Innlent

Eldur í vél

Eldur kom upp við húsnæði Ísafoldarprentsmiðjunnar í gær. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, sem er með slökkvistöð í grennd við prentsmiðjuna, náði að slökkva eldinn áður en hann breiddist út. Vél sem sýgur afskurð út úr húsinu og í gám virðist hafa brunnið yfir með þessum afleiðingum. Að sögn forsvarsmanna verksmiðjunnar var lítil hætta á að eldurinn bærist í sjálfa verksmiðjuna og tjónið af völdum hans var ekki talið mikið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×