ›
Skjálfti á Reykjanesi fannst á höfuðborgarsvæðinu Jarðskjálfti varð á Reykjanesi um klukkan tíu í morgun og fannst hann á höfuðborgarsvæðinu. Skálftinn var 3,3 stig, samkvæmt upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu íslands. Innlent 13.4.2024 10:06
Alls 42 andmælt ástandsskoðunum NTÍ í Grindavík Alls hafa 42 sent inn andmæli vegna matsgerðar Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ) vegna tjónamála í kjölfar náttúruhamfaranna í Grindavík. Alls hafa borist 495 tilkynningar til NTÍ þannig um er að ræða um 8,5 prósent tilkynninga. Innlent 13.4.2024 08:59
Almannavarnir greiða umframorkunotkun í Grindavík Almannavarnir hafa ákveðið að hjálpa fasteignaeigendum í Grindavík við að standa straum af kostnaði vegna hærri rafmagns- og hitaveitureikninga á meðan aðgerðir til að verja hús fyrir frostskemmdum í kjölfar náttúruhamfaranna stóðu yfir. Innlent 12.4.2024 16:49
Fyrstu kaup Þórkötlu í Grindavík gengin í gegn Fasteignafélagið Þórkatla gekk í dag frá fyrstu kaupsamningunum um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík. Viðkomandi fasteignareigendur munu fá greitt út 95 prósent af kaupverði eigna þeirra í næstu viku. Innlent 12.4.2024 15:15
Gosið helst stöðugt og landris heldur áfram Eldgos sem hófst í Sundhnúksgígsröðinni þann 16. mars síðastliðinn helst enn stöðugt og hefur landris í Svartsengi haldið áfram á svipuðum hraða síðan í byrjun apríl. Innlent 12.4.2024 14:30
„Það má ekki missa kjarkinn“ Átta manns fengu heiðursviðurkenningu frá bæjarstjórn Grindavíkur í dag í tilefni þess að fimmtíu ár er frá því bærinn fékk kaupstaðarréttindi. Þeirra á meðal er Alli á Eyri sem hvetur Grindvíkinga til að missa ekki kjarkinn. Lífið 10.4.2024 20:01
Afmælishátíð í skugga hamfara Alltof margar fjölskyldur í Grindavík eru enn á hrakhólum. Þetta var meðal þess sem kom fram á afmælishátíð bæjarins sem var haldin í skugga hamfara. Forseti Íslands hvetur fólk til að gefast ekki upp og sýna áfram kjark. Innlent 10.4.2024 19:01
Vilja flytja heilt raðhús úr Grindavík í Garðinn Verktakafyrirtækið Kimar ehf. hefur óskað eftir lóð í Garði fyrir nýtt fimm íbúða einingaraðhús, sem yrði flutt af grunni úr Grindavík á nýja lóð. Innlent 9.4.2024 16:53
Hraunbreiðan orðin rúmir sex ferkílómetrar Þrátt fyrir að dregið hafi úr krafti eldgossins eru ekki merki um að heildar kvikuflæði frá dýpi sé að minnka. Það er samanlagt magn sem safnast saman undir Svartsengi auk þeirra kviku sem flæðir upp á yfirborð í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 9.4.2024 15:46
Lítil gasmengun mælst um helgina Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina mallar áfram og er nú einn gígur virkur. Hraunflæði er nú aftur farið að renna að megninu til suðurs eftir að það flæddi til norðurs um tíma í gær. Lítil gasmengun hefur mælst um helgina. Innlent 8.4.2024 16:27
Gígbarmurinn brostinn og hraun rennur í norðurátt Barmur eina gígsins sem enn gýs úr milli Hagafells og Stóra-Skógfells virðist hafa brostið norðanmegin í kvöld. Innlent 7.4.2024 23:42
Hraunfossinn í nærmynd Hraunfoss rennur nú yfir gígbarminn í eina gígnum sem enn lifir í eldgosinu við Sundhnúka. Björn Steinbekk flaug dróna yfir gosið fyrr í dag og fangaði sjónarspilið í nærmynd. Innlent 7.4.2024 22:44
Hraun flæðir úr gígnum við Sundhnúka Mikið yfirfall er nú úr gígnum við Sundhnúka og tilkomumikið sjónarspil sést á vefmyndavélum. Innlent 7.4.2024 16:27
Etna blæs ótrúlegum reykhringjum Eldfjallið Etna á Sikiley, stærsta virka eldfjall í Evrópu, hefur blásið fallegum reykhringjum síðan á miðvikudag. Eldfjallafræðingur segir ekkert fjall hafa blásið jafnmörgum hringjum og Etna gerir nú. Erlent 7.4.2024 07:55
„Aldrei teflt í tvísýnu með öryggi gesta eða starfsfólks“ Fyrstu gestirnir í þrjár vikur dýfðu tánum í Bláa lónið klukkan tólf á hádegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu fagnar opnuninni og segir fyllsta öryggis gætt. Innlent 6.4.2024 13:23
Tímaspursmál hvenær hraun fari að renna til norðurs Aðeins gýs í einum gíg við Sundhnúka. Fjarað hefur út í syðri og smærri gígnum. Sá sem enn gýs í hækkar jafnt og þétt og gnæfir um 25 metra yfir hraunbreiðunni. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segir það vera tímaspursmál hvenær hraun fer að renna til norðurs. Innlent 6.4.2024 10:46
