Bílastæði
1 2 3 4 5 ›
Bíll alelda í bílastæðahúsi í miðbæ Reykjavíkur Eldur kom upp í bíl í opnu bílastæðahúsi í Þingholtsstræti í Reykjavík. Innlent 19.1.2023 22:19
Endurheimti ekki bílinn fyrr en hann hringdi í lögregluna Ferðalangur sem geymdi jeppa sinn hjá Lagningu á meðan á utanlandsferð stóð segist hafa neyðst til að hringja á lögreglu til að endurheimta bílinn sinn frá fyrirtækinu. Fleiri viðskiptavinir hafa fengið þau svör að bíll þeirra finnist ekki. Neytendur 5.1.2023 10:01
Skoða gjaldtöku á öllum bílastæðum HÍ Gjaldtaka á bílastæðum Háskóla Íslands er til skoðunar. Nemendur og starfsfólk hafa hingað til fengið að leggja endurgjaldslaust við skólann. Á nýju ári gæti það heyrt sögunni til. Innlent 23.12.2022 18:25
Bílastæðasjóður stelur jólunum frá fötluðum manni Vilberg Guðnason segir Bílastæðasjóð hafa stolið frá sér jólunum, pakkinn til eiginkonunnar verði því miður tómur þessi jólin. „Þökk sé“ sekt sem nemur 45 þúsund krónum, sekt sem stenst enga skoðun að sögn Vilbergs. Innlent 23.12.2022 14:23
Brugðist við hallarekstri borgarinnar: Færri sýningar og boðsmiðar en meiri tími í beðunum Ráðast á í margvíslegar aðgerðir til að bregðast við miklum hallarekstri A-hluta Reykjavíkurborgar. Þar á meðal á að ráðast í 92 hagræðingaraðgerðir sem fela meðal annars í sér færri sýningar á Listasafni Reykjavíkur og færri boðsmiða á safnið. Skoða á mögulega sölu á bílastæðahúsum auk þess sem að útlit er fyrir að unglingar í Vinnuskólanum þurfi að eyða meiri tímum í beðum borgarinnar en fyrri sumur. Innlent 2.12.2022 11:58
Gjaldskyld svæði bílastæða í miðborginni víkkuð út Gjaldsvæði fyrir bílastæði í nokkrum götum Vesturbæjar og Þingholta verða stækkuð á næstunni. Íbúar í Vesturbæ og miðborg eiga margir hverjir erfitt með að finna bílastæði meðal annars vegna fjölgunar íbúa og ferðmanna með aukinni starfsemi hótela, veitingahúsa og verslana. Innlent 2.11.2022 19:31
Hyggjast rukka í stæði í fyrsta sinn í Reykjanesbæ Skipulagsfulltrúi Reykjanesbæjar hefur lagt fram drög að stofnun bílastæðasjóðs í Reykjanesbæ. Með stofnun sjóðsins verður því rukkað í bílastæði í fyrsta sinn í sveitarfélaginu. Formaður umhverfis- og skipulagsráðs telur að samstaða sé um málið. Innlent 24.10.2022 17:40
Þyngri dómar í mútumáli vegna bílastæðamiða Hæstiréttur hefur sakfellt fyrrverandi þjónustustjóra hjá Isavia og framkvæmdastjóra tæknifyrirtækis fyrir hlutdeild í umboðssvikum og mútubrot í tengslum við bílastæðamiðakaup til notkunar á bílastæðum Isavia. Þjónustustjórinn var einnig sakfelldur fyrir peningaþvætti. Dómar yfir mönnunum tveimur voru þyngdir um þrjá mánuði. Viðskipti innlent 19.10.2022 15:55
Ekki frítt í stæði fyrir rafmagnsbíla frá og með áramótum Reglur sem veita rétt til þess að leggja rafmagns- og metan-bílum endurgjaldslaust í gjaldskyld bílastæði í Reykjavík falla úr gildi um áramótin. Ekki er lengur talin þörf á slíkum ívilnunum. Innlent 19.10.2022 14:27
„Innlimaði“ bílastæði rússneska ræðismannsins Finnskur karlmaður tók sig til og „innlimaði“ bílastæði rússneska ræðismannsins í Turku fyrir hönd Úkraínu í gær. Hann segir innlimunina í samræmi við úrslit eins manns þjóðaratkvæðagreiðslu sem hann hélt sjálfur í anda þeirra sem fóru fram á vegum leppstjórna Rússa í Úkraínu nýlega. Erlent 13.10.2022 14:05
