Lög og regla

Fréttamynd

Fangelsisyfirvöld breyttu ranglega

Umboðsmaður Alþingis segir fangelsisyfirvöld ekki hafa brugðist rétt við þegar þau ákváðu að setja fanga á Litla-Hrauni í 78 klukkustunda einangrun.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla fylgist með Lettum

Lögreglan á Selfossi fylgist í dag með ferðum tveggja Letta sem teknir voru til yfirheyrslu í gær þar sem þeir voru í byggingavinnu á Stokkseyri án atvinnuleyfis. Þeir verða hugsanlega ákærðir og dæmdir í dag líkt og sýslumaður gerði við þrjá erlenda verkamenn sem teknir voru án atvinnuleyfa á Suðurlandi fyrir skömmu.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdir fyrir að starfa án leyfa

Þrír Lettar voru í dag í Héraðsdómi Suðurlands dæmdir í eins mánaðar fangelsi sem er skilorðsbundið til tveggja ára fyrir starfa hér á landi án tilskilinna atvinnuleyfa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýslumanninum á Selfossi.

Innlent
Fréttamynd

Tveir teknir fyrir ofsaakstur

Tveir menn voru stöðvaði fyrir ofsaakstur á Suðurlandsvegi skammt fyrir austan Selfoss um miðjan dag í gær og reyndist kaupstaðarlykt af öðrum þeirra. Hann hafði mælst á 157 kílómetra hraða og þegar hann var látinn blása í blöðru kom í ljós að hann var ölvaður.

Innlent
Fréttamynd

Kynferðisbrotamál á Patreksfirði

Lögreglan á Patreksfirði hefur nú til rannsóknar enn eitt kynferðisbrotamálið sem kært var skömmu fyrir páska. Grunur leikur á að maður á þrítugsaldri hafi beitt stúlku á unglingsaldri kynferðisofbeldi.

Innlent
Fréttamynd

Harma dóm yfir lögreglumanni

Landssamband lögreglumanna harmar niðurstöðu dóms í vikunni þar sem lögreglumaður var sakfelldur fyrir að aka í veg fyrir bifhjól sem veitt hafði verið eftirför en við það slasaðist ökumaður hjólsins. Landssambandið sá sig knúið til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri vegna fjölmiðlaumfjöllunar um málið síðustu daga.

Innlent
Fréttamynd

Tveggja ára fangelsisdómur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær mann til tveggja ára fangelsisvistar fyrir margvísleg afbrot, þar á meðal líkamsmeiðingar, þjófnað, fíkniefnamisferli og umferðarlagabrot.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglumaður dæmdur í Héraðsdómi

Lögreglumaður var í dag dæmdur til að greiða hátt í hálfa milljón króna í sektir og skaðabætur fyrir að hafa keyrt í veg fyrir ökumann bifhjóls á Ægisíðu í fyrravor.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglumaður greiði skaðabætur

Lögreglumaður, sem stöðvaði bifhjól með því að aka í veg fyrir það á Ægissíðu síðastliðið vor, var dæmdur til að greiða ökumanni bifhjólsins skaðabætur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglumaður dæmdur

Lögreglumaður hefur verið dæmdur til að greiða 200 þúsund krónur í sekt og ökumanni bifhjóls 195 þúsund krónur í skaðabætur fyrir að hafa stefnt lífi hans í hættu í lok maí á síðasta ári. Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Innlent
Fréttamynd

Milliríkjadeilur í miðborginni

Utanríkisráðuneytið hefur þurft að hafa milligöngu vegna deilna milli borgaryfirvalda og rússneska sendiráðsins vegna 400 fermetra sprengjuhelds húss sem rússneski sendiherrann er að láta reisa í bakgarðinum á sendiráðinu í Garðastræti. Svæðið er rússneskt yfirráðasvæði.

Innlent
Fréttamynd

Vísað frá dómi

"Þessi niðurstaða sannar það og sýnir að lögbannið var tilefnislaust með öllu og þeir sem óskuðu eftir því í upphafi sem og þeir sem settu það á okkur mega skammast sín," segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Með þrjá Pólverja ólöglega í vinnu

Íslendingur, sem var með þrjá Pólverja ólöglega í vinnu, verður ákærður í dag eða á morgun fyrir brot á útlendingalögum. Málið hófst með því að Selfosslögreglan stöðvaði bíl vegna hraðaksturs og var einn Pólverjanna í honum sem leiddi til þess að hinir tveir fundust.

Innlent
Fréttamynd

Braut lög um skjaldarmerkið

"Strangt til tekið er þarna um brot á lögum um skjaldarmerkið að ræða og ráðuneytisstjóri hefði að mínu mati átt að taka fram fyrir hendurnar á fólkinu," segir Sigurður Líndal lagaprófessor.

Innlent
Fréttamynd

Vitorðsmenn ekki fundnir

Ekki hefur enn tekist að finna hugsanlega vitorðsmenn bandarískrar konu á sjötugsaldri sem úrskurðuð var í gæsluvarðhald til 1. apríl eftir að tollverðir á Keflavíkurflugvelli fundu um 800 grömm af kókaíni sem falin voru í hárkollu á höfði hennar. Að sögn Ásgeirs Karlssonar hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík er málið enn í rannsókn og enginn hér á landi hefur verið handtekinn vegna þess.

Innlent
Fréttamynd

Gæti farið í fangelsi fyrir ummæli

Bobby Fischer, sem nýsloppinn er úr varðhaldsvist í Japan, gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist hér á landi, vegna andgyðinglegs áróðurs. Stjórnarformaður Mannréttindaskrifstofu Íslands telur ummæli hans í garð gyðinga brot á hegningarlögum.

