Golf

„Fylgir því því­lík sæla að koma hingað aftur“

Aron Guðmundsson skrifar
Þessir spræku kylfingar eru reglulegir gestir á Húsatóftavelli og voru á miðjum hring þegar að fréttastofu bar að garði. Talið upp frá vinstri eru þetta þau Edvard Júlíusson einn af stofnmeðlimum Golfklúbbs Grindavíkur, Margrét Brynjólfsdóttir, Gísli Jónsson og Sveinn Ísaksson
Þessir spræku kylfingar eru reglulegir gestir á Húsatóftavelli og voru á miðjum hring þegar að fréttastofu bar að garði. Talið upp frá vinstri eru þetta þau Edvard Júlíusson einn af stofnmeðlimum Golfklúbbs Grindavíkur, Margrét Brynjólfsdóttir, Gísli Jónsson og Sveinn Ísaksson Vísir/Arnar Halldórsson

Hópur kylfinga var mættur að leika sinn dag­lega hring á Húsa­tófta­velli í ná­greni Grinda­víkur í gær en völlurinn var opnaður á nýjan leik á sunnu­daginn síðast­liðinn eftir ó­vissu sökum jarð­hræringa á Reykja­nes­skaga. Meðal þeirra var einn af stofn­endum Golf­klúbbs Grinda­víkur sem segir því fylgja því­lík sæla að geta snúið aftur á völlinn.

Þau Margrét Brynjólfs­dóttir, Gísli Jóns­son, Ed­vard Júlíus­son og Sveinn Ísaks­son nutu þess að spila í blíð­skapar­veðri á Húsa­tófta­velli í dag þegar að okkur bar að garði og voru himin­lifandi með að geta leikið aftur golf á sínum velli því gengið hefur á ýmsu undan­farna mánuði.

Klippa: „Sömu gömlu sprungurnar og hafa alltaf verið hér“

„Það er góð til­finning sem fylgir því að snúa hingað aftur á Húsa­tófta­völl og leika golf á nýjan leik. Það er ekki hægt að segja annað,“ segir Gísli Jóns­son. Völlurinn er í topp­standi.“

Margrét tók undir orð Gísla en þau eru Grind­víkingar og hafa verið annað slagið í bænum.

„Þetta hefur allt saman verið í lausu lofti. En þetta fer að lagast.“

Með þeim í för á Húsa­tófta­velli þennan dag var Ed­vard Júlíus­son sem er hvorki meira né minna en einn af stofn­með­limum Golf­klúbbs Grinda­víkur. Hann líkt og aðrir er ó­trú­lega á­nægður með að geta spilað aftur golf á vellinum.

„Það er ekki hægt að segja neitt annað. Það fylgir því því­lík sæla að koma hingað aftur. Taka upp sömu gripin og maður hefur haft árum saman.“

Þú hefur engu gleymt?

„Nei engu gleymt,“ svaraði Edvard. „ Engu gleymt. Blessaður vertu við erum enn að ná fuglum og pari. Allt það sem þarf að vinna í þessu.

Kylfingar sem leika golf á Húsa­tófta­velli þurfa að fara eftir á­kveðnum reglum sem gilda á svæðinu sökum jarð­hræringanna á Reykja­nes­skaga. Fjór­menningarnar upp­lifa sig full­kom­lega örugga á svæðinu.

„Þetta eru sömu gömlu sprungurnar og hafa alltaf verið hér. Það er engin hætta á því að maður fari ofan í þær,“ svaraði Gísli og Ed­vard endur­ómaði hans orð: „Við þekkjum þetta alveg.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×