Innlent

Tveggja ára fangelsisdómur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær mann til tveggja ára fangelsisvistar fyrir margvísleg afbrot, þar á meðal líkamsmeiðingar, þjófnað, fíkniefnamisferli og umferðarlagabrot. Er um síbrotamann að ræða sem hefur hlotið alls 23 dóma fyrir margvísleg afbrot síðustu fjórtán árin og þóttu brot hans nú afar ófyrirleitin og sýna einbeittan brotavilja. Var hann ennfremur dæmdur til greiðslu miskabóta að upphæð 300 þúsund og missi ökuleyfis ævilangt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×