Innlent

Tölvum stolið úr grunnskóla

Þjófur eða þjófar stálu sex nýjum fartölvum úr grunnskólanum á Patreksfirði um páskahelgina og varð þess vart í gær þegar skólastjórinn átti leið í skólann. Þjófarnir brutust inn um glugga og brutu síðan upp skáp þar sem tölvurnar voru í hleðslu og höfðu þær á brott með sér. Andvirði tölvanna, sem keyptar voru í haust, er á aðra milljón króna og biður lögreglan á Patreksfirði alla þá sem kunna að hafa orðið varir við mannaferðir við skólann yfir páskana að láta sig vita strax.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×