Innlent

Lögregla fylgist með Lettum

Lögreglan á Selfossi fylgist í dag með ferðum tveggja Letta sem teknir voru til yfirheyrslu í gær þar sem þeir voru í byggingavinnu á Stokkseyri án atvinnuleyfis. Þeir verða hugsanlega ákærðir og dæmdir í dag líkt og sýslumaður gerði við þrjá erlenda verkamenn sem teknir voru án atvinnuleyfa á Suðurlandi fyrir skömmu. Atvinnurekandi þeirra var ákærður í gær fyrir brot á útlendingalögum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×