Lög og regla
90 91 92 93 94 95 96 97 98 … 120 ›
Tekinn með hass í Svíþjóð 24 ára Íslendingur var tekinn með tvö kíló af hassi í Malmö í Svíþjóð á þriðjudaginn í síðustu viku. Hann var að koma frá Danmörku þegar hann var tekinn með hassið falið í bíl sínum. Í kjölfarið var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald og er hann enn í haldi sænsku lögreglunnar. Innlent 13.10.2005 15:28
Þrír teknir með 160 grömm af hassi Þrír menn voru handteknir með 160 grömm af hassi og nokkur grömm af amfetamíni við Hvalfjarðargöngin um tvöleytið aðfaranótt miðvikudags. Að sögn lögreglunnar á Akranesi þótti lögreglumönnum ástæða til að stöðva bílinn þegar hann kom úr göngunum og við leit í honum fundust fíkniefnin en talið er að þau hafi verið ætluð til sölu. Innlent 13.10.2005 15:27
Ofbeldismenn yfirgefi heimilið Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, lagði fram frumvarp til laga á Alþingi um að auka heimildir lögreglu til að vísa manni af heimili sínu ef hann beitir eða hótar öðru heimilisfólki ofbeldi í gær. Innlent 13.10.2005 15:27
Tímamótajafnréttisdómur Nýjasti dómur Hæstaréttar í máli gegn Akureyrarbæ er varðar mismunun vegna kynbundins launamunar markar tímamót. Þetta segir Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlögmaður. Innlent 13.10.2005 15:28
Slökkvitækjum stolið úr göngum Maður stal slökkvitækjum úr Vestfjarðagöngum um sexleytið í gær og komst undan. Vegfarandi, sem sá til hans á grænum fólksbíl, lét lögregluna vita og er þjófsins nú leitað. Lögreglan lítur þetta mjög alvarlegum augum þar sem slökkvitæki í jarðgöngum geta skipt sköpum ef eldur kviknar í bíl því það getur valdið snöggri hitamyndun og súrefnisskorti. Innlent 13.10.2005 15:27
Handtekin fyrir bílainnbrot Lögreglumenn handtóku tvær unglingsstúlkur og einn pilt í Bakkahverfi í Reykjavík í nótt, grunuð um innbrot í bíla. Í fórum þeirra fundust meðal annars fimm farsímar og þrír geislaspilarar úr bílum. Við nánari athugun kom í ljós að þau höfðu brotist inn í fjóra bíla og látið greipar sópa. Innlent 13.10.2005 15:27
Ríkið sýknað af kröfu Ástþórs Íslenska ríkið var sýknað af tveggja milljóna króna skaðabótakröfu Ástþórs Magnússonar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ástþór höfðaði málið vegna handtöku árið 2002. Hann var handtekinn vegna töluvpósts sem sendur var víða í nafni Friðar 2000 en þar sagði frá rökstuddum grun um að ráðist yrði gegn íslenskri flugvél. Innlent 13.10.2005 15:27
Grafið undan embætti umboðsmanns Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að stjórnvöld og sérstaklega dómsmálaráðherra hafi með ummælum sínum grafið undan embætti Umboðsmanns Alþingis og virðingu þess. Innlent 13.10.2005 15:27
Býður nýbúa velkomna Mjóafjarðarhreppur ætlar að slást í hóp með þeim sem fjölga vilja íbúum í fjórðungnum í kjölfar stóriðju- og virkjunarframkvæmda. Innlent 13.10.2005 15:27
Þingið ítrekað samþykkt gölluð lög Eftirlaunafrumvarpið er ekki eina lagasetningin sem hefur verið samþykkt á Alþingi og reynst gölluð eftir á. Ríkisstjórnin hefur tapað þó nokkrum fjölda mála fyrir dómstólum er varða nýsamþykkt lög. Stjórnarþingmaður segir að Alþingi verði að vanda sig betur. Innlent 13.10.2005 15:27
Máttum giftast en ekki búa saman Ásthildur Albertsdóttir, eiginkona Said Hasan, 23ja ára Jórdaníumanns, hefur kært ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa Hasan úr landi og banna honum að koma aftur hingað, bæði til Útlendingaeftirlitsins og dómsmálaráðuneytisins. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:27
Fékk sjö mánaða skilorð Skipstjórinn í ferð Hauks ÍS til Þýskalands þar sem tveir skipverjanna voru handteknir fyrir tilraun til fíkniefnasmygls var dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ræktun kannabisplantna. Innlent 13.10.2005 15:27
Braut gegn valdstjórninni Maður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá lögreglumann hnefahöggi í andlitið á Kaffi Austurstræti í mars í fyrra. Innlent 13.10.2005 15:27
Lögreglurannsókn dauðsfalls í bið Lögreglan í Reykjavík bíður nú formlegrar álitsgerðar frá Landlæknisembættinu um dauðsfall aldraðs manns á Hrafnistu, áður en tekin verður afstaða til þess hvort lögreglurannsókn fer fram, að sögn Egils Stephensen saksóknara hjá embætti lögreglustjórans í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 15:27
Rannsókn á lokastigi Rannsókn á einu umfangsmesta fíkniefnamáli síðustu ára, sem staðið hefur yfir síðan í mars á síðasta ári, er á lokastigi að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 15:27
