Lög og regla

Fréttamynd

Sjö manns á slysadeild

Sjö manns voru fluttir á slysadeild Landspítalans laust fyrir klukkan tíu í morgun vegna reykeitrunar, brunasára eða annarra meiðsla eftir að íbúð í sambýlishúsi að Rósarima í Grafarvogi varð alelda á svipstundu þegar gaskútur í eldhúsi íbúðarinnar sprakk. Hann tættist í sundur og þeyttust út úr húsinu.

Innlent
Fréttamynd

Ógnaði starfsmönnum með sprautunál

Ungur maður, sem rændi peningum úr peningakassa Dominos við Skúlagötu í gærkvöldi, er enn ófundinn. Talið er að hann sé 15 til 18 ára gamall. Hann ógnaði starfsmönnum með notaðri sprautunál og náði að hafa nokkur þúsund krónur á brott með sér.

Innlent
Fréttamynd

Eftirgrennslu verður haldið áfram

"Það er enginn greinarmunur gerður á einstaklingum þegar leit sem þessi stendur yfir," segir Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi. Formlegri leit að hinum brasilíska Ricardo Correia Dantas var hætt í fyrrakvöld en um tvö hundruð manns leituðu mannsins þegar mest lét.

Innlent
Fréttamynd

Minnstu munaði að stórslys yrði

Minnstu munaði að manntjón og stórslys yrði þegar eldur kviknaði í íbúð í sambýlishúsi við Rósarima í Grafarvogi laust fyrir klukkan tíu í morgun.

Innlent
Fréttamynd

6 mánuðir fyrir tvær líkamsárásir

Maður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundna, fyrir tvær líkamsárásir. Maðurinn réðst á tvo menn í miðbæ Reykjavíkur í júlí árið 2003 og sló annan þeirra með flösku í höfuðið og réðst á hinn manninn með brotinni flösku og stakk hann í aftanverðan hálsinn með þeim afleiðingum að hann hlaut fjóra skurði.

Innlent
Fréttamynd

Sex mánaða fangelsisdómur

Maður var dæmdur til sex mánaða fangelsis fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir alvarlegar líkamsárásir á tvo menn á veitingastað í miðbænum sumarið 2003.

Innlent
Fréttamynd

Mikill eldur í íbúð við Rósarima

Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að fjölbýlishúsi við Rósarima í Grafarvogi fyrir stundu. Að sögn slökkviliðs er mikill eldur í einni íbúð hússins en frekari upplýsingar var ekki að fá að sinni.

Innlent
Fréttamynd

Lá við stórslysi

Litlu munaði að illa færi að mati lögreglunnar þegar stór þungaflutningabíll lenti aftan á kyrrstæðum lögreglubíl í Kömbunum á Hellisheiði í gærmorgun. Var lögreglan þar við skýrslutöku af ökumönnum þriggja bíla sem aður höfðu lent í árekstri.

Innlent
Fréttamynd

Handsamaði tvo þjófa

Lögreglan í Reykjavík hafði hendur í hári tveggja þjófa sem brutust inn í tölvuverslun í Austurborginni á sjöunda tímanum í morgun og höfðu meðal annars á brott með sér tvo skjávarpa.

Innlent
Fréttamynd

Á þriðja tug ökumanna stöðvaður

Á þriðja tug ökumanna var stöðvaður í Kópavogi í gærkvöldi og í nótt fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 132 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar.

Innlent
Fréttamynd

Verklagsreglur lögreglu skýrar

Ríkislögreglustjóri segir að verklagsreglur lögreglumanna við að veita ökumönnum eftirför, og stöðva þá ef til vill, séu alveg skýrar en lögreglumenn hafa haldið hinu gagnstæða fram. Mikilvæg regla í þessu sambandi er að fórna ekki meiri hagsmunum fyrir minni, segir ríkislögreglustjóri.

Innlent
Fréttamynd

Meirihluti lögreglubíla er úreltur

Þrátt fyrir að mikið átak hafi hafist í bílamálum lögreglu árið 2000 er enn talsvert í land og eru tæplega 60 prósent allra bíla lögreglu fimm ára eða eldri. Fimm ár er úreldingartími lögreglubifreiða hjá nágrannaþjóðum.

Innlent
Fréttamynd

Fjögur fíkniefnamál í Hafnarfirði

Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Hafnarfirði um helgina, þrjú þeirra þegar lögreglumenn stöðvuðu bifreiðar vegna hefðbundins eftirlits og eitt þegar útkall barst vegna hávaða og óláta í heimahúsi.

Innlent
Fréttamynd

Vísa gagnrýni á bug

Ríkislögreglustjóri segir verklagsreglur lögreglu við eftirför og stöðvun ökutækja skýrar og tekur ekki undir gagnrýni Landssambands lögreglumanna þess efnis að óvissa ríki um hvað lögreglumönnum sé heimilt eða óheimilt þegar stöðva þarf ökutæki.

Innlent
Fréttamynd

Brasilíumannsins enn leitað

Fjölmenn leit hófst í morgun að Brasilíumanninum Ricardo Correia Dantas sem ekkert hefur spurst af síðan klukkan tíu á laugardagsmorgun að hann fór í gönguferð frá heimili á Stokkseyri þar sem hann var gestkomandi. Um það bil sjötíu björgunarsveitarmenn leituðu hans fram á kvöld í gær.

Innlent
Fréttamynd

Ber ábyrgð á gjörðum sínum

Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli segir Reyni Traustason, ritstjóra Mannlífs, þurfa að bera ábyrgð á gjörðum sínum þegar hann smyglaði um hálfu grammi af kókaíni til landsins í tengslum við bók sem hann vinnur að um fíkniefnaheiminn. 

