Innlent

Handtekin fyrir bílainnbrot

Lögreglumenn handtóku tvær unglingsstúlkur og einn pilt í Bakkahverfi í Reykjavík í nótt, grunuð um innbrot í bíla. Í fórum þeirra fundust meðal annars fimm farsímar og þrír geislaspilarar úr bílum. Við nánari athugun kom í ljós að þau höfðu brotist inn í fjóra bíla og látið greipar sópa. Unglingarnir, sem eru sextán og sautján ára, gista nú fangageymslur og verða yfirheyrðir í dag. Grunur leikur á að þeir hafi ætlað að fjármagna fíkniefnakaup með þýfinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×