Innlent

Líðan manns eftir atvikum góð

Líðan mannsins sem slasaðist alvarlega við Gufuskála í fyrradag er eftir atvikum góð og er maðurinn ekki í lífshættu að sögn vakthafandi læknis. Maðurinn lenti undir svokölluðu átthjóli þegar það valt út af veginum við Gufuskála í nánd við Ólafsvík. Sex voru á hjólinu, hin slösuðust ekki alvarlega. Þau voru þátttakendur á slysavarnanámskeiði Landsbjargar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×