Innlent
Fréttamynd

Leita mannsins með sporhundum

Björgunarsveitarmenn leita nú með sporhundum að Brasilíumanninum sem ekkert hefur spurst til síðan klukkan tíu á laugardagsmorgun. Þá hefur dregið úr brimi þannig að hugsanlega verður leitað af sjó í dag. Um það bil 90 björgunarsveitarmenn hafa leitað mannsins í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Brasilíumanns saknað á Suðurlandi

Tuttugu og átta ára Brasilíumanns er saknað á Suðurlandi. Hann fór í gönguferð frá Eyrabakka um klukkan tíu í gærmorgun en ekkert hefur til hans spurst síðan. Björgunarsveitir hafa leituðu að manninum í gærkvöld og nótt en leit var hætt á fimmta tímanum.

Innlent
Fréttamynd

Fimm flutt á spítala

Flytja þurfti fimm manns á spítala á Akureyri eftir útafakstur fólksbíls við Botnastaðabrekku í Vatnsdal. Reyndist fólkið þó ekki alvarlega slasað þegar til kom en óttast var í upphafi að um beinbrot hefði verið að ræða hjá einhverjum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Leita enn Brasilíumanns

Björgunarsveitir í Árnessýslu leita enn að 28 ára Brasilíumanni sem saknað hefur verið frá því í gær. Hann fór í gönguferð frá Eyrarbakka um klukkan tíu í gærmorgun en ekkert hefur til hans spurst síðan. Björgunarsveitir leituðu að manninum í gærkvöld og nótt en leit var hætt á fimmta tímanum. Hún hófst aftur fyrir hádegi í dag og hefur verið leitað í og við Stokkseyri bæði á sjó og landi.

Innlent
Fréttamynd

Enn á landinu en án dvalarleyfis

Útlendur maður sem fyrir rúmum fjórum árum var synjað um dvalarleyfi hér á landi, er hér enn. Talsmenn Útlendingastofnunar og dómsmálaráðuneytisins segja ekki hægt að senda hann úr landi þar sem enginn viti hvaðan hann er.

Innlent
Fréttamynd

Harma dóm yfir lögreglumanni

Landssamband lögreglumanna harmar dóm sem féll í máli lögreglumanns sem sakfelldur var í Héraðsdómi Reykjavíkur nýlega fyrir brot í starfi.

Innlent
Fréttamynd

Brasilíumanns enn saknað

Leit að Brasilíumanninum, sem hefur verið saknað frá því í gær, hefur enn ekki borið árangur en nú hafa björgunarsveitir orðið að hætta leit á sjó við Stokkseyri. Maðurinn fór í gönguferð frá Eyrarbakka um klukkan tíu í gærmorgun en ekkert hefur til hans spurst síðan. Sýslumaðurinn á Selfossi hefur nú birt mynd af manninum og biður lögreglan á Selfossi alla þá sem kunna að hafa orðið hans varir að láta vita í síma 480-1010.

Innlent
Fréttamynd

Íbúar kanni garða og geymslur

Leit að Brasilíumanninum, sem hefur verið saknað frá því í gær, hefur enn ekki borið árangur. Maðurinn fór í gönguferð frá Eyrarbakka um klukkan tíu í gærmorgun en ekkert hefur til hans spurst síðan. Björgunarsveitir halda áfram að leita að honum fram á kvöld og biður lögreglan á Selfossi íbúa í og við Stokkseyri og Eyrarbakka og í Gaulverjabæjarhreppi og Villingaholtshreppi að kanna útihús, garða og geymslur til að athuga hvort eitthvað óvenjulegt sé að finna þar og hafa samband við lögregluna ef svo er í síma 480-1010.

Innlent
Fréttamynd

Útigangsmanni bjargað úr eldi

Útigangsmaður var fluttur á sjúkrahús í fyrrinótt vegna gruns um að hafa orðið fyrir reykeitrun. Maðurinn var í húsi sem brann við Mýrargötu.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglumenn búi við óvissu

Lögreglumenn búa við algera óvissu um hvernig þeim beri að haga störfum sínum eftir að lögreglumaður var dæmdur fyrir að hafa ekið í veg fyrir ökumann bifhjóls til að stöðva hann. Þetta segir framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna.

Innlent
Fréttamynd

Fimm með kannabis og amfetamín

Sjö grömm af amfetamíni og einn bútur af hassi náðist af fimm manns sem lögreglan í Hafnarfirði stöðvaði í bifreið í bítið í gærmorgun.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefnahundur vanræktur

Fíkniefnahundur var tekinn af lögreglumanni í Borgarnesi vegna vanrækslu fyrir skömmu. Hundurinn þurfti meðhöndlun dýralæknis eftir vistina en hann hafði verið lokaður inni og hafði ekki komist út til að gera þarfir sínar.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í timburhúsi á Mýrargötu

Eldur kviknaði í timburhúsi á Mýrargötu á fimmta tímanum í nótt. Þegar slökkvilið kom á staðinn logaði eldur út um glugga á miðhæð hússins. Talið var að einhverjir gætu verið í húsinu og voru reykkafarar sendir inn. Einn maður var í þeim hluta hússins sem eldurinn hafði ekki borist í. Hann var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun.

Innlent
Fréttamynd

Fangelsisyfirvöld breyttu ranglega

Umboðsmaður Alþingis segir fangelsisyfirvöld ekki hafa brugðist rétt við þegar þau ákváðu að setja fanga á Litla-Hrauni í 78 klukkustunda einangrun.

Innlent