Innlent

Hefja gjald­töku vegna bíla sem standa ó­hreyfðir dögum saman

Atli Ísleifsson skrifar
Miðjan á Hellu. Langtímabílastæðin sem um ræðir eru lengst til hægri á myndinni.
Miðjan á Hellu. Langtímabílastæðin sem um ræðir eru lengst til hægri á myndinni. Vísir/Vilhelm

Rangárþing ytra hyggst hefja gjaldtöku á langtímabílastæðum við verslunar- og skrifstofukjarnann Miðjuna á Hellu á næsta ári.

Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri í Rangárþingi ytra, segir að eftir rólega tíð í heimsfaraldrinum og þegar ferðamannastraumurinn hafi aftur farið á fullt í sumar, hafi komið bersýnilega ljós að á langtímastæðunum væru jafnan bílar sem stæðu þar yfirgefnir dögum saman.

„Þetta er að stórum hluta bílar fólks sem skilur þá þar eftir þegar það fer í lengri ferðir. Og þetta teppir þau pláss og önnur sem ætluð eru daglegri þjónustu,“ segir Jón.

Jón segir að verið sé að skoða hvernig sé best að standa að málinu. „Við erum að skoða gjaldskyldu og svo þann möguleika að sömuleiðis fjölga bílastæðum. En við verðum að sjá til þess að fórnarkostnaðurinn verði ekki meiri en ávinningurinn.“

Jón segir að markmiðið sé að hefja gjaldskylduna næsta sumar, en leggur áherslu á það eigi ekki við um öll stæðin fyrir utan Miðjuna heldur langtímastæðin sem eru næst sjálfum Suðurlandsveginum.

Mjög umsetin

Málið var á dagskrá byggðarráðs Rangárþings ytra á mánudag. Ábendingar höfðu þá borist um að bílastæðin væru mjög umsetin, sérstaklega að sumarlagi.

Byggðarráð samþykkti að fela Jóni sveitarstjóra að skoða mismunandi útfærslur á gjaldtöku á langtímabílastæðunum við Miðjuna.

Umræða fór einnig fram um stöðu salernismála við Miðjuna, en þeirri ábendingu var vísað til skoðunar hjá Suðurlandsvegi 1-3 hf. sem á og rekur fasteignirnar sem kallaðar eru Miðjan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×