Hefja gjaldtöku vegna bíla sem standa óhreyfðir dögum saman Rangárþing ytra hyggst hefja gjaldtöku á langtímabílastæðum við verslunar- og skrifstofukjarnann Miðjuna á Hellu á næsta ári. Innlent 5.10.2022 08:00
Eldur kviknaði í bílastæðahúsinu Stjörnuport Eldur kom upp í bílastæðahúsinu Stjörnuport við Laugaveg, tveir dælubílar voru sendir á vettvang. Innlent 31.8.2022 18:26
„Ég skil bara ekki hvernig sumir geta bara ákveðið að fara ekki að lögum“ Borgarlögmaður var í september 2021 beðinn af borgarstjóra, Degi B. Eggertssyni um að skoða gjaldtöku í bílastæðahúsum til fólks með bílastæðapassa eða P-passa. Í niðurstöðu lögmannsins segir að Bílastæðasjóður hafi ekki heimild til þess að rukka fatlað fólk með bílastæðispassa í bílastæðahúsum borgarinnar. Innlent 15.8.2022 11:40
Ódýrara að leggja einkaþotu en bíl Það er ódýrara að leggja einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli en bíl í bílakjallara í miðbæ Reykjavíkur. Fimm daga stæði á Reykjavíkurflugvelli kostar 35.485 fyrir einkaþotu. Innlent 27.7.2022 07:27
Þurfa ekki að greiða fyrir þá sem borguðu ekki fyrir bílastæðin Brimborg ehf. þarf ekki að greiða Rekstrarfélagi Hafnartorgs rúmar fimmtíu þúsund krónur í deilu félaganna um hvort að Brimborg bæri ábyrgð á því að greiða fyrir þá viðskiptavini bílaleigu félagsins sem nýttu sér bílastæði við Hafnartorg án þess að greiða fyrir það. Innlent 25.5.2022 22:00
Fyrsta skóflustunga að nýju bílastæða- og tæknihúsi nýs Landspítala Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, tók í dag fyrstu skóflustungu að nýju bílastæða– og tæknihúsi nýs Landspítala, ásamt Pétri Guðmundssyni stjórnarformanni Eyktar og Runólfi Pálssyni forstjóra Landspítala. Þá tóku fulltrúar starfsmanna, þær Rannveig Rúnarsdóttir frá Landspítala og Þórana Elín Dietz frá HÍ einnig skóflustungu að húsinu. Innlent 19.5.2022 13:57
Hittumst á Skólavörðutúni Á dögum sem þessum iðar Klambratúnið af lífi. Fólk leggst á grasið með drykki og mat. Börn príla í leiktækjum. Hundar mætast og þefa hvor af öðrum og frisbídiskar lenda í körfum með tilheyrandi hljóðum. Þetta virkar. Skoðun 12.5.2022 08:00
Rafbílahleðsla í fjölbýlishúsum – hvar erum við stödd? Ákvörðun stjórnvalda um að rafbílavæða Ísland og banna innflutning fólksbifreiða sem ekki nýta rafmagn eftir árið 2030 var metnaðarfull og nauðsynleg. Lög um fjöleignarhús voru í framhaldinu uppfærð þannig að húsfélög þurfa að bregðast við óskum einstakra íbúðareigenda sem vilja hlaða rafbíl við heimili sitt í fjölbýlishúsi. Skoðun 4.5.2022 13:02
„Það er skelfilegt að sjá þetta“ Útivistarunnanda blöskraði aðkoman á bílastæði í Leirdal sunnan við Fagradalsfjall þegar hann hugðist ganga Langahrygg ásamt eiginkonu sinni. Erlendum ferðamönnum á svæðinu var ekki skemmt enda áttu þeir ekki von á slíku ástandi í landi með náttúruna sem flaggskip. Innlent 26.4.2022 10:45
Réðst á konu sem hafði lagt bíl sínum fyrir aftan hans Karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur hlotið dóm fyrir að ráðast á konu sem hafði lagt bíl sínum fyrir aftan bíl mannsins, sem fyrir vikið komst ekki leiðar sinnar. Karlinn hafði lagt í stæði konunnar en merkingar sáust ekki því snjór var yfir öllu. Innlent 7.4.2022 14:43