Stal bók og geisladiskum Maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir þjófnað og skjalafals. Maðurinn stal tveimur geisladiskum og einni bók úr verslunum auk þess sem hann framvísaði fölsuðum lyfseðli. Innlent 13.10.2005 15:27
Dómur fyrir kannabisræktun Fertugur karlmaður var í dag dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að rækta og hafa í sinni vörslu um 180 kannabisplöntur í kartöflugeymslu í Ártúnsbrekku. Á heimili mannsins fundust tólf plöntur til viðbótar, fræ og lauf. Innlent 13.10.2005 15:27
80 kílómetrum yfir hámarkshraða Lögreglan í Grindavík stöðvaði í gærkvöldi ökumann eftir að hann hafði mælst á hundrað og þrjátíu kílómetra hraða á Víkurbraut þar sem hámarkshraði er aðeins fimmtíu kílómetrar. Hann var því vel yfir tvöföldum hámarkshraða og mun að líkindum missa ökuréttindi og fá háa sekt. Innlent 13.10.2005 15:26
Lögbann á starfsmenn Fjórum af fimm fyrrverandi starfsmönnum SÍF sem sögðu upp störfum fyrir áramót og stofnuðu eigið fisksölufyrirtæki hefur verið meinað að starfa fyrir nýja félagið eða taka á nokkurn annan hátt í starfsemi félagsins til 30. júní. Innlent 13.10.2005 15:26
Vélsleða enn leitað Lögreglan á Selfossi leitar enn tveggja vélsleða sem hurfu frá Litlu kaffistofunni í Svínahrauni í fyrrinótt. Þeir voru af Ski Doo gerð og tilheyra vélsleðaleigu. Nokkrir vélsleðar voru einnig geymdir við Skíðaskálann í Hveradölum um helgina en þeir voru ekki hreyfðir. Innlent 13.10.2005 15:26
Lögbann á fyrrum starfsmenn SÍF Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur sett lögbann á fjóra fyrrverandi starfsmenn SÍF sem sögðu upp störfum og stofnuðu fisksölufyrirtæki í beinni samkeppni við SÍF. Bannið gildir til júníloka. Í millitíðinni verður skorið úr um málið fyrir dómstólum. Innlent 13.10.2005 15:26
Lögreglufréttir Partí á sunnudegi Tvö útköll bárust lögreglunni í Keflavík á næturvaktinni aðfaranótt mánudags vegna hávaða í partíum í heimahúsum, annað í Keflavík og hitt í Sandgerði. Innlent 13.10.2005 15:26
Eldur í vél Eldur kom upp við húsnæði Ísafoldarprentsmiðjunnar í gær. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, sem er með slökkvistöð í grennd við prentsmiðjuna, náði að slökkva eldinn áður en hann breiddist út. Innlent 13.10.2005 15:26
Lögreglufréttir Innbrot í Fossvogi Brotist var inn í hús í Fossvogi snemma á mánudagsmorgni. Eldhúsgluggi var spenntur upp og lyfjum, skólatösku, áfengi, sundpoka og peningum stolið. Innlent 13.10.2005 15:26
Tók myndir inni á kvennasalerni Ungur maður á yfir höfði sér sektir fyrir brot á blygðunarsemi en hann var staðinn að því að taka myndir af konu á kvennasalerni á skemmtistað í bænum aðfararnótt sunnudags. Konan varð hans vör og kallaði á lögreglu sem handtók hann á staðnum og lagði hald á minniskubb úr stafrænni myndavél sem hann notaði til verksins. Innlent 13.10.2005 15:26
Gripinn við þjófnað á næturklúbb Tæplega fertugur maður var staðinn að verki þegar hann reyndi að hnupla úr peningakassa á næturklúbbnum Casino í Keflavík í nótt. Að sögn lögreglu kom starfsfólk að manninum fyrir innan barborð og var hann þá búinn að opna peningakassa og taka úr honum 4500 krónur. Maðurinn var tekinn til yfirheyrslu hjá lögreglu. Innlent 13.10.2005 15:26
Óku fram á sofandi mann Lögreglan í Keflavík ók í nótt fram á mann sem lá steinsofandi úti á götu. Maðurinn lá sofandi á Kirkjuvegi í Keflavík og var orðinn kaldur. Þegar reynt var að vekja hann kom í ljós að hann var ofurölvi og gat vart mælt sökum ölvunar. Lögregla hlúði að honum og flutti hann í hlýja fangageymslu þar sem hans beið mýkri svefnstaður. Innlent 13.10.2005 15:26
Ekki alvarlegt athæfi Tilkynnt var um þjófnað á næturklúbbnum Casino í Keflavík klukkan 04.38 aðfaranótt gærdagsins. Klúbburinn var enn þá opinn, en hann er með frjálsan opnunartíma, þegar starfsfólk kom að manni fyrir innan barborðið. Maðurinn var þá búinn að opna peningakassa staðarins og taka úr honum 4.500 krónur. Innlent 13.10.2005 15:26
Brunagildran reist án leyfis Ef húsið þar sem eldur varð laus á athafnasvæði Hringrásar hefði verið byggt eftir venjulegum leiðum hefði ekki þurft að fara eins og fór, segir brunamálastjóri. Lyftarahleðsla hefði verið í sérstöku brunahólfi. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:26
Tveimur vélsleðum stolið Tveimur vélsleðum var stolið frá Litlu kaffistofunni aðfaranótt laugardags. Að sögn lögreglunnar á Selfossi liggur ekki fyrir hvernig sleðunum var stolið eða hver hafi gert það en málið er í rannsókn. Innlent 13.10.2005 15:26