Innlent

Slökkvitækjum stolið úr göngum

Maður stal slökkvitækjum úr Vestfjarðagöngum um sexleytið í gær og komst undan. Vegfarandi, sem sá til hans á grænum fólksbíl, lét lögregluna vita og er þjófsins nú leitað. Lögreglan lítur þetta mjög alvarlegum augum þar sem slökkvitæki í jarðgöngum geta skipt sköpum ef eldur kviknar í bíl því það getur valdið snöggri hitamyndun og súrefnisskorti. Áður hefur það gerst að skemmdarvargar hafi tæmt úr slökkvitækjum inni í göngunum eða farið með þau út úr þeim og tæmt þau.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×