Vilja bjóða gestum í iður jarðar við Perluna Félag sem leigir Perluna hefur óskað eftir því að fá að reisa færanlegt sýningarhúsnæði undir eldfjallasýningu við bygginguna. Ætlunin er að bjóða gestum upp á ferð niður í iður jarðar á Reykjanesi með „lyftu“. Innlent 5.4.2024 20:24
Gagnrýna bæjarstjórn fyrir samráðsleysi og vilja fjölbreyttari úrræði Fyrirtæki í Grindavík kalla eftir mun fjölbreyttari úrræðum vegna stöðunnar í bænum. Algjör óvissa sé um hvort og hvenær íbúar geti snúið til baka og því ljóst að hluti fyrirtækja muni þurfa að hætta starfsemi í bænum. Bæjarstjórn er gagnrýnd fyrir samráðsleysi. Innlent 5.4.2024 20:01
Opna Bláa lónið þrátt fyrir hættu á gasmengun Bláa lónið opnar dyr sínar á ný á hádegi á morgun. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir ákvörðunin alfarið forsvarsmanna fyrirtækisins. Áfram sé hætta á gasmengun á svæðinu. Innlent 5.4.2024 14:50
„Takk Þórkatla fyrir ekki neitt“ Soffía Snædís Sveinsdóttir er fyrrverandi íbúi í Grindavík er ósátt hvernig gengur að gera upp við eigendur húsnæðis í Grindavík - hún vandar Þórkötlu ekki kveðjurnar. Innlent 5.4.2024 10:32
Tveir gígar enn virkir Tveir gígar eru enn virkir í eldgosinu á Reykjanesskaga og er sá nyrðri stærri. Áfram mælast gildi brennisteinsdíoxíðs í kringum eldgosið og í byggð á Reykjanesskaga há. Innlent 4.4.2024 16:52
Funda um opnun Bláa lónsins í fyrramálið Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum fundaði með forsvarsmönnum Bláa lónsins í dag og mun gera það aftur í fyrramálið til að taka ákvörðun um starfsemi lónsins. Hættuleg gasmengun hefur komið í veg fyrir opnun lónsins frá því að eldgos hófst á Reykjanesskaga í síðasta mánuði. Innlent 4.4.2024 16:01
Blaðamenn fá sama aðgengi og aðrir viðbragðsaðilar í hættuástandi Blaðamannafélag Íslands og ríkið hafa komist að samkomulagi að aðgengi blaðamanna að vettvangi þegar hættuástand kemur upp. Með samkomulaginu er blaðamönnum tryggt jafn mikið aðgengi og öðrum viðbragðaðilum á vettvangi. Innlent 4.4.2024 11:09
Ekkert ferðamannagos Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að ferðamönnum verði ekki hleypt að gosstöðvunum við Sundhnúk á næstunni. Nokkur áhugi er meðal ferðamanna að komast að gosinu. Þeir hafa bókað til þess þyrluferðir og verið snúið við þegar þeir hafa reynt að komast inn á lokað svæði. Innlent 3.4.2024 21:31
Eldgosið í beinni Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Dregið hefur úr virkninni en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan. Innlent 3.4.2024 13:15
Íslenskir bræður við upptök skjálftans: „Traffíkin stoppaði alveg og hlutir byrjuðu að hrynja“ Að minnsta kosti níu eru látnir og 800 slasaðir eftir að jarðskjálfti að stærð 7,4 reið yfir á Taívan í nótt. Íslendingur á upptakasvæðinu fylgdist með umferð stöðvast og hlutum hrynja þegar jörð tók að skjálfa. Hann og bróðir hans þurftu að flýja inn í land í skyndi þegar flóðbylgjuviðvaranir voru gefnar út. Innlent 3.4.2024 12:10
„Upp með hökuna og áfram gakk“ Skipstjóri fyrsta frystitogarans sem landaði í Grindavík í morgun í fyrsta sinn í fimm mánuði segir blendnar tilfinningar fylgja tímamótunum. Hann fékk ryk í augun þegar skipið sigldi að landi. Útgerðarstjóri segir tilfinninguna gríðarlega góða og gleðilegt að líf sé að færast í bæinn. Innlent 2.4.2024 21:13
Mögulega komið á jafnvægi undir Svartsengi Mögulega er komið á jafnvægi í aðstreymi kviku inn undir Svartsengi og upp úr gígum eldgossins. Þetta gætu jarðefnafræðimælingar staðfest á næstunni. Landris í Svartsengi hefur ekki mælst síðustu daga sem bendir einkum til þess að kvikan safnist síður fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi en flæði frekar beint út um gosopin. Innlent 2.4.2024 13:26
Virkni enn stöðug og fátt bendir til gosloka Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn nokkuð stöðug og segir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands engin merki um að gosinu sé að ljúka þó slokknað hafi í einum af gígunum þremur. Fréttir 2.4.2024 12:01
Segir íbúa ekki hugsa hlutina til enda og treysta sérfræðingum í blindni Bæjarfulltrúi í Grindavík veltir fyrir sér hvort íbúar séu of fljótir á sér með uppkaupum húsnæðis og flótta úr bænum. Hann telur íbúa og bæjarstjórn vera áhorfendur að því sem sé að gerast og hlusti á sérfræðinga í blindni án þess að hugsa hlutina til enda. Innlent 1.4.2024 18:15