Innlent
Fréttamynd

Nokkrar tilkynningar um innbrot

Lögreglunni í Reykjavík hefur verið tilkynnt um fjögur innbrot í dag. Hún segir að trúlega hafi innbrotin verið framin um helgina þótt tilkynningar um þau berist í dag. Að sögn lögreglunnar var brotist inn í bíla, íbúðarhús og fyrirtæki.

Innlent
Fréttamynd

Harður árekstur nærri lögreglustöð

Harður árekstur varð á mótum Laugavegar og Rauðarárstígs um klukkan hálftvö í dag. Þar rákust saman fólksbíll og jepplingur og skemmdust þeir það mikið að draga þurfti báða af slysstað. Annar ökumanna kenndi eymsla að sögn lögreglu og voru bráðaliðar því kallaðir á vettvang. Eins og sést á myndinni varð slysið alveg við lögreglustöðina á Hverfisgötu og því þurfti ekki að kalla lögreglu langt að.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í atvinnuhúsnæði í Kópavogi

Gríðarlegur hiti mætti reykköfurum slökkviliðsins þegar þeir héldu inn í atvinnuhúsnæði við Smiðjuveg í Kópavogi um hálffjögurleytið í nótt þar sem eldur logaði innst í húsnæðinu. Þá urðu sprengingar þegar málningarílát og lítill gaskútur sprungu en engan slökkviliðsmann sakaði og tókst þeim að slökkva eldinn þegar þeir komust loks að honum.

Innlent
Fréttamynd

Eldsupptök í Kópavogi enn óljós

Enn er óljóst um eldsupptök þegar mikill eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði við Skemmuveg í Kópavogi í nótt og slökkviliðsmenn þurftu að leggja sig í hættu við að ráða niðurlögum hans.

Innlent
Fréttamynd

Tölvum stolið úr grunnskóla

Þjófur eða þjófar stálu sex nýjum fartölvum úr grunnskólanum á Patreksfirði um páskahelgina og varð þess vart í gær þegar skólastjórinn átti leið í skólann. Þjófarnir brutust inn um glugga og brutu síðan upp skáp þar sem tölvurnar voru í hleðslu og höfðu þær á brott með sér.

Innlent
Fréttamynd

Tjáir sig ekki um flutning fanga

Fangelsismálastofnun vill ekkert gefa upp um ástæður þess að kona á fimmtugsaldri, sem afplánar dóm fyrir manndráp, var flutt á einangrunardeild á Litla-Hrauni.

Innlent
Fréttamynd

Sýslumaður krafinn skýringa

Persónuvernd krefur Sýslumanninn í Reykjavík um skýringar á því hvers vegna möppur, sem geyma nöfn hundraða einstaklinga sem meðal annars stóðu í forræðis- og skilnaðardeilum, fundust á bak við skrifstofur hans í Skógarhlíð. Sýslumaður sjálfur segist ekkert botna í þessu og þjóðþekktir menn, sem nafngreindir eru í gögnum, eru forviða á að skjölin skuli ekki vera betur geymd en raun ber vitni.

Innlent
Fréttamynd

Ofurölvi undir stýri

Áfengismagn í blóði manns, sem tekinn var úr umferð á Akranesi í fyrrinótt, reyndist margfalt yfir því hámarki sem miðað er við þegar menn eru sviptir ökuréttindum vegna ölvunaraksturs og líklega eitthvert það mesta sem mælst hefur. Samkvæmt viðurkenndum áfengismæli var áfengismagn í blóði ökumannsins 3,25 en má ekki fara yfir 0,5 til þess að ökumenn séu sviptir réttindum.

Innlent
Fréttamynd

Gripnir við innbrot í skóla

Tveir sextán og sautján ára piltar voru staðnir að verki við innbrot í verkmenntahús Fjölbrautaskólans á Selfossi í fyrrinótt. Glöggir lögreglumenn urðu varir við opnar dyr á húsinu og þegar inn var komið sáu þeir piltana vinna að því að skrúfa niður skjávarpa. Piltarnir hafa báðir komið við sögu lögreglu áður.

Innlent
Fréttamynd

Ók undarlega á Eyrarbakkavegi

Kona á miðjum aldri var tekin af lögreglu á Eyrarbakkavegi eftir að vegfarendur létu vita af undarlegu ökulagi hennar í gærdag. Grunur leikur á að hún hafi ekið undir áhrifum lyfja en hún var tekin í blóðprufu.

Innlent
Fréttamynd

Kastaði grjóti í leigubíl

Ungur maður kastaði grjóti í leigubíl sem var á ferð á Garðvegi á Reykjanesi rétt upp úr klukkan sex í morgun. Maðurinn var á göngu í vegkantinum og virðist hafa kastað grjótinu í bílinn í þann mund sem hann ók fram hjá honum. Steinninn skemmdi lakk bílsins töluvert og rannsakar lögreglan í Keflavík málið.

Innlent
Fréttamynd

Umferð mikil en gekk að mestu vel

Umferðin var nokkuð mikil á þjóðvegum landsins nú um páskana en hún gekk að mestu vel. Margir notuðu páskafríið til ferðalaga og var umferð á þjóðvegum landsins mikil enda færð og veður með besta móti.

Innlent
Fréttamynd

Grunur um íkveikju í Árbæ

"Ég var að fara niður að þvo en kem þá að þvottinum í ljósum logum," sagði Vigdís Hulda Vignisdóttir, íbúi í fjölbýlishúsi í Rofabæ þar sem eldur varð laus í sameiginlegu þvottahúsi í kjallaranum. </font />

Innlent