Vonsvikin með að ríkið vilji ekki byggja bílakjallara Skipulagsráð Akureyrar hafnaði ósk Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna (FSRE) um að breyting yrði gerð á deiliskipulagi svæðis þar sem fyrirhugað er að reisa nýja heilsugæslu. Samkvæmt gildandi skipulagi er gert ráð fyrir bílakjallara undir nýbyggingunni en FSRE segir ekki gert ráð fyrir slíku í fjárframlögum til framkvæmdarinnar. Innlent 28.3.2022 11:47
Fær rétt á bílastæði í Þingholtunum eftir baráttu fyrir dómstólum Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í dag eignarrétt eiganda íbúðar að bílastæði við íbúðarhús hans í Þingholtunum í Reykjavík. Ágreiningur í málinu sneri að því hvort umrætt bílastæði væri sameign allra eigenda íbúða í húsinu eða hvort hún fylgdi íbúð mannsins. Innlent 17.3.2022 20:48
Rukka inn á bílastæði í óþökk sveitarfélags Bæjarstjóri Reykjanesbæjar fordæmir ferðaþjónustufyrirtæki fyrir að rukka gjald inn á bílastæði við Reykjanesvita. Hann segir fyrirtækið hafa svikið loforð um að koma fyrst upp þjónustumiðstöð á svæðinu áður en rukkað yrði inn á það. Innlent 11.3.2022 21:37
Mokstursdrengir segja þakklæti viðskiptavina bestu launin Her ruðningstækja kappkostar að hreinsa tólf hundruð kílómetra langt gatnakerfi borgarinnar og um 600 kílómetra af stígum. Ungir drengir í Hlíðunum tóku sig líka til og bjóða fólki að moka bílastæði og innkeyrslur. Innlent 17.2.2022 19:26
Skilur ekki að borgin ætli að gera veður út af saklausum skiltum Borgin ætlar að fara fram á það við verslunareigendur við Ármúla að þeir fjarlægi skilti sem banna öðrum en viðskiptavinum að leggja fyrir utan verslanir þeirra. Sjálfir eru þeir steinhissa á málinu, töldu sig eiga stæðin og segja borgina vera að gera veður út af engu. Innlent 4.2.2022 22:00
Fólk eigi ekki að leggja á gangstéttum þótt bíllinn passi ekki í innkeyrsluna Breiðhyltingurinn Dagur Bollason segir það óþarflega algengt að ökumenn í hverfinu leggi uppi á gangstéttum, þá sérstaklega þannig að bílar standi hálfir út úr innkeyrslum og séu þannig fyrir vegfarendum. Innlent 2.1.2022 18:24
Hart tekist á um bílaumferð um nýja miðbæ Selfoss Íbúar Selfoss virðast þurfa að búa sig undir harðan ágreining um álitamál sem íbúar Reykjavíkur hafa deilt um í áraraðir, á að leyfa bílaumferð í miðbænum? Innlent 27.11.2021 23:25
Húsbílaeigenda óheimilt að leggja í sameiginlegu bílastæði fjölbýlishúss Kærunefnd húsamála telur að konu sé óheimilt að leggja og geyma húsbíl sinn í sameiginlegu bílastæði fjölbýlishúss sem hún býr í. Húsbílnum hafði verið lagt í einu sameiginlegra bílastæða sex íbúða fjölbýlishúss þar sem hann hafi lengi staðið óhreyfður og varð til þess að aðrir íbúar leituðu til nefndarinnar. Innlent 1.10.2021 08:01
Ný bílastæði stytta göngu á útsýnisstaði á eldgosið Þeir sem vilja ganga að eldstöðinni í Fagradalsfjalli hafa núna möguleika á að stytta gönguna með því að nýta sér ný bílastæði sem tekin hafa verið í notkun. Þá er í bígerð að lagfæra vinsælustu gönguleiðina upp á Langahrygg til að draga úr slysahættu. Innlent 20.8.2021 22:22
Slökkva á 156 götuhleðslum í borginni og kenna Ísorku um Orka náttúrunnar hyggst taka strauminn af þeim 156 götuhleðslum sem fyrirtækið hefur sett upp um víða borg. Félagið sér sig knúið til þess í kjölfar kvörtunar Ísorku yfir að hleðslurnar væru opnar hverjum sem er og það gjaldfrjálst. Slökkt verður á stöðvunum 28. júní. Neytendur 25.6.2021 14